Fréttablaðið - 05.10.2015, Qupperneq 54
Með öflugu dreifikerfi Póstsins kemur þú þínum
vörum hratt og örugglega hvert á land sem er. Hvort
sem um ræðir stakar vörur eða bílfarma þá hefur
Pósturinn lausnina. Eitt símtal og við erum að dansa.
STÓRAR SENDINGAR
VIÐ FÖRUM LÉTT MEÐ ÞAÐ
www.postur.is
5 . o k t ó b e r 2 0 1 5 M Á N U D A G U r22 M e N N i N G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
Dagana 23.-24. október 2015 standa
Ljósmyndarafélag Íslands og Blaða-
ljósmyndarafélag Íslands saman að
einni stærstu ljósmyndaráðstefnu
sem haldin hefur verið hérlendis.
Ráðstefnan er ætluð öllu atvinnu-
og áhugafólki í ljósmyndun. Ráð-
stefnan verður haldin á Grand
Hóteli Reykjavík í þremur sölum
og meðal staðfestra fyrirlesara eru:
Mads Nissen, David Noton, Janette
Beckman, Gianluca Colla, Páll Stef-
ánsson, Heiðdís og Styrmir Kári,
David Barreiro, Ragnar Th. Sigurðs-
son, Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,
Jóna Þorvaldsdóttir, Inga Sólveig
og Hung Tang.
Sony Nordic-ráðstefnan hefst á
föstudagskvöldi með opnunarfyrir-
lestri hins margverðlaunaða Mads
Nissen og að honum loknum býður
Nýherji til veislu í verslun sinni. Á
laugardeginum standa ráðstefnu-
gestum til boða 15 mismunandi fyr-
irlestrar sem haldnir verða í þremur
mismunandi sölum og fjalla um
allt frá Daguerre-týpum til nýjustu
framfara í stafrænum myndflögum
og ætti allt áhugafólk að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Vörusýning
verður haldin samhliða sýningunni
þar sem fyrirtækjum gefst einstakt
tækifæri til að kynna sínar vörur og
þjónustu fyrir stórum hópi atvinnu-
og áhugaljósmyndara. Markmiðið
er að hægt verði að kynna sér allt
það helsta hvort sem er í búnaði,
prentþjónustu eða annarri þjónustu
fyrir ljósmyndara. Við viljum búa til
vettvang fyrir þá sem þjónusta ljós-
myndara til að koma saman og sýna
sig og sína þjónustu. – mg
Allt það helsta í ljósmyndun
kvikMyNDir
Þrestir
Leikstjórn og handrit Rúnar Rúnarsson
Aðalleikarar Atli Óskar Fjalarsson,
Ingvar E. Sigurðsson
Framleiðendur Igor Nola, Lilja Ósk
Snorradóttir, Mikkel Jersin og Rúnar
Rúnarsson
Myndataka Sophia Olsson
Klipping Jacob Secher Schulsinger
Tónlist Kjartan Sveinsson
Leikmynd Marta Luiza Macuga
Búningar Helga Rós Hannam
Förðun Áslaug Dröfn Sigurðardóttir
Þrestir er nýjasta mynd leikstjór-
ans Rúnars Rúnarssonar og var hún
á dögunum valin besta myndin á
kvikmyndahátíðinni á San Sebasti-
an, viðhaldandi þeirri sigurgöngu
sem íslenskar myndir hafa haldið á
kvikmyndahátíðum víða um heim
undanfarið.
Myndin segir frá unglingspiltinum
Ara (Atli Óskar Fjalarsson) sem flyst
úr Reykjavík aftur í smábæinn á Vest-
fjörðum sem hann ólst upp í, til að
búa hjá föður sínum (Ingvar E. Sig-
urðsson) þar sem móðir hans þarf að
flytja til Afríku. Ara líkar ekki dvölin
þar til að byrja með þar sem lítið er
um að vera þarna auk þess sem faðir
hans er alkóhólisti sem er í sífelldu
partístandi. Þar að auki er æskuástin
hans komin með kærasta og hann
neyðist til að vinna í frystihúsinu.
