Fréttatíminn - 17.07.2015, Síða 2
Kvikmyndin Englar alheimsins
í leikstjórn Friðriks Þórs Frið-
rikssonar er best sótta íslenska
leikna kvikmyndin í fullri lengd
en hana sóttu ríf lega 83.000
manns árið 2000. Þetta kemur
fram í frétt Hagstofunnar um tíu
aðsóknarmestu leiknu íslensku
kvikmyndirnar á árunum 1996-
2013. Friðrik Þór á aðra mynd á
listanum, Djöflaeyjuna, en Balt-
asar Kormákur á fjórar mynd-
ir á listanum, Mýrina, Hafið,
Brúðgumann og Djúpið. Engin
kvikmynd í leikstjórn konu er
á listanum yfir best sóttu kvik-
myndirnar en aðsóknarmesta
kvikmynd í leikstjórn konu er
Stella í framboði í leikstjórn
Guðnýjar Halldórsdóttur, sem
er tólfta myndin á listanum, með
hátt í 35.000 gesti.
Athygli vekur að níu mynd-
anna eru byggðar á vinsælli
skáldsögu, leikverki eða sjón-
varpsfígúru en engin þeirra
tíu mynda sem minnsta aðsókn
hlutu er byggð á bókmennta-
verki eða hefur beina skírskotun
í alkunnan atburð.
Um helmingur þeirra 87 ís-
lensku leiknu kvikmynda í fullri
lengd sem frumsýndar voru á
árunum 1996-2013 fékk innan
við 10.000 sýningargesti en
gestafjöldi á hverja frumsýnda
mynd á árunum 1996-2013 var
að meðaltali 17.373. Hins vegar
var aðsókn að helmingi mynd-
anna innan við 10.773 gestir.
Átta myndir fengu yfir 50.000
gesti, tvær myndir yfir 80.000
áhorfendur, en sú mynd sem
minnsta aðsókn hlaut fékk inn-
an við 50 áhorfendur. -hh
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
UP! MEÐ
STUÐIÐ
Refmagns e-Up! verð frá:
3.290.000 kr.
Tilboð í hönnun nýs
Landspítala
Í gær var síðari opnun tilboða vegna
fullnaðarhönnunar nýs meðferðarkjarna
vegna byggingar nýs Landspítala. Fjögur
tilboð voru opnuð
og var lægsta tilboðið frá Corpus 3 sem
bauð rétt tæplega 1,4 milljarða króna.
Fjárhæð kostnaðaráætlunar nemur hins
vegar 2.740.500.000 krónum og er lægsta
tilboðið því 51% af henni. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Nýjum Landspítala.
Meðferðarkjarninn, sem áætlað er að verði
58.500 m2, verður hluti af nýjum Land-
spítala við Hringbraut. Fullnaðarhönnun
byggir á þeirri forhönnun sem liggur nú
fyrir. Tilboðin fjögur komu frá eftirtöldum
aðilum: Verkís - TBL - kr. 1.563.430.000.
Grænaborg - kr. 1.620.593.000.
Corpus 3 - kr. 1.399.303.400, og Mannvit
hf. - kr. 1.513.171.040.
Corpus 3 hópurinn samanstendur af VSÓ
verkfræðistofu, VJI verkfræðistofu, Horn-
steinum arkitektum og Basalt arkitektum.
Skattur á flugferðir.
Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkis-
ráðherra og fyrsta þingmanni norðvestur-
kjördæmis, þykir Íslendinga hafa skort
framtíðarsýn í ferðaþjónustu og þykir tími
til kominn að setja skatt á flugmiða til að
fjármagna innviði ferðaþjónustunnar. Þetta
sagði hann í viðtali við Skessuhorn í gær.
Dýralækna vantar á
landsbyggðina
Illa gengur að manna stöðu héraðsdýra-
læknis í Austurumdæmi. Staðan var auglýst
öðru sinni nýverið, en enginn sótti um.
Bjarki R. Kristjánsson, forstöðumaður
rekstrar- og mannauðssviðs Matvælastofn-
unar, segir að þetta sé ekki einangrað tilvik.
„Það er oft erfitt að manna sérhæfðar
stöður úti á landi. Og við höfum áður lent í
vandræðum á síðustu árum, til dæmis við
að manna eftirlitsdýralæknastöður hér
og þar.“
Bjarki segir að enn hafi ekki verið ákveðið
hvernig brugðist verði við erfiðleikunum.
