Fréttatíminn - 17.07.2015, Síða 58
Símamótið 2015 Helgin 17.-19. júlí 20156
Systur streyma á Símamótið
Í ár keppa í kringum 2000 stelpur á Símamótinu og þeirra á meðal er fjöldinn allur af eldhressum systrum. Sumar eru að keppa í fyrsta skipti en aðrar eru að keppa á sínu
sjötta móti. Samvera með vinkonum og skemmtileg kvöldvaka eru efst á lista yfir hvað heillar mest við Símamótið.
Laufey Pálsdóttir 11 ára
Lára Pálsdóttir 12 ára
Lið: Breiðablik.
Hversu oft hefur þú tekið þátt í Síma-
mótinu?
Laufey: Ég er að fara að keppa í
fjórða sinn á Símamótinu.
Lára: Ég er orðin of gömul til að
keppa en ég keppti fjórum sinnum
á Símamótinu.
Hvað er skemmtilegast við Síma-
mótið?
Laufey: Mér f innst allt mjög
skemmtilegt v ið Símamótið.
Skemmtilegast að fá tækifæri til að
spila fótbolta við mörg lið og svo er
alltaf fullt af fólki og svaka stemn-
ing á kvöldvökunni.
Lára: Mér fannst allt skemmtilegt.
Kvöldvakan er mjög skemmtileg og
það er líka alltaf skemmtilegt þeg-
ar pressuliðið og landsliðið eru að
spila.
Átt þú þér fyrirmynd í knattspyrnu-
heiminum?
Laufey: Allar stelpurnar í íslenska
landsliðinu en helst Fanndís Frið-
riksdóttir.
Lára: Ég á í raun enga sérstaka fyr-
irmynd en Sara Björk og Margrét
Lára eru uppáhaldsleikmennirnir í
íslenska landsliðinu og svo er Messi
líka ofarlega á listanum.
Átt þú þér uppáhaldslið í fótbolta?
Laufey: Breiðablik, Manches-
ter United, Barcelona og íslensku
landsliðin
Lára: Já, Barcelona er allavega eitt
af uppáhaldsliðunum mínum, það
er svo gaman að sjá hvað liðið spilar
vel saman og hversu hraður boltinn
er.
Ásdís Valtýsdóttir 13 ára
Nína Margrét Valtýsdóttir 11 ára
Ágústa María Valtýsdóttir 7 ára
Lið: Valur.
Hversu oft hefur þú tekið þátt í Síma-
mótinu?
Ásdís: Fimm sinnum
Nína Margrét: Fjórum sinnum
Ágústa María: Fjórum sinnum
Hvað er skemmtilegast við Síma-
mótið?
Ásdís: Félagsskapurinn og að spila
við öll þessi frábæru lið
Nína Margrét: Að vera með stelp-
unum í liðinu og spila erfiða leiki.
Ágústa María: Að spila svona
marga leiki.
Átt þú þér fyrirmynd í knattspyrnu-
heiminum?
Ásdís: Eiður Smári og Margrét
Lára.
Nína Margrét: Dóra María, Kristín
Ýr og Eiður Smári.
Ágústa María: Elín Metta, Dóra
María, Kristín Ýr og Gylfi Þór.
Átt þú þér uppáhaldslið í fótbolta?
Ásdís: Manchester United.
Nína Margrét: Manchester United
og Valur.
Ágústa María: Manchester United
og Valur.
Laila Þóroddsdóttir 14 ára
Högna Þóroddsdóttir 7 ára
Lið: Stjarnan.
Hveru oft hefur þú tekið þátt á Síma-
mótinu?
Laila: Sex sinnum og hefði viljað vera
miklu oftar.
Högna: Einu sinni þegar ég var í 8.
flokki og verð svo aftur með núna í
sumar.
Hvað er skemmtilegast við Símamótið?
Laila: Að keppa, sérstaklega þegar
gengur vel og svo stemningin á mótinu.
Högna: Að spila leiki, mér finnst gam-
an þegar ég er að keppa á móti öðrum
stelpum.
Átt þú þér fyrirmynd í knattspyrnuheim-
inum?
Laila: Fyrirmyndir mínar eru Freyr
Bjarnason bróðir hans pabba sem var
í FH og svo Ísold Kristín Rúnarsdóttir,
frænka mín sem er tveimur árum eldri
en ég og spilar með Val.
Högna: Tóti þjálfarinn minn er fynd-
inn gabbari og svo Laila stóra systir
mín sem er rosalega góð í fótbolta. Og
líka Luis Suárez.
Átt þú þér uppáhaldslið í fótbolta?
Laila: Ég held mest með Stjörnunni
hér heima og Arsenal, enda heldur öll
föðurfjölskyldan mín með því liði.
Högna: Stjarnan, FH, Barcelona og
Arsenal
Lífið er fótbolti!
www.sogurutgafa.is
Bókin um fremstu
fótboltakonur
heims er komin út!