Fréttatíminn - 17.07.2015, Page 14
Ef þú hleypur 10 kílómetra notarðu
jafnmikla orku og þarf til að hafa kveikt
á einum ljósastaur í átta klukkustundir
Opið 10-17 alla daga til 30. ágúst.
Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir
Gagnvirkar orkusýningar Landsvirkjunar í Búrfelli
og Kröflu varpa ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum.
Landsvirkjun vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum
orkugjöfum; vatnsafli, jarðvarma og vindi.
Líttu við í sumar.
40 prósent
matvöru eru
tollvernduð
40 prósent af matvælum sem íslensk heimili
neyta eru vörutegundir sem eru tollvernd-
aðar og verðið á þeim er allt að 59 prósentum
hærra en í öðrum ríkjum. Viðskiptaráð og
Neytendasamtökin fagna áætlun stjór-
nvalda um afnám tolla á fatnað, skó og aðrar
vörur en hvetja þau til að afnema einnig
tolla á matvörur. Mest er tollverndin þegar
kemur að mjólkurtengdum afurðum og kjöti.
Afleiðingin er sú að hérlendis er lítið flutt inn
af þessum vörutegundum samanborið við í
nágrannalöndunum. Mjólk er niðurgreidd hér-
lendis með skattfé og því myndi afnám tolla
litlu breyta um mjólkurverð en Viðskiptaráð
metur það sem svo að verðlækkunin yrði
16 prósent fyrir vörur sem byggja á mjólk í
framleiðslu sinni, 37 prósent fyrir kjúkling,
28 prósent fyrir unnið kjöt, 28 prósent fyrir
nautakjöt, 33 prósent fyrir svínakjöt, 17
prósent fyrir egg og 16 prósent fyrir smjör.
Samkvæmt áætlun Viðskiptaráðs myndi
afnám tolla á matvæli skila meðalheimili um
76 þúsund kr. sparnaði til viðbótar á ári við
þær 30 þúsund kr. sem sparast við afnám
tolla á aðrar vörur.
Nú hefur Bjarni
Benediktsson,
fjármála- og
efnahagaráð-
herra, boðað
afnám tolla á
fatnað og skó
þann 1. janúar
2016 og annara
tolla, að matvöru
undanskilinni,
þann 1. janúar
2017. Gjaldfærðar
tekjur ríkissjóðs
af tollum námu
á árinu 2014 um
5,7 milljörðum
króna. Hlutfall
matvöru var
34,2%, hlutfall
fatnaðar 31,5%
og hlutfall
annarra vara var
34,3%.
Kíló af
brauðosti
Parmesan-
ostur
Bónus
kjúklinga-
bringur
Íslandsnaut
nautahakk
Ali
grísalund
12
Stjörnu-
egg
MS
Smjör
Með tollum Án tolla
1.450 kr/kg.
3.490 kr/kg.
1.979 kr/kg.
1.925 kr/kg.
1.998 kr/kg.
579 kr/kg.
750 kr/kg.
1.218 kr/kg.
2.932 kr/kg.
1.247 kr/kg.
1.386 kr/kg.
1.339 kr/kg.
481 kr/kg.
630 kr/kg.
Verðdæmin eru tekin úr Bónus þar sem þeir eru með stærsta markaðshlutfallið.
14 úttekt Helgin 17.-19. júlí 2015