Fréttatíminn - 17.07.2015, Qupperneq 56
Símamótið 2015 Helgin 17.-19. júlí 20154
Hvað hefur þú þjálfað knattspyrnu
lengi?
Ég hef þjálfað knattspyrnu í níu ár.
Ég hef þjálfað bæði kyn í flestum
aldursflokkum frá 6 ára upp í meist-
araflokk og landslið.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
það að vera knattspyrnuþjálfari?
Það sem gefur hvað mest er að sjá
leikmann sem maður hefur þjálf-
að taka framförum og ná sínum
markmiðum. Það er einnig mjög
skemmtilegt að búa til lið, lið sem
stefnir á eitthvað í sameiningu og
tekst á við allar þær hindranir sem
verða á leiðinni í sameiningu. Þegar
þannig lið er byggt upp jafnast ekk-
ert á við tilfinninguna sem fylgir því
að ná sameiginlegum markmiðum.
Hefur þú fylgst með Símamótinu eða
tekið þátt sem þjálfari?
Símamótið fer ekki framhjá nein-
um sem kemur að knattspyrnu á Ís-
landi. Mótið er gríðarlega stórt og
litríkt. Þar skín gleðin úr andlitum
iðkenda og foreldrum þeirra. Ég
hef sjálfur farið á mótið sem þjálf-
ari og var það frábær upplifun, ég á
margar góðar minningar frá þessu
frábæra móti.
Hvaða ráð getur þú gefið ungum,
upprennandi knattspyrnustelpum
sem eru að keppa á Símamótinu?
Ég vil hvetja alla leikmenn til þess
að mæta til leiks með það að mark-
miði og leggja sig 100% fram, gera
eins vel og mögulegt er innan vall-
ar sem utan. Mikilvægt er að allir
leggi hart að sér við að skapa góða
liðsheild og skapa minningar sem
fara með hópnum inn í framtíðina.
Njótið leiksins og alls sem honum
fylgir.
Hvernig sérðu kvennaknattspyrnu á
Íslandi þróast næstu árin?
Íslensk knattspyrna mun halda
áfram að þróast og verða betri á
næstu árum. Við munum vonandi
sjá A-landsliðið kvenna á EM 2017 í
Hollandi þar sem skærustu stjörnur
okkar munu láta ljós sitt skína.
Knattspyrna kvenna mun verða
meira áberandi á heimsvísu á næstu
árum, leikurinn er að verða hraðari
með hverju árinu, leikmenn tækni-
lega betri og góðum leikmönnum
alltaf að fjölga og því er kvenna-
knattspyrnan að jafnast og leik-
irnir í takt við það. Góðir leikmenn,
áhugaverðar persónur, spennandi
leikir þar sem hart er tekist á vekja
athygli og þess vegna er knatt-
spyrna kvenna að verða vinsælli.
Við þurfum að leggja okkur fram
við að halda okkur í fremstu röð og
búa til stjörnur framtíðarinnar. Það
kostar mikla vinnu að vera meðal
þeirra bestu. Við getum verið þar,
við getum átt stórstjörnur fram-
tíðarinnar.
Framtíðin er björt
Hvað hefur þú þjálfað knattspyrnu
lengi?
Ég hef þjálfað síðan 1994. Fyrsta
árið mitt hjá Víkingi, svo 10 ár hjá
Breiðabliki, þá 3 ár með KR og er
á mínu sjöunda ári hjá Breiðabliki.
Ég hef þjálfað alla flokka karla og
kvenna á þessum 20 árum nema
held ég 5. flokk drengja og stúlkna.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
það að vera knattspyrnuþjálfari?
Samskiptin við leikmennina eru
mest gefandi. Að taka þátt í sigr-
um þeirra og ósigrum ásamt því
að fylgjast með þeim vaxa og dafna
innan vallar sem utan.
Hefur þú fylgst með Símamótinu eða
tekið þátt sem þjálfari?
Sem þjálfari hjá Breiðabliki í fleiri
ár þá hef ég séð mótið vaxa og dafna
og verða stærra og skemmtilegra
með hverju árinu.
Hvaða ráð getur þú gefið ungum,
upprennandi knattspyrnustelpum
sem eru að keppa á Símamótinu?
Að halda áfram að æfa sig vel og
hafa gaman, það mun skila þeim
langt.
