Fréttatíminn - 17.07.2015, Side 46
Perspi
Guard
Bakteríusápa
og svitastoppari
Dreifing: Ýmus ehf
Fæst í apótekum
Til meðhöndlunar á
lyktarvandamálum
vegna ofsvitnunar.
Síðumúla 21 | S: 537-5101 | Snuran.is
Opið virka daga 11-18 og laugardaga 12-16
ÚTSALA
20-50% afsláttur af
útsöluvörum
B enny Greb hefur undanfarin ár slegið í gegn á heimsvísu og ferðast um heim allan
þar sem hann hefur ýmist komið
fram einsamall eða með hljómsveit,
stundað kennslu, haldið námskeið,
fyrirlestra og fleira. Stíll Benny
Greb einkennist af ástríðu og er
ákaflega músíkalskur. „Hann hef-
ur veitt ótal trommuleikurum um
heim allan innblástur og hvatningu
og má með sanni segja að tromm-
arasamfélagið á Íslandi sé upprif-
ið yfir komu hans,“ segir Andrés
Helgason, einn skipuleggjenda tón-
leikanna.
Undanfarið hefur Benny verið að
ferðast með hljómsveit sinni Moving
Parts og þýska jazztónlistaramann-
inum Nils Wuelker. Einnig hefur
hann verið að leika með þýsku NDR
sjónvarpssveitinni og Stewart Copel-
and fyrrverandi trommuleikara The
Police. Benny hefur einnig komið
fram á mörgum af virtustu trom-
muhátíðum heims, til dæmis Mod-
ern Drummer festival, Montreal
Drum festival, China Drum Summit
og á ráðstefnu Percussive Arts So-
ciety í tvígang. Benny fæst einnig
við tónsmíðar og upptökustjórn og
hefur gefið út sólóplötur með sveit
sinni Grebfruit ásamt hljómsveit-
unum Benny Greb Brassband &
TwoDayTrio. Árið 2009 gaf Benny út
DVD-kennsludisk í trommuleik, The
Language of Drumming, sem er enn
þann dag í dag einn söluhæsti DVD-
kennsludiskur í trommuleik í heim-
inum. Í byrjun þessa árs gaf Benny
út nýjan disk, The Art and Science of
Groove, sem hefur þegar verið val-
inn besti kennsludiskur í trommu-
leik af hinu virta tímariti Drums &
Percussion.
Þrír íslenskir trommuleikarar
munu hita upp fyrir Benny á tón-
leikunum en það eru þeir Bene-
dikt Brynleifsson, Einar Scheving
og Halldór Lárusson og hafa þeir
sett saman verk sérstaklega fyrir
þetta tilefni. Tónleikarnir fara fram
í sal FÍH, Rauðagerði 27 og hefjast
klukkan 15. Miðar eru fáanlegir í
Tónastöðinni, Skipholti 50b og við
innganginn.
Unnið í samstarfi við
Tónastöðina
Heimsþekktur trommari sækir Ísland heim
Trommuleikarinn Benny
Greb heldur tónleika í FÍH á
morgun, laugardag. Benny er
einn þekktasti trommuleikari
heims um þessar mundir og
hefur einnig gefið út vinsælt
kennsluefni fyrir trommara.
Benny Greb kemur fram á tónleikum í FÍH á morgun, laugardag. Miðar eru fáanlegir
í Tónastöðinni og við innganginn.
Trommararnir Einar Scheving, Halldór Lárusson og Benedikt Brynleifsson munu hita
upp fyrir Benny Greb.
SöngvaBorg 15 ára
Tíminn
líður bara
svo hratt
Söngvaborg þeirra Siggu
Beinteins og Maríu Bjarkar
byrjaði sem einhver tilraun
árið 2000. Nú 15 árum síðar
eru komnir út sex DVD diskar
og sá sjöundi á leiðinni. Um
helgina verður haldið upp á
afmælið með stórglæsilegri
dagskrá í Húsdýragarðinum
sem fagnar 25 ára afmæli á
þessu ári. Sigga Beinteins seg-
ir þetta hafa verið skemmtileg
15 ár og magnað að í dag séu
fyrstu áhorfendurnir fullorðið
fólk nánast.
S öngvaborg er 15 ára og samt eldist maður ekki neitt,“ segir Sigga Beinteins sem byrjaði
á Söngvaborg ásamt Maríu Björk
árið 2000. „Maður er alltaf á sama
aldri en tíminn líður bara svo hratt.
Krakkarnir sem hlustuðu og tóku
þátt fyrst eru orðin fullorðið fólk,“
segir hún. „Við ætlum einmitt að fá
nokkur af þeim á sjöunda diskinn
sem kemur út í haust. Það eru nefni-
lega krakkar sem tóku þátt í byrjun
sem eru enn að syngja,“ segir Sigga.
„Við greinilega smituðum þau af
áhuganum. Okkur grunaði aldrei að
þetta yrðu fimmtán ár eða meira þeg-
ar við byrjuðum. Við hugsuðum bara
eina plötu í einu,“ segir hún. „Nú
erum við búnar að gera sex borgir,
nánast annaðhvert ár, sem er alveg
ótrúlegt,“ segir hún. „Þetta er til á
nánast hverju heimili og við hittum
oft foreldra sem segjast vera komn-
ir með nóg af okkur,“ segir hún og
hlær. „En börnin þeirra elska þetta
sem betur fer og allir foreldrar eru
líka þakklátir fyrir okkur þar sem
við höfum leyst af barnapíurnar.
Börnin horfa aftur og aftur. Það er
sama sagan með mín börn, þau horfa
á þetta allt saman og oft, svo maður
hefur gert eitthvað rétt,“ segir Sigga.
„Sjöunda borgin kemur í haust og
við erum að vinna hana núna og svo
var að koma út geisladiskur núna
með öllum bestu lögunum úr mynd-
unum. Diskur sem krakkarnir geta
hlustað á í sumarfríinu,“ segir hún.
„Tókum bara bestu lögin sem krakk-
arnir elska og settum á disk. Á laug-
ardaginn verður allsherjar afmæl-
ishátíð í Húsdýragarðinum og það
er skemmtileg tilviljun að garðurinn
er að halda upp á 25 ára afmæli sitt
um þessar mundir líka,“ segir Sigga.
„Það verður dagskrá um allan garð
frá kl 10 um morguninn og til lok-
unar. Dagskráin okkar byrjar svo
á stóra sviðinu kl 14.00,“ segir hún.
„Með okkur verða allir sem hafa
verið með okkur í Söngvaborginni.
Masi, Lóa ókurteisa, Subbi sjóræn-
ingi og meira að segja Georg sem
var með okkur einu sinni, þau verða
öll þarna. Svo verður hún Alda Dís
úr Ísland Got Talent, BMX Bros og
fullt af ungum og efnilegum söngv-
urum sem verða með okkur á næsta
diski. Dagskráin er um allan garð
frá opnun til lokunar. Það eru m.a
hestateymingar og kanínuklapp og
alls kyns uppákomur svo það verður
mikið um að vera á laugardaginn,“
segir Sigga Beinteins.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
María og Sigga hafa skemmt börnum í 15 ár.
46 menning Helgin 17.-19. júlí 2015