Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 54
Með öflugu dreifikerfi Póstsins kemur þú þínum vörum hratt og örugglega hvert á land sem er. Hvort sem um ræðir stakar vörur eða bílfarma þá hefur Pósturinn lausnina. Eitt símtal og við erum að dansa. STÓRAR SENDINGAR VIÐ FÖRUM LÉTT MEÐ ÞAÐ www.postur.is 5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 M Á N U D A G U r22 M e N N i N G ∙ F r É t t A b L A ð i ð menning Dagana 23.-24. október 2015 standa Ljósmyndarafélag Íslands og Blaða- ljósmyndarafélag Íslands saman að einni stærstu ljósmyndaráðstefnu sem haldin hefur verið hérlendis. Ráðstefnan er ætluð öllu atvinnu- og áhugafólki í ljósmyndun. Ráð- stefnan verður haldin á Grand Hóteli Reykjavík í þremur sölum og meðal staðfestra fyrirlesara eru: Mads Nissen, David Noton, Janette Beckman, Gianluca Colla, Páll Stef- ánsson, Heiðdís og Styrmir Kári, David Barreiro, Ragnar Th. Sigurðs- son, Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, Jóna Þorvaldsdóttir, Inga Sólveig og Hung Tang. Sony Nordic-ráðstefnan hefst á föstudagskvöldi með opnunarfyrir- lestri hins margverðlaunaða Mads Nissen og að honum loknum býður Nýherji til veislu í verslun sinni. Á laugardeginum standa ráðstefnu- gestum til boða 15 mismunandi fyr- irlestrar sem haldnir verða í þremur mismunandi sölum og fjalla um allt frá Daguerre-týpum til nýjustu framfara í stafrænum myndflögum og ætti allt áhugafólk að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Vörusýning verður haldin samhliða sýningunni þar sem fyrirtækjum gefst einstakt tækifæri til að kynna sínar vörur og þjónustu fyrir stórum hópi atvinnu- og áhugaljósmyndara. Markmiðið er að hægt verði að kynna sér allt það helsta hvort sem er í búnaði, prentþjónustu eða annarri þjónustu fyrir ljósmyndara. Við viljum búa til vettvang fyrir þá sem þjónusta ljós- myndara til að koma saman og sýna sig og sína þjónustu. – mg Allt það helsta í ljósmyndun kvikMyNDir Þrestir Leikstjórn og handrit Rúnar Rúnarsson Aðalleikarar Atli Óskar Fjalarsson, Ingvar E. Sigurðsson Framleiðendur Igor Nola, Lilja Ósk Snorradóttir, Mikkel Jersin og Rúnar Rúnarsson Myndataka Sophia Olsson Klipping Jacob Secher Schulsinger Tónlist Kjartan Sveinsson Leikmynd Marta Luiza Macuga Búningar Helga Rós Hannam Förðun Áslaug Dröfn Sigurðardóttir Þrestir er nýjasta mynd leikstjór- ans Rúnars Rúnarssonar og var hún á dögunum valin besta myndin á kvikmyndahátíðinni á San Sebasti- an, viðhaldandi þeirri sigurgöngu sem íslenskar myndir hafa haldið á kvikmyndahátíðum víða um heim undanfarið. Myndin segir frá unglingspiltinum Ara (Atli Óskar Fjalarsson) sem flyst úr Reykjavík aftur í smábæinn á Vest- fjörðum sem hann ólst upp í, til að búa hjá föður sínum (Ingvar E. Sig- urðsson) þar sem móðir hans þarf að flytja til Afríku. Ara líkar ekki dvölin þar til að byrja með þar sem lítið er um að vera þarna auk þess sem faðir hans er alkóhólisti sem er í sífelldu partístandi. Þar að auki er æskuástin hans komin með kærasta og hann neyðist til að vinna í frystihúsinu. En smám saman breytast hlutirnir. Þrestir er ekki mynd sem gengur út á sterka söguþráðarframvindu held- ur er þetta fyrst og fremst þroska- saga, mynd um ungan mann í sjálfs- skoðun og einnig innlit inn í lítið samfélag. Þetta er mynd sem gengur út á andrúmsloft og stemningu og þar liggur helsti styrkur hennar. Rúnar hefur sýnt áður í stuttmynd- unum sínum og myndinni Eldfjall að hann hefur sterkt vald á kvikmynda- miðlinum og verður bara betri ef eitthvað er þegar kemur að mynda- töku og samsetningu myndmáls, auk þess sem hann hefur gott teymi kvik- myndagerðarmanna á bak við sig. Þrestir er full af glæsilegum skotum og fallegum augnablikum og nýtir miðilinn vel til að segja sögu sjón- rænt. Sömuleiðis standa leikarnir sig flestir prýðilega þó enginn skari neitt sérstaklega framúr, en það má þó vel segja að Atli Óskar Fjalarsson sé búinn að sanna að hann eigi bjarta framtíð framundan sem leikari. En á móti kemur að efniviður- inn í Þröstum er ekki eins sterkur og myndmálið. Myndin er full af þemum sem sumir myndu kalla klassísk íslensk þemu en aðrir þreyttar klisjur: Alkóhólismi, slæmir feður, lífið í landsbyggðinni og fleira þvíumlíkt. Myndin hefur fátt nýtt fram að færa á þessu sviði og segir lítið sem ekki hefur verið sagt áður. Auk þess eru samtölin í myndinni hálfklén á tíðum og þótt myndin sé sjónrænt sterk á hún það til að láta persónur segja hluti upphátt sem voru augljósir fyrir. Stígandin í myndinni er þó ágæt þó hæg sé en samt nær hún sjaldan almennilegu flugi og er full lengi að komast í gang. Það virðist þó vera ákveðin pæling hjá Rúnari að láta samtölin vera svona hversdagsleg og klén þar sem það endurspeglar á vissan hátt hugarheim aðalpersónunnar sem finnst allt í kringum sig vera svo glatað. Upphafssenurnar lýsa flestar frekar hversdagslegum hlutum en smám saman poppa upp hlutir sem leynast undir yfirborðinu og myndin verður minna hversdagsleg eftir því sem á líður. Rúnar nær að byggja upp ágætis stemningu og myndin verður aldrei leiðinleg fyrir vikið og oft ágætis húmor í henni. Annað sem má setja út á hérna eru kvenpersónurnar, en eins og í allt of mörgum íslenskum myndum eru þær til staðar fyrst og fremst til að þjóna karlpersónunum og hafa litla sem enga dýpt. Móðir og amma Ara eru lítið meira en staðlaðar týpur og stúlkan sem Ari er hrifinn af er ekkert meira en það: Sæta stelpan. Þetta er enn ein karlasagan í íslensku bíói. Reyndar eru karl- persónurnar ekkert mikið merki- legri hérna fyrir utan Ara og föður hans en allavega þeir tveir hafa þó einhverja smá dýpt. Atli Sigurjónsson NiðUrstAðA: Áferðarfalleg mynd sem heldur athygli með flottum augna- blikum og oft fyndin. En hún er full kunnugleg og persónurnar í henni hefðu geta verið sterkari og dýpri. Falleg en full kunnugleg þroskasaga ★★★★★ Mynd úr kvikmyndinni Þrestir í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar. LjóSMynd /EinAR GuðMAnn 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 2 -F B A 0 1 6 C 2 -F A 6 4 1 6 C 2 -F 9 2 8 1 6 C 2 -F 7 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 6 4 s _ 4 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.