Hvernig sérðu kvennaknattspyrnu á
Íslandi þróast næstu árin?
Hún mun halda áfram að vaxa og
dafna. Æ fleiri stelpur æfa fótbolta
og það á líka eftir að skila sér hvað
þær byrja að æfa ungar. Gæðin
eiga bara eftir að aukast á komandi
árum.
Hvað hefur þú þjálfað knattspyrnu
lengi?
Ég byrjaði að þjálfa haustið 2006.
Þá tók ég við sem yfirþjálfari yngri
flokka ÍA og þjálfaði með því 4.
flokk kvenna og 4. flokk karla fyrstu
tvö árin. Einnig hef ég frá þeim tíma
þjálfað meistaraflokk karla ÍA í 4 ár,
3. flokk kvenna í 2 ár og meistara-
flokk kvenna ÍA síðan á miðju sumri
2014.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
það að vera knattspyrnuþjálfari?
Að sjá leikmenn bæta sig jafnt
og þétt og að sjá leikmenn ég hef
þjálfað verða að meistaraflokksleik-
mönnum, landliðsmönnum/konum
og atvinnumönnum/konum. Og
vinna leiki auðvitað.
Hefur þú fylgst með Símamótinu eða
tekið þátt sem þjálfari?
Ég hef aldrei tekið þátt í því sem
þjálfari. En ég hef vissulega fylgst
vel með Símamótinu frá því að ég
byrjaði að þjálfa árið 2006. Síðan
á ég eina stelpu sem heitir Katrín
Þóra sem er á níunda ári og spil-
ar hún með ÍA. Ég hef verið með
henni á síðustu fjórum mótum og
bíð spenntur eftir því fimmta nú í ár.
Hvaða ráð getur þú gefið ungum,
upprennandi knattspyrnustelpum
sem eru að keppa á Símamótinu?
Númer eitt: Verið duglegar og sam-
viskusamar að æfa fótbolta, mætið
alltaf á æfingar með því hugarfari
að ég ætla að bæta mig í dag. Æfið
með bros á vör og hafið gaman af.
Það er mikilvægt að hafa gaman
af því sem maður gerir og munið
að vera duglegar að æfa aukalega
sjálfar. Það skilar árangri.
Hvernig sérðu kvennaknattspyrnu á
Íslandi þróast næstu árin?
Framtíðin er björt, við eigum gott
A-landslið kvenna sem og yngri
landslið. Stelpurnar í A-landsliðinu
ætla sér að komast í næstu úrslita-
keppni Evrópu. Vonandi komumst
við svo í framhaldi af því í næstu
úrslitakeppni heimsmeistaramóts-
ins. Pepsí deild kvenna hefur sjald-
an verið betri en í ár, þar eru mjög
margir frambærilegir leikmenn þar
á ferð. Stelpurnar eru að bæta sig ár
frá ári og eru þær farnar að leggja á
sig gríðarlega mikla vinnu.
Landsliðsþjálfarar U-17, U-19 og A-landsliðs kvenna eru á einu máli um að framtíð kvenna-
knattspyrnu á Íslandi sé afar björt. Þeir Úlfar, Þórður og Freyr hafa allir fylgst með Síma-
mótinu í gegnum árin og eru sammála um samviskusemi og leikgleði séu mikilvægir þættir
ef ætlunarverkið er að ná langt í knattspyrnuheiminum.
Úlfar Hinriksson
Starf: Landsliðsþjálfari U-17 stúlkna,
þjálfari í 3. flokki drengja. Sviðs-
stjóri afrekssviðs knattspyrnudeildar
Breiðabliks.
Aldur: 43 ára.
Menntun: Íþróttakennari og UEFA A
þjálfari.
Þórður Þórðarson
Starf: Landsliðsþjálfari U-19 kvenna.
Þjálfari meistaraflokks kvenna ÍA.
Aðalstarf er hjá fjölskyldufyrirtækinu
okkar, Bifreiðastöð Þ.Þ.Þ Akranesi.
Starf: 43.ára.
Menntun: KSÍ A leyfi.
Freyr
Alexandersson
Starf: Knattspyrnuþjálfari A-landsliðs-
kvenna og þjálfari meistarflokks Leiknis
í Pepsi-deildinni.
Aldur: 32 ára.
Menntun: Íþróttafræðingur.