Fréttatíminn - 17.07.2015, Qupperneq 40
40 matur & vín Helgin 17.-19. júlí 2015
Ástralir kunna manna best að leika kúnstir sínar við grillið enda nokkrum gráðum
heitara þar í landi að meðaltali en hér. Jólin í Ástralíu eru yfir hásumarið og leggja
andfætlingar okkar mikið upp úr grillmatnum á þessum hátíðartíma. Við getum
fengið lánaðar nokkrar hefðbundnar jólauppskriftir hjá þeim til að prófa hér um
hásumarið okkar en vinsælast er að grilla kjúkling, svínakjöt og risarækjur.
Grillað að áströlskum sið
Grillaður svínahryggur
Hráefni:
Heill svínahryggur
Rauðvínsedik
Græn ólívuolía
Sætkartöflu- og engifermauk:
4 sætar kartöflur
Engiferrót - um hálfur þumall að stærð
50 g smjör
Salt og pipar
Aðferð:
n Fjarlægið skinnið af svínahryggnum
með því að fara með hníf undir það.
n Skerið tígla í skinnið, passið ykkur á
að skera ekki í gegn.
n Nuddið skinnið með sjávarsalti og
rauðvínsediki.
n Setjið skinnið í eldfast mót í ofn á
200ºC í 30 mínútur.
n Berið puruna fram með svínahryggn-
um þegar hann er borinn fram, klippið í
bita með skærum.
n Skerið hrygginn í sneiðar og kryddið
með salti og pipar. Nuddið með ólívuolíu
og grillið í um 5 mínútur á hvorri hlið.
Látið standa í 5 mínútur áður en borið
er fram.
Maríneraðar
risarækjur
Hráefni:
1/2 bolli brætt smjör
1/4 bolli ólívuolía
1/4 bolli ferskar kryddjurtir (t.d.
steinselja og tímían), saxaðar
3 matskeiðar ferskur sítrónusafi
3 stór hvítlauksrif, marin
1 matskeið smátt skorinn skallot-
laukur
salt og pipar
700 g risarækja, ópilluð
Til skrauts:
spínatlauf
sítrónusneiðar
Eldunaraðferð:
Blandið öllu nema rækjunum saman
í stóra skál. Hrærið rækjurnar saman
við. Marinerið við stofuhita í klukku-
stund eða í ísskáp í 5 klukkustundir,
hrærið í við og við.
Hitið grillið upp í meðalhita. Þræðið
rækjurnar upp á spjót. Grillið þangað
til rækjurnar eru rétt orðnar appels-
ínugular, um 2 mínútur á hvorri hlið.
Setjið spínatlauf á diskinn og leggið
spjótin ofan á. Skreytið með sítrónu-
sneiðum og berið fram.
Rif í rommi og kóki
2 raðir af svínarifjum
Marínering:
1 bolli af rommi
2 dósir kók
300 ml tómatsósa
Tabasco-sósa - ein eða tvær slettur
2 hvítlauksrif
4 msk hoisin-sósa
Blandið öllu saman og setjið yfir rifin.
Hyljið með plastfilmu og geymið í ísskáp
yfir nótt.
Næsta dag:
n Vefjið inn í álpappír - ásamt maríner-
ingunni - og eldið á grilli með loki á um
160ºC í eina og hálfa klukkustund. Snúið
rifjunum einu sinni á meðan á eldun
stendur.
n Takið rifin úr álpappírnum - og
maríneringunni (ekki henda henni) - og
setjið á heitt grill í fimm mínútur á hvorri
hlið til að fá karmelíserað grillbragð.
n Sjóðið maríneringuna niður og hellið
yfir rifin áður en þau eru borin fram.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Bræðir þig
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Koparáhöld eru ekki bara snotur. Kopar hefur
óviðjafnanlega leiðni, dreifir varma haganlega og
dregur fram seiðandi bragð. De Buyer hefur búið
til eldhúsamboð frá 1830 og þar á bæ vita menn að
koparpottarnir þeirra eru pottþétt meistaraverk.
Þess vegna lofa þeir lífstíðarábyrgð.