Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 05.10.2015, Blaðsíða 16
Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi í Kópavogi Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Kópavogi. Vatnsendi - Ögurhvarf 4a (áður Vatnsendablettur 72). Breytt deiliskipulag. Í breytingunni felst að núverandi lóð að Ögurhvarf 4a er skipt upp í 3 lóðir; núverandi lóð 4a sem minnkar og verður 3.940 m2 eftir breytingu og tvær nýjar lóðir Ögurhvarf 4b og 4c. Aðkoma verður frá Ögurhvarfi. Lóðin að Ögurhvarfi 4b verður 1.150 m2 og að Ögurhvarfi 4c verður 1.340 m2. Á lóðinni að Ögurhvarfi 4b er gert ráð fyrir fjórbýlishúsi á tveimur hæðum. Á lóðinni Ögurhvarfi 4c er gert ráð fyrir fjölbýlishús með fimm íbúðum á tveimur hæðum og kjallara með innbyggðri opinni bílageymslu fyrir tvo bíla. Hámarks flatarmál grunnflatar íbúða við Ögurhvarf 4b er áætlað 250 m2 og hámarks byggingarmagn er um 460 m2. Hámarks flatarmál grunnflatar íbúða við Ögurhvarf 4c er áætlað 270 m2 og hámarks byggingarmagn um 600 m2. Hesthús í suðausturhluta lóðar Ögurhvarfs 4 b er fellt út. Skipulagssvæðið er tengt göngu- og reiðleiðum hverfisins. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum í mkv. 1:500 dags. 14. september 2015. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Ofangreind tillaga verður til sýnis á skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá og með 6. október 2015. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs, Fannborg 6, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 17. nóv ember 2015. Skipulagsstjóri Kópavogs kopavogur.is Reitur 1.174.0, Landsbankareitur Umhverfis og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti þann 16. september 2015 og borgarráð Reykjavíkur þann 24. september 2015 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.0, sem afmarkast af Vitastíg, Hverfisgötu, Barónsstíg og Laugavegi. Breytingin nær til allra lóða á reitnum og umtalsverðar breytingar verða gerðar á lóðarmörkum og nýtingarhlutföllum. Markmið breytingar er að styrkja húsavernd og götumyndir eldri húsa á vesturhluta reitsins ásamt því að vernda götumynd Laugavegar í meira mæli en nú er. Samhliða því er uppbygging á randbyggð íbúðarhúsnæðis heimil á miðbiki og austari hluta reitsins umhverfis inngarða. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 - 16:15, frá 5. október 2015 til og með 16. nóvember 2015. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðunni, www.reykjavik.is, undir skipulag í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega, til umhverfis - og skipulagsviðs, b.t. skipulagsfulltrúa, eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 16. nóvember 2015. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Reykjavík 5. október 2015 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.. Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is Körfubolti Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari í Lengjubikar karla í körfubolta á laugardaginn, en bikarmeistararnir höfðu betur gegn Þór frá Þorlákshöfn, 72-58, í úrslita- leiknum sem fram fór í Iðu á Selfossi. Í undanúrslitum vann Stjarnan nýliða FSU, 91-81, þar sem MArvin skoraði 17 stig en Justin Shouse, leikstjórnandinn magnaði, var stigahæstur Stjörnuliðsins með 24 stig. Al’lonzo Coleman, nýr kani í liði Stjörnunnar, skoraði 24 stig í undanúrslitunum og 16 stig í úrslitaleiknum auk þess sem hann tók átta fráköst. Marvin Valdimarsson, framherji Stjörnumanna, var næst stigahæstur í liði Stjörnunnar með 15 stig auk þess sem hann tók sex fráköst. „Við spiluðum vel. Varnarleikurinn var góður og við náðum að stoppa þeirra lykilmenn algjörlega,“ segir Marvin við Fréttablaðið. Staðan í hálfleik var 45-33 fyrir Stjörnuna sem náði að halda ann- ars vel spilandi Þórsliði undir stjórn Einars Árna Jóhannssonar undir sextíu stigum. Geðugur piltur „Sóknarleikur okkar var ekkert frá- bær en við náðum að riðla þeirra sóknarleik og stoppa þeirra bestu menn eins og Þorstein, Ragnar Örn og Ragga stóra auðvitað. Tómas Heiðar spilaði líka flotta vörn á Kanann þeirra,“ segir Marvin. Tómas Heiðar Holton, sem bauð upp á skotlínuna 50/50/90 á síðustu leiktíð sem leikmaður Þórs, söðlaði um og gekk í raðir Stjörnunnar. Þar er honum ætlað að fylla í skarð Dags Kárs Jónssonar