Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 6
 Liðsmenn Pegida-hreyfingarinnar í Þýskalandi efndu til kröfugöngu í gær. Þeir héldu meðal annars á borða þar sem stendur „Friðsamleg og sam- einuð gegn trúarstríðum á þýskri grund“. Á sama tíma og Þjóðverjar hafa tekið flóttamönnum frá stríðshrjáðum löndum opnum örmum aukast áhyggjur mannréttindasamtaka í Evrópu af auknum uppgangi rasista í Þýskalandi. NordicPhotos/afP Frakkland Að minnsta kosti sex­ tán eru látnir og þriggja er saknað eftir mikil flóð og storma sem geis­ að hafa á frönsku Rívíerunni síðan á laugardag. Gríðarlegt magn af vatni flæddi um borgirnar Antibes, Cannes, Nice og svæði þar í kring. Í kjöl­ far flóðanna hafa lestarstöðvar og undirgöng fyllst af vatni og yfir­ gefnir bílar standa á götum borga og bæja á svæðinu. Þrír eldri borgarar eru á meðal þeirra látnu en flóð skall á elliheim­ ili í borginni Biot þar sem þeir voru búsettir en borgin er í rúmlega sjö kílómetra fjarlægð frá Antibes. Að minnsta kosti sjö manns drukknuðu þegar flóðið lokaði þá inni í bílum sínum í bílastæða­ húsum og undirgöngum að sögn björgunarsveita í Mandelieu­la Napoule. Henri Leroy, bæjarstjóri sveitarfélagsins, sagði að hugsan­ lega ættu fleiri lík eftir að finnast. Þá drukknuðu þrír þegar bílar þeirra festust í göngum nálægt Vallauris Golfe­Juan. Kona á sex­ tugsaldri er sögð hafa drukknað á götum borgarinnar Cannes þegar stormurinn skall á borginni á laugar dag og sagði borgarstjóri Cannes, Davis Lisnard, að dæmi væru um að bílar á götum borgar­ innar hefðu runnið út í sjó í kjölfar mikils vatns á götunum. Rigningin hófst á frönsku Rívíer­ unni á laugardagskvöld. Samkvæmt fréttum breska ríkis útvarpsins, BBC, er talið að á einungis tveimur dögum hafi rigningin í borginni Nice samsvarað tíu prósentum af meðalrigningu á ári. Áin Brague flæddi yfir bakka sína í kjölfar rigninganna og flæddi vatn inn í nálægar borgir og bæi. Forseti Frakklands, Franco is Hol­ lande, hefur lýst atburðunum sem náttúruhamförum á þeim svæðum sem flóðin náðu til en hann heim­ sótti elliheimilið í bænum Biot í gærmorgun og hvatti íbúa til þess að fara varlega, einnig þakkaði hann björgunarfólki fyrir störf sín og sendi samúðarkveðjur til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna atburðanna. Samkvæmt BBC hefur helstu hraðbrautum í gegnum svæðið verið lokað, lestakerfið á svæðinu liggur niðri og leituðu hundruð túrista skjóls á flugvellinum í Nice í fyrrinótt. Um 27.000 heimili eru rafmagnslaus vegna flóðanna. gydaloa@frettabladid.is Minnst sextán látnir í flóðum í Frakklandi Gríðarleg rigning í Frakklandi hefur orsakað mikil flóð á frönsku Rívíerunni. Minnst sextán eru látnir og mögulegt að fleiri lík finnist. Hátt í 30 þúsund heim- ili rafmagnslaus. Hraðbrautum lokað og lestakerfið fór úr skorðum. dómsmál „Við vissum það alveg frá byrjun að við værum með unnið mál. Spurningin var bara hversu mikils virði eru mannréttindi og friðhelgi einkalífs einstaklings,“ segir fyrrver­ andi aflraunamaðurinn Magnús Ver Magnússon. Aðalmeðferð í skaðabótamáli hans gegn íslenska ríkinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi. Magnús fer fram á tíu milljónir króna í miskabætur frá ríkinu auk dráttar­ vaxta og málskostnaðar vegna ólög­ mætrar meingerðar í hans garð. Ríkið fer hins vegar fram á verulega lækk­ aðar dómkröfur og að málskostnaður verði felldur niður. Ekki er farið fram á sýknu. Upphaf málsins má rekja til þess að Magnúsi var tilkynnt um það frá lög­ reglunni að hann hefði verið beittur ýmsum rannsóknarúrræðum í rann­ sókn sem beindist gegn honum á sínum tíma, þar með talið að hlera síma hans, nota eftirfararbúnað í bif­ reið hans sem og að setja hlustunar­ búnað í bifreið í umráðum hans. „Fyrst var ég bara í sjokki en svo varð ég bara reiður. Þeir fengu heimild til þess að hlusta á öll mín símtæki, þar á meðal símanúmer sem dóttir mín, sem þá var  tíu ára gömul, notaði.