Fréttatíminn - 17.07.2015, Page 11
skyldum ekki bjarga bönkunum. Þessi
spurning um það hvort þeir myndu
hjálpa okkur að bjarga bönkunum kom
aldrei upp á Íslandi. Sem var ákveðinn
kostur því sennilega hefði AG ýtt mjög
fast á það að við björguðum bönkunum
með þeirra hjálp. Sem hefði getað sett
okkur í þau spor sem Grikkland er í
núna. Ríkið hefði orðið gjaldþrota og
við hefðum þurft neyðarlán aftur og
aftur. Á Íslandi gátum við fellt geng-
ið og það hafði ákveðna kosti þegar
kreppan reið yfir en ókosturinn er að
vextir hér eru hærri en annars staðar
og við fáum verðbólguskot með reglu-
lega millibili sem er mjög kostnaðar-
samt fyrir Ísland.“
„Annað sem bjargaði málunum á Ís-
landi er að við fórum inn í kreppuna
með ríkissjóð nánast skuldlausan, ólíkt
Grikklandi. Og þess vegna gátum við
gert alla þá hluti sem við gerðum. Við
vorum með fjárlagahalla upp á 15-20%
af landsframleiðslu fyrsta árið eftir
hrun sem gerði það að verkum að við
þurftum ekki að skera niður í heil-
brigðisþjónustu. Grikkir eru að skera
niður á fullu, við fórum í gegnum erf-
iðar aðgerðir en við þurftum ekki að
segja upp öðrum hverjum starfsmanni
í heilbirgðiskerfinu. Aðlögunin á Ís-
landi var miklu mildari en Grikkir eru
að horfast í augu við núna.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Þýskaland og allt evrusvæðið þarf
að hugsa mjög vandlega um hvaða
fordæmi eigi að setja í þessari erf-
iðu stöðu. Það er ekkert vafamál
að Grikkland hefur hagað sér mjög
illa í fjármálum og sjálft komið sér
í þess stöðu. Stóra spurningin er
hvort gríska ríkið eigi að taka af-
leiðingum gjörða sinna eða ekki.
Sumir telja að Norður-Evrópa eigi
að bjarga Grikklandi en það hef-
ur þann mikilvæga ókost að það
myndi skapa fordæmi fyrir því að
ríki geti hagað sér illa í fjármálum
og komist upp með það. Fordæmi
sem gæti haft áhrif á þjóðir á borð
við Ítalíu, Spán og Portúgal. Grikk-
land er lítið land og auðvitað er
sárt að horfa upp á það sem gríska
þjóðin þarf að ganga í gegnum en
það væri krísa af allt annari stærð-
argráðu ef t.d. Ítalía væri í svipaðri
stöðu.
„Í öðru lagi snýst þetta um að
nota stöðuna sem upp er komin til
að fá Grikkland til að breyta inn-
viðum síns samfélags svo þetta
gerist ekki aftur. Það er oft talað
um að krísur séu gagnlegar því
þær komi á breytingum sem ann-
ars væri erfitt að koma í gegn. Það
sem Evrópusambandið hefur gert
á þeim 60 árum sem það hefur
verið til er að bæta innviði veikari
ríkja. Einn af kostum þess fyrir Ís-
land að vera í EES er að það veit-
ir okkur aðhald, við getum ekki
hegðað okkur eins og okkur sýn-
ist, það dregur úr spillingu sem
gerir samfélagið betra. Og í þriðja
lagi eru Þjóðverjar að reyna að fá
borgað eins mikið og þeir geta til
baka. Og fyrir það fá þeir mesta
gagnrýni.“
Kreppa Íslands lítil í saman-
burði
Jón segir vanda Grikklands marg-
faldan á við það sem Íslendingar
upplifðu árið 2008. „Vandi okk-
ar á Íslandi var auðvitað minni,
að mestu leyti vegna þess að við
ákváðum að bjarga ekki bönk-
unum. Við rifum plásturinn mjög
hratt af og sögðum ekki einu sinni
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum frá því
hvað við ætluðum að gera fyrr
en við vorum búin að því að við
Stóra spurn-
ingin er hvort
gríska ríkið
eigi að taka
afleiðingum
gjörða sinna
eða ekki.
Jón Steinsson, hagfræðingur við Columbia
háskólann í New York.
fréttaskýring 11 Helgin 17.-19. júlí 2015
Framúrskarandi uppþvottavélar frá Bosch í hæsta gæðaflokki á afar
hagstæðu kynningarverði.
Orkuflokkur A+++. Sérlega hljóðlátar: 40 dB.
Sex kerfi: Sjálfvirkt 65 - 70° C, sjálfvirkt 45 - 65° C, sjálfvirkt 35 - 45° C,
sparnaðarkerfi Eco 50° C, hraðkerfi 45° C og forskolun.
Sérkerfi: Tímastytting þvottakerfa, kraftþvottur á neðri grind
og hálf vél. Fyrir 14 manna borðbúnað.
Við ábyrgjumst gæði.
Uppþvottavél, SMU 69T42SK (hvít):
Kynningarverð: 149.900 kr.
Fullt verð: 179.900 kr.
Uppþvottavél, SMU 69T45SK (stál):
Kynningarverð: 159.900 kr.
Fullt verð: 189.900 kr.
Hægt er að koma fyrir hnífapörum,
ausum, expressó-bollum og litlum
fylgihlutum í hnífaparaskúffunni. Neðri grind, eftri grind og hnífaparaskúffa.
Opið virka daga frá kl. 11 - 18.
Nýjar „topClass“
uppþvottavélar
frá Bosch