sem fór í háskóla í Bandaríkjunum. „Maður hefur kynnst því að spila núna með Tomma, hversu þægilegt það er. Hann tekur ekki neitt frá neinum og er góður sendinga- maður og auð- vitað frábær skot- maður. Hann er líka bara geðugur piltur sem hefur alltaf verið lýst sem miklum liðsmanni,“ segir Marvin. Stjarnan mætir inn í Domino's- deildina með gott lið sem er líklegt til afreka. Liðið varð bikarmeistari á síðustu leiktíð og hélt nánast öllu liðinu en bætir við sig Tómasi fyrir Dag Kár. Getum unnið KR „Ég held við séum orðnir fullmann- aðir. Ég allavega veit ekki betur. Þetta lið hefur styrkleika til að gera atlögu að titlinum. Við ætlum okkur allavega ekki að sætta okkur við eitt- hvert miðjumoð,“ segir Marvin sem vill vinna Íslandsmeistaratitilinn. „Við urðum bikarmeistarar og unnum þar KR sem er alltaf spáð titlinum. Við höfum sýnt undan- farin ár að við getum unnið KR. Það er búið að vera virkilega gaman að vinna bikarmeistara- titilinn undanfarin ár en okkur vantar enn þann stóra,“ segir Marvin Valdimars- son. – tom Bikarinn góður en okkur vantar þann stóra Körfubolti „Ég hafði á tilfinningunni allan tímann að við værum með þetta,“ segir Helena Sverrisdóttir, spil- andi þjálfari Hauka í Domino’s-deild kvenna í körfubolta, við Fréttablaðið um sigurinn á Keflavík, 70-47, í úrslita- leik Lengjubikarsins sem fram fór í Iðu á Selfossi um helgina. Þetta er fyrsti titillinn sem Helena vinnur eftir að hún kom heim úr átta ára háskóladvöl og atvinnumennsku og margir telja að hann verði ekki sá síðasti. Helena var best á vellinum eins og svo oft áður með 22 stig og 10 fráköst. „Við spiluðum jafnt og þétt yfir allan leikinn en mér finnst við eiga meira inni. Það er líka eins gott enda er bara október. Við erum með stóran og flottan hóp og það er mikil samkeppni á æfingum. Við erum á réttri leið. Við höfum ekki enn átt einhvern stjörnu- leik þar sem við spilum 40 mínútur af góðum körfubolta,“ segir Helena sem bendir á að liðið sé tiltölulega nýtt að vissu leyti. „Ég vissi alltaf að það tæki okkur tíma að spila okkur saman. Við erum að spila nýjan sóknarleik sem tekur tím að læra en við erum alltaf að bæta okkur með hverjum leik. Við fórum til Danmerkur á dögunum sem ég tel að hafi gefið okkur mikið. Við erum eins og nýtt lið þó við þekkjumst allar frá því í gamla daga,“ segir Helena sem hefur áður þjálfað sumar af stelpunum í liðinu. „Ég þjálfaði þær þegar þær voru bara lillur. Ég var orðin aðstoðarþjálfari í yngri flokkum þegar ég var tólf ára og var að þjálfa þar til ég fór út. Þó Auður Rafns sé bara fjórum árum yngri en ég þjálfaði ég hana áður,“ segir Helena. Allt gott nema veðrið Þessi besta körfuboltakona þjóðarinnar sinnir nú nýju hlutverki, en samhliða því að spila er hún í þriggja manna þjálf- arateymi liðsins. Það hefur ekki áhrif á spilamennsku hennar, segir Helena. „Mér finnst þetta mjög skemmtilegt. Í leikjunum stjórna Andri og Ingvar meira en ég sé kannski hluti inni á vell- inum sem er erfiðara að sjá frá hliðar- línunni. En svo hef ég mjög gaman af því að skipuleggja æfingar. Ég hef líka alltaf verið í leiðtogahlutverki og talað mikið. Þetta mun bara hafa góð áhrif á mig,“ segir Helena sem fagnar því að mestu leyti að vera komin heim aftur. „Það er alveg æðislegt að vera heima. Ég finn fyrir því mest núna því síðustu tvær vikur hefðu vanalega verið fyrstu vikurnar úti. Fyrir utan veðrið er þetta alveg frábært en ég venst því alveg eins og áður en ég fór. Ég er bara alveg ótrú- lega sátt,“ segir Helena Sverrisdóttir. tomas@365.is Alltaf verið í leiðtogahlutverki Helena Sverrisdóttir vann sinn fyrsta titil sem spilandi þjálfari Hauka er liðið vann Lengjubikar kvenna eftir stórsigur á Keflavík í úr- slitaleik. Hún telur sitt lið eiga mun meira inni fyrir veturinn. Helena þjálfaði áður suma leikmenn liðsins þegar þær voru smástelpur. Helena Sverrisdóttir var stigahæst í úrslitaleik Lengjubikarsins þar sem Haukar unnu öruggan sigur á Keflavík í Iðu á Selfossi. FRéttAbLAðIð/Anton 5 . o K t ó b e r 2 0 1 5 M Á N u D A G u r16 s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 1 -D 3 6 0 1 6 C 1 -D 2 2 4 1 6 C 1 -D 0 E 8 1 6 C 1 -C F A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 4 1 0 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.