Fréttatíminn - 17.07.2015, Page 30
MEXICO,
GUATEMALA &
BELIZE
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
4. - 19. OKTÓBER
Verð kr. 568.320.-
Innifalið í verði: Flug, hótel, allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri
Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralífi og hinum forna
menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. píramída, gamlar
menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims
og upplifum regnskóginn. Endum svo álúxus hóteli við Karabíska,
þar sem allt er innifalið.
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
Hobby prestige 560
UKF 2015, með ALDE
hitakerfi, alltaf heitt
vatn.
Verð 4.980þ, kostar í
umboði 5.400þ.
Upplýsingar í síma 893-2878.
Nýtt hjólhýsi með koju til sölu
Minnisleikurinn
Hérna reynir á minnið hjá ferðafélögunum.
Bílstjórinn byrjar á orðunum „Ég er að fara
upp í sveit og ég ætla taka með mér...”
og nefnir hann einhvern hlut sem hann
vill taka með. Næsti þátttakandi þarf svo
að segja alveg það sama og sá fyrri en
bæta einum nýjum hlut við listann. Þannig
heldur svo listinn áfram að verða lengri
og lengri og sá tapar sem er fyrstur til að
gleyma einhverju á listanum.
Stafaleikurinn
Fyrst þarf að velja einhvern skemmtilegan
flokk, til dæmis dýr, kvikmyndir, manna-
nöfn eða bílategundir. Veljið svo einn sem
byrjar að nefna nafn á einhverju í þeim
flokki og sá næsti þarf að nefna annað
nafn sem endar á þeim
staf sem það fyrra
byrjaði á. Dæmi
um slíkt gæti til
dæmis verið í
flokknum dýr
þar sem fyrsti
aðilinn nefnir
orðið „hundur“ sá næsti þarf
þá að nefna eitthvað dýr sem
byrjar á „r“ þar sem það er
síðasti stafurinn í orðinu.
Sá aðili gæti þá til dæmis
nefnt „risaeðlu“ og svo koll
af kolli.
Hver er maðurinn
Leikur sem flestir þekkja
og stendur alltaf fyrir sínu.
Tveir eða fleiri geta tekið
þátt. Einn byrjar á að hugsa sér mann
og hinir reyna að komast að því hver
maðurinn er með því að spyrja einungis
spurninga sem hægt er að svara með jái
eða neii. Þegar svarið er fundið kemur að
næsta ferðalangi að hugsa sér mann.
Bílalitaleikurinn
Leikmenn velja sér lit og telja svo bílana
sem mætt er á veginum í þeim lit. Gott er
að velja ákveðin tímamörk eða vegalengd
sem leikurinn á að standa yfir. Sá sigrar
sem talið hefur flesta bíla í sínum lit.
Frúin í Hamborg
Þátttakendur eru tveir og byrjar annar á
því að spyrja hinn: „Hvað keyptirðu fyrir
peningana sem frúin í Hamborg gaf þér í
gær?“ Sá sem svarar má ekki segja svart
og hvítt, já eða nei. Hann þarf að nefna
eitthvað sem hann þykist hafa keypt og
síðan eiga leikmenn að tala saman um
það sem hann segist hafa keypt.
Spyrjandinn reynir að fá hinn til að
segja bannorðin því þá er hann
búinn að vinna leikinn. Til að
gera leikinn flóknari má bæta
við bannorðum, t.d. „það“. Það
er mjög erfitt að nota aldrei
„það“ orð í leiknum.
Grámyglur tvær
Störukeppni fyrir aftursætisfarþegana
sem felst í því að leikmenn eru tveir og
sitja hvor á móti öðrum og horfast í augu.
Þeir fara með eftirfarandi þulu:
Horfumst við í augu sem grámyglur tvær.
Sá skal vera músin sem fyrst mælir,
kötturinn sem sig skælir,
fíflið sem fyrst hlær,
folaldið sem fyrst lítur undan
og skrímslið sem fyrst skína lætur í tenn-
urnar.
Síðan hefst keppni þeirra á milli um hvor
verður á undan að bregða svip eins og
þulan segir til um.
Nærbuxurnar hans afa
Einn er hann í einu og hinir leikmennirnir
spyrja hann ýmissa spurninga. Hann á
alltaf að svara með því að segja „Nær-
buxurnar hans afa“ án þess að brosa eða
hlæja. Ef það tekst ekki tekur næsti leik-
maður við af honum og svo koll af kolli.
Skemmtilegar sam-
verustundir í bílnum
Bílferðir eru óhjákvæmilegur hluti af sumarfríinu hjá flestum fjölskyldum. Það getur reynst erfitt
fyrir yngstu kynslóðina að sitja kyrr í bílnum til lengri tíma og því getur verið gott að hafa nokkra
góða leiki til að grípa í til að stytta þeim stundir. Hér má líta á nokkrar hugmyndir að góðum
leikjum sem fólk á öllum aldri getur haft gaman af.
Myndir/Shutterstock
30 útihátíðir Helgin 17.-19. júlí 2015