En smám saman breytast hlutirnir.
Þrestir er ekki mynd sem gengur út
á sterka söguþráðarframvindu held-
ur er þetta fyrst og fremst þroska-
saga, mynd um ungan mann í sjálfs-
skoðun og einnig innlit inn í lítið
samfélag. Þetta er mynd sem gengur
út á andrúmsloft og stemningu og
þar liggur helsti styrkur hennar.
Rúnar hefur sýnt áður í stuttmynd-
unum sínum og myndinni Eldfjall að
hann hefur sterkt vald á kvikmynda-
miðlinum og verður bara betri ef
eitthvað er þegar kemur að mynda-
töku og samsetningu myndmáls, auk
þess sem hann hefur gott teymi kvik-
myndagerðarmanna á bak við sig.
Þrestir er full af glæsilegum skotum
og fallegum augnablikum og nýtir
miðilinn vel til að segja sögu sjón-
rænt. Sömuleiðis standa leikarnir
sig flestir prýðilega þó enginn skari
neitt sérstaklega framúr, en það má
þó vel segja að Atli Óskar Fjalarsson
sé búinn að sanna að hann eigi bjarta
framtíð framundan sem leikari.
En á móti kemur að efniviður-
inn í Þröstum er ekki eins sterkur
og myndmálið. Myndin er full af
þemum sem sumir myndu kalla
klassísk íslensk þemu en aðrir
þreyttar klisjur: Alkóhólismi, slæmir
feður, lífið í landsbyggðinni og fleira
þvíumlíkt. Myndin hefur fátt nýtt
fram að færa á þessu sviði og segir
lítið sem ekki hefur verið sagt áður.
Auk þess eru samtölin í myndinni
hálfklén á tíðum og þótt myndin
sé sjónrænt sterk á hún það til að
láta persónur segja hluti upphátt
sem voru augljósir fyrir. Stígandin í
myndinni er þó ágæt þó hæg sé en
samt nær hún sjaldan almennilegu
flugi og er full lengi að komast í gang.
Það virðist þó vera ákveðin
pæling hjá Rúnari að láta samtölin
vera svona hversdagsleg og klén þar
sem það endurspeglar á vissan hátt
hugarheim aðalpersónunnar sem
finnst allt í kringum sig vera svo
glatað. Upphafssenurnar lýsa flestar
frekar hversdagslegum hlutum en
smám saman poppa upp hlutir sem
leynast undir yfirborðinu og myndin
verður minna hversdagsleg eftir því
sem á líður. Rúnar nær að byggja
upp ágætis stemningu og myndin
verður aldrei leiðinleg fyrir vikið
og oft ágætis húmor í henni.
Annað sem má setja út á hérna
eru kvenpersónurnar, en eins og í
allt of mörgum íslenskum myndum
eru þær til staðar fyrst og fremst til
að þjóna karlpersónunum og hafa
litla sem enga dýpt. Móðir og amma
Ara eru lítið meira en staðlaðar
týpur og stúlkan sem Ari er hrifinn
af er ekkert meira en það: Sæta
stelpan. Þetta er enn ein karlasagan
í íslensku bíói. Reyndar eru karl-
persónurnar ekkert mikið merki-
legri hérna fyrir utan Ara og föður
hans en allavega þeir tveir hafa þó
einhverja smá dýpt.
Atli Sigurjónsson
NiðUrstAðA: Áferðarfalleg mynd sem
heldur athygli með flottum augna-
blikum og oft fyndin. En hún er full
kunnugleg og persónurnar í henni hefðu
geta verið sterkari og dýpri.
Falleg en full kunnugleg þroskasaga
★★★★★
Mynd úr kvikmyndinni Þrestir í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar.
LjóSMynd /EinAR GuðMAnn
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
2
-F
B
A
0
1
6
C
2
-F
A
6
4
1
6
C
2
-F
9
2
8
1
6
C
2
-F
7
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
4
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K