“ Málið snerist um meinta aðkomu Magnúsar að stórfelldum innflutningi á fíkniefnum til landsins. Rannsókn­ inni var að lokum hætt en fylgst var með Magnúsi í þrjú ár. „Þetta er nátt­ úrulega bara kerfishrun hjá lögreglu og ríkissaksóknara. Nú vilja þeir bara borga lágmarksbætur en við gerum kröfu upp á 10 milljónir. Peningarnir eru þó ekki aðalmálið í þessu heldur vil ég að það verði slegið fast á hendurnar á þeim,“ segir Magnús og bætir við að dómurinn verði fordæmisgefandi og að hann vilji að í framtíðinni sjái fólk sér hag í því að sækja rétt sinn í stað þess að sá slagur muni ekki borga sig. „Svo er ég líka bara þekktur fyrir það að gefast ekki upp,“ segir Magnús og hlær. Magnús talar um að dómstóll göt­ unnar skipti sig máli. „Nafnið mitt er vörumerki sem ég byggi afkomu mína á. Ég var sterkasti maður í heimi og rek æfingaklúbb sem heldur hina ýmsu viðburði, til dæmis sterkasti fatlaði maðurinn. Með þessu er með gróflegum hætti verið að rægja mig og vörumerkið mitt,“ segir Magnús en hann segir að í kjölfar fréttaflutnings af málinu hafi hann tekið eftir því að viðskipti við sig hafi minnkað vegna neikvæðs viðhorfs í sinn garð. „Svo var mun erfiðara að fá styrktar­ fé vegna viðburða sem ég skipulagði.“ Verst finnst Magnúsi þó að yngri dóttir hans hafi orðið fyrir einelti sem byrj­ aði vegna málsins. Hún þurfti af þeim sökum að skipta um skóla. „Hún var spurð hvort pabbi hennar væri glæpa­ maður og svo hættu vinkonur hennar að tala við hana.“ Magnús gerir ráð fyrir að krakkarnir í skólanum hafi heyrt umræður um málið á heimili sínu. „Stelpan mín er þó alsæl í dag.“ Annað dæmi um það hvaða áhrif málið hefur haft á Magnús er að hann er undantekningarlaust stöðvaður af tollvörðum í Keflavík þegar hann kemur til landsins. Hann segist ferðast reglulega vinnu sinnar vegna. „Toll­ verðirnir koma hlaupandi að mér undantekningarlaust í hvert einasta skipti og fá að lýsa í gegn um töskurnar mínar. Þetta finnst mér ósanngjarnt og að það sé brotið gegn jafnræðisreglu.“ Dómur í máli Magnúsar gegn íslenska ríkinu verður kveðinn upp þann 14. nóvember næstkomandi. nadine@frettabladid.is Þung byrði á fyrrverandi sterkasta manni heims sveitarstjórnir  Ferðamönnum á Suðurlandi fjölgaði um hálfa milljón á síðustu tveimur árum. Bæjarstjórn Hornafjarðar segir ótækt að samt eigi að draga úr fjárframlögum ríkisins til embættis lögreglustjóra á Suðurlandi á næsta ári. „Fjöldi íbúa á bak við hvern lögreglu­ mann á Suðurlandi er 601. Til saman­ burðar er hann á landinu öllu 500 íbúar. Þar fyrir utan er ferðamanna­ fjöldinn langmestur um Suðurland,“ segir bæjarstjórn Hornafjarðar. – gar Minna í lögreglu þótt fólki fjölgi sve itarstj ó rn i r Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt til­ lögu Gunnars Einarssonar bæjar­ stjóra um að  hann semji reglur á grundvelli sveitarstjórnarlaga um  að fundir fastanefnda bæjar­ st j ó r n a r G a r ð a b æ ja r ve r ð i almennt haldnir í heyranda hljóði og opnir. „Skýrar reglur um opna fundi eru til þess að auðvelda íbúum að setja fram ósk um opna fundi,“ segir í til­ lögunni. – gar Ætla að opna nefndarfundi Bílar liggja eins og hráviði um götur borga og bæja á frönsku rívíerunni. fréttaBlaðið/afP Óttast aukinn rasisma í Þýskalandi 27.000 heimili urðu rafmagnslaus vegna flóðanna um helgina Magnús fer fram á tíu milljónir króna í miskabætur frá ríkinu auk dráttarvaxta og málskostnaðar vegna ólögmætrar mein- gerðar í hans garð. fréttaBlaðið/VilhelM Gunnar einarsson Hundruð ferðamanna leituðu skjóls á flugvellinum í Nice í fyrrinótt 5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 m á n U d a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 2 -F B A 0 1 6 C 2 -F A 6 4 1 6 C 2 -F 9 2 8 1 6 C 2 -F 7 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 4 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.