Sjö með fleiri en 50.000
Um helmingur af þeim 87 íslensku leiknu kvikmyndum í fullri lengd sem frumsýndar
voru á árunum 1996-2013 og teknar voru til almennra sýninga í kvikmyndahúsum
fékk innan við 10.000 sýningargesti. Gestafjöldi að meðaltali á hverja frumsýnda
mynd á árunum 1996-2013 var 17.373. Hins vegar var aðsókn að helmingi myndanna
innan við 10.773 gestir. Sjö myndir fengu yfir 50.000 gesti, tvær myndir yfir 80.000
áhorfendur, en sú mynd sem minnsta aðsókn hlaut fékk innan við 50 áhorfendur.
Hagstofan greindi frá.
S umartíminn er erfiður. Þá fáum við mikið af kettlinga-fullum læðum og læðum
með kettlinga til okkar því þá er
metfjöldi af læðum að gjóta, það
bara fylgir sólinni og birtunni,“
segir Halldóra Snorradóttir, um-
sjónarmaður í Kattholti, en óvenju
mörgum yfirgefnum köttum hef-
ur verið skilað í Kattholt síðustu
vikur. „Óábyrgir eigendur sem
hirða ekki um að taka læðurnar
úr sambandi hafa engan áhuga
á því að auglýsa eftir eigendum
fyrir kettlingana og oftar en ekki
eru kassar með kettlingum settir
hér fyrir utan. En með því er fólk
auðvitað bara að firra sig ábyrgð.
Ef allt fyllist hér af kössum þá er
ekkert víst að við getum nokkuð
gert fyrir þessa kettlinga,“ segir
Halldóra.
Dýrum fylgir ábyrgð
„Fólk losar sig við ketti af alls kyns
ástæðum; ofnæmi, vegna húsnæðis-
vandamála eða hreinlega leiða, en
vandinn eykst alltaf yfir sumar-
tímann þegar fólk fer að fara í sum-
arfrí,“ segir Halldóra. „Fólk fær
sér oft dýr í allt of mikilli fljótfærni
og án þess að gera sér grein fyrir
ábyrgðinni sem fylgir því að eiga
dýr. Ef fólk er alls ekki fært um að
eiga dýrið sitt áfram verður það að
taka sjálft ábyrgðina og annaðhvort
finna því heimili eða þá svæfa dýrið.
Það þýðir ekkert að skilja dýrið eftir
hér fyrir utan eða úti á götu og setja
þannig ábyrgðina yfir á aðra.“
Hent úr bílum við Esjuna
Halldóra segir það mjög algengt að
fólk skilji ketti eftir í tómum íbúðum
en að einnig hafi það færst í vöxt að
fólk keyri út fyrir bæjarmörkin til
að skilja kettina eftir fjarri byggð.
„Fólk keyrir mikið upp að Esju og
hendir þeim úr bílnum þar. Það hef-
ur verið að finnast mikið af köttum
þar núna í sumar. Oftast eru þetta
yngri kettir, sem eru yfirgefnir af
fólki sem hefur greinilega ekki
myndað nein tengsl við dýrið.
Það er alls konar fólk sem yfir-
gefur dýrin sín svona, í einhverjum
tilfellum eru þetta greinilega veikir
einstaklingar, en þetta eru líka fjöl-
skyldur sem hafa fengið leiða á kett-
inum. Það er hreinlega til í dæm-
inu að fólk losi sig við eldri kött um
sumarið og fái sér svo kettling um
haustið.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
DýrahalD Kettir yfirgefnir á Sumrin
Mikið um að kettir séu
skildir eftir við Esjuna
Á sumrin eru fleiri kettir yfirgefnir en á öðrum árstímum. Ástæðurnar geta verið sumarfrí,
ofnæmi eða flutningar en Halldóra Snorradóttir umsjónarmaður Kattholts segir að oftar en ekki
megi rekja yfirgefna ketti til óábyrgra eigenda. Esjan virðist vera orðin vinsæll staður til að losa
sig við ketti.
Halldóra Snorradóttir, umsjónarmaður Kattholts. Í Kattholti eru núna 22 kettlingar á öllum aldri og 40 fullorðnir kettir. Lang-
flestir eru ómerktir en þar eru líka örmerktir kettir sem eigendur vilja ekkert með hafa. Myndir/Anton brink
Fjórar kvikmyndir
Baltasars Kormáks
eru á listanum yfir
tíu aðsóknarmestu
leiknu íslensku
kvikmyndirnar í
fullri lengd, Mýrin,
Djúpið, Hafið og
Brúðguminn.
KviKmynDir aðSóKn á íSlenSKar mynDir
Baltasar Kormákur á fjórar af tíu best sóttu kvikmyndunum
2 fréttir Helgin 17.-19. júlí 2015