Fréttatíminn - 17.07.2015, Side 48
Í takt við tÍmann Ólafur Ásgeir JÓnsson
Útilegur, þjóðhátíð og Blikaleikir í sumar
Ólafur Ásgeir Jónsson er 21 árs Kópavogsbúi sem vinnur sem sölumaður hjá Nova virka daga en stendur vaktina á
FM957 um helgar. Hann er mikill Netflix-maður og er gallharður stuðningsmaður Breiðabliks. Hann fer oft í bíó en
veit stundum ekkert á hvaða mynd hann er að fara.
Ég er að vinna hjá Nova við það að selja
síma og um helgar er ég á FM957. Ég er
milli 13 og 16 á laugardögum og frá 14 til
18 á sunnudögum. Ég hef verið þar í eitt ár
núna og hef mjög gaman af. Þess á milli
fer ég í golf.
Staðalbúnaður.
Ég er mikið í svörtum gallabuxum. Það
eiga allir strákar svartar gallabuxur. Mikið
af Converse skóm. Ég á æðislega mikið af
Converse skóm. Svo finnst mér líka gott að
vera í Nike Free Run eins og allir eiga. Mér
finnst rosalega gaman að klæða mig upp
á og vinir mínir þola það ekki þegar þeir
þurfa að bíða eftir mér þegar við erum að
fara eitthvað. Ég máta yfirleitt allan fata-
skápinn þegar ég er að fara eitthvað. Ég er
alger kvenmaður þegar kemur að þessu og
viðurkenni það bara fúslega. Ég er eins og
flestir aðrir Íslendingar og versla mest af
fötunum mínum erlendis, en hérna heima
fer ég þó reglulega í Herragarðinn, Kúltúr
og Levi´s búðina.
Hugbúnaður.
Ég á racer reiðhjól og hjóla mjög mikið.
Ég fer mikið í golf og svo eyði ég rosalega
miklum tíma með Kristínu Rut systur
minni sem vinnur með mér á FM. Ég er
rosalega lítill kaffihúsamaður og fer frekar
eitthvað út í sveit en að hanga á kaffihúsi.
Þegar ég fer að djamma með vinunum þá er
það B5 sem verður alltaf fyrir valinu. Mér
finnst American Bar líka skemmtilegur.
Ég horfi mikið á Netflix og horfi mikið á
heimildarmyndir, þó ég viti kannski ekk-
ert rosalega mikið. Ég er að klára Sons of
Anarchy núna og mér finnst það frábærir
þættir og líka Breaking Bad. Ég fer reglu-
lega í bíó með strákunum og einn vinur
minn er mikill iMDB maður og hann fær
yfirleitt að ráða á hvaða myndir við förum.
Stundum veit ég ekkert á hvaða mynd ég
er að fara þegar ég sest í sætið. Ég veit bara
að ef hann segir myndina góða þá hlýtur
hún að vera góð. Ég er Arsenal-maður og
Bliki og ég fylgist miklu meira með ís-
lenska boltanum en þeim enska. Ég mæti
á alla Blikaleiki og er í stuðningsmanna-
sveitinni Kópacabana.
Vélbúnaður.
Ég er með Macbook Pro og iPhone 6+ og
er alger Apple maður. Ég gæti ekki bjargað
lífi mínu í Windows og PC. Ég hef mjög
gaman af Instagram og er svona nýbyrj-
aður á Twitter (@olafurasgeir), sem mér
finnst skemmtilegt. Svo er ég mikið flug-
nörd og skoða Flight Radar 24. Þar finnst
mér gaman að fylgjast með flugumferð.
Svo er það Golfshot fyrir golfið og Strava
fyrir hjólið. Það er líka hægt að nota það í
hlaup en ég er minna í því.
Aukabúnaður.
Pabbi minn á sumarbústað í Skorradal og
þar finnst mér best að vera. Hann á sér það
leyndarmál að vera besti kokkur sem ég
veit um. Allt sem hann gerir er gott. Ann-
ars er ég mikill aðdáandi heimilismatar
og finnst mjög gott að fá kjöt í raspi hjá
mömmu, með Bernaisesósu. Það er ávís-
un á góðan mat. Ég er alveg laus við það
að lesa bækur og hef ekki komist upp á lag
með það. Ég ætla að taka sumarfríið mitt
í nóvember og fara til Flórída með systur
minni og vinum okkar. Við ætlum að keyra
þar um og hafa það gott. Ég ákvað að taka
ekki frí fyrr en Pepsideildin klárast í októ-
ber. Annars ætla ég í útilegur og á þjóðhá-
tíð í sumar. Svo ætla ég á torfærukeppni í
ágúst og nýta þetta stutta sumar sem er
eftir hjá okkur. Ég er á því að sumarið sé
búið eftir menningarnótt í Reykjavík.
Lights on the Highway kveðja í bili á Húrra á laugardag. Ljósmynd/Björn Árnason
Árið 2005 gaf hljómsveitin Lights
on the Highway út sína fyrstu plötu
sem var samnefnd hljómsveitinni.
Af því tilefni ætlar sveitin að fagna
10 ára útgáfuafmæli á laugardag-
inn á veitingastaðnum Húrra en þá
eru liðin slétt 10 ár frá útgáfu plöt-
unnar. Þetta verða jafnframt síðustu
tónleikar hljómsveitarinnar í sumar
sem og þeirra síðustu í ófyrirséð-
an tíma. LOTH hefur verið iðin við
tónleikahald síðustu vikur og komið
meðal annars fram á Eistnaflugi á
Neskaupstað og á Græna hattinum
á Akureyri. Önnur plata sveitarinn-
ar, Amanita Muscaria kom út árið
2009 og fékk lofsamlega dóma, en
skömmu síðar lagðist Lights on
the Highway af. Mjög góður rómur
hefur verið gerður að tónleikum
þeirra að undanförnu og á sveitin
sér marga aðdáendur um allt land.
Þetta er síðasta tækifærið í bili að
bera þá drengi augum. Meðlimir
Lights on the Highway eru Kristófer
Jensson, söngvari. Agnar Eldberg,
gítarleikari. Karl Daði Lúðvíksson,
bassaleikari. Þórhallur Stefánsson,
trommuleikari og Stefán Örn Gunn-
laugsson píanóleikari. Tónleikarnir
á Húrra hefjast kl 22.00 og verður
húsið opnað klukkustund fyrr.
Miðasala er á tix.is og við hurðina,
og er miðaverð 2.000kr.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Síðustu tónleikarnir... í bili
afmælistÓnleikar
48 dægurmál Helgin 17.-19. júlí 2015