Fréttatíminn - 17.07.2015, Side 22
Skemmtilegra að hlaupa í náttúrunni
Þóra Björg Snorradóttir er ein þeirra sem ætla að hlaupa
Laugavegshlaupið um helgina. Hún hleypur sér til skemmtunar
og til að takast á við það óvænta en á þessari 55 km leið er fjöl-
breytt landslag og allra veðra von. Aldrei hafa fleiri keppendur
skráð sig til þátttöku, 429 manns af 29 þjóðernum.
É g hafði hlaupið í nokkur ár þegar ég prófaði utanvega-hlaup og féll fyrir því. Þetta
eru langskemmtilegustu hlaupin,“
segir Þóra Björg Magnúsdóttir
sem ætlar að hlaupa Laugavegs-
hlaupið um helgina. Hlaupið er nú
haldið í nítjánda sinn og hafa aldrei
fleiri keppendur skráð sig til þátt-
töku, 429 manns af 29 þjóðernum.
Hlaupið hefst í Landmannalaugum
og því lýkur í Húsadal í Þórsmörk.
Venjan er að ganga þessa vinsælu
gönguleið á fjórum dögum en met
hlaupatími á þessari 55 km leið er 4
klukkustundir og 7 mínútur í karla-
flokki og 5 klukkustundir í kvenna-
flokki.
Hleypur á Esjuna einu sinni í viku
„Ég er mikil göngumanneskja og
hefur aldrei þótt malbikið neitt
sérlega skemmtilegt en með utan-
vegahlaupunum slæ ég tvær flugur
í einu höggi og fæ að njóta náttúr-
unnar á meðan ég hleyp. Það er
ekki bara skemmtilegra að hlaupa
utan vega, það er líka léttara. Undir-
lagið er mýkra og fer betur með
mann, allavega með mig,“ segir
Þóra Björg sem hljóp sitt fyrsta
Laugavegshlaup árið 2009 og tekur
þátt í annað sinn um helgina. Hún
segist hlaupa sér til skemmtunar
en að sjálfsögðu verði álagið mun
meira þegar verið sé að undirbúa
sig undir keppni. „Ég æfi mig með
hlaupahóp ÍR og hópurinn æfir
mikið í Heiðmörk en líka á Esjunni,
það er okkar fjall. Nokkrum vikum
fyrir keppni byrjum við að hlaupa
upp Esjuna einu sinni í viku en rétt
fyrir keppni oftar. Auðvitað er fólk í
misgóðu formi og best er að ákveða
að fara í svona keppni með góðum
fyrirvara.“
Mikil stemning í hlaupinu
„Þetta er elsta og þekktasta ut-
anvegahlaupið og það er mjög
skemmtilegt að taka þátt. Maður er
alltaf að takast á við mismunandi
aðstæður og veit í raun aldrei hvað
gerist. Núna er til dæmis mjög mik-
ill snjór á köflum. Það getur verið
brjálað veður en það getur líka ver-
ið allt of gott veður. Það er hluti af
skemmtuninni að takast á við það
óvænta. Það er gott að setja sér
markmið og svo er bara svo mikil
stemning í hlaupinu. Það eru allir
svo glaðir og ánægðir með að upp-
lifa þetta með hópnum. Þetta er ekk-
ert nema gleði.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Búnaður:
Á hálendinu er
betra að vera
vel búin þar sem
veðrabreytingar
geta verið snarp-
ar. Gott er að hafa
léttan bakpoka í
lengri vegalengdir
fyrir öryggis-
búnað, nesti og
hlífðarfatnað.
Langerma
bolur og síðbuxur,
hlaupajakki,
höfuðbún-
aður, vettlingar,
neoprensokkar og
skóhlífar.
Góðir hlaupa-
skór fyrir styttri
vegalengdir en
ráðlagt er að
fjárfesta í „trail“
hlaupaskóm fyrir
lengri vegalengdir
utan vega.
Fleiri utanvega-
hlaup í sumar:
n 24. júlí
Fáskrúðsfjarðar-
hlaupið
10 / 21 km
n 25. júlí
Hengill Ultra
24 / 50 / 81 km
n 25. júlí
Fjögurra skóga
hlaupið
4 / 10 / 17 / 30 km
n 01. ágúst
Barðsneshlaupið
13 / 27 km
n 08. ágúst
Jökulsárhlaupið
13 / 20 / 32 km
Þóra Björg Snorradóttir ætlar að hlaupa 55 km í Laugavegshlaupinu um helgina. Búast má við öllu af íslenska veðrinu og geta hlauparar búist við snjó á fyrstu 18 km leiðarinnar. Íslenskir þátt-
takendur eru 219 talsins og þátttakendur frá öðrum löndum 210, en þátttakendur í hlaupinu eru af 29 mismunandi þjóðernum.
Gæði fara aldrei úr tísku
Hitastýrð
blöndunartæki
Stílhrein og
vönduð
22 hlaup Helgin 17.-19. júlí 2015