Fréttatíminn - 17.07.2015, Page 64
Símamótið 2015 Helgin 17.-19. júlí 201512
„Allt er hægt ef
viljinn er fyrir hendi“
Jasmín Erla Ingadóttir og Andrea Mist Pálsdóttir eru báðar liðsmenn í U-17 ára landsliði
kvenna. Þær segja að þátttaka þeirra í úrslitakeppni EM U17 fyrr í sumar hafi verið mikil
reynsla og góður undirbúningur fyrir fleiri stórmót, sem þær stefna að sjálfsögðu á. Síma-
mótið var eitt af þeirra fyrst mótum og eiga þær báðar stórskemmtilegar minningar frá því.
Hvað hefur þú æft fótbolta lengi?
Þetta er 11. árið mitt.
Hversu oft hefur þú tekið þátt í Síma-
mótinu?
Fimm sinnum.
Áttu einhverja skemmtilega sögu frá
Símamótinu?
Uppáhalds mómentið var auðvitað þegar
ég var valin í pressulið Símamótsins og
það var algjör hápunktur að spila fyrir
framan fulla stúku. Einnig er eftirminni-
legt að liðið mitt fékk verðlaun sem prúð-
asta liðið, ég man hvað okkur fannst það
æðislegt.
Hvernig var að taka þátt í úrslitakeppni EM
U17 kvenna í sumar?
Það var þvílíkur heiður og stolt sem fylgdi
því að fá að leiða lið Íslands á þessu stór-
móti og einnig að spila við bestu U17 knatt-
spyrnulið í Evrópu. Þrátt fyrir erfitt mót var
þetta mikil reynsla og klárlega minning sem
mun fylgja mér.
Áttu þér fyrirmynd í knattspyrnuheiminum?
Mín allra mesta fyrirmynd er Marta hin
brasilíska og í íslenska boltanum hef ég
alltaf litið upp til Söru Bjarkar og Rakelar
Hönnu.
Ertu hjátrúarfull fyrir leiki?
Ég er kannski ekki mikið hjátrúarfull en ég
verð alltaf að fá mér hafragraut fyrir leik.
Hvaða ráð hefur þú fyrir ungar og upprenn-
andi fótboltastelpur sem keppa á Símamótinu
í ár?
Ég hvet stelpur til þess að æfa vel og horfa
mikið á fótbolta. Mæta á hverja einustu æf-
ingu og leggja sig alltaf 100% fram og hugsa
einnig vel um mataræðið og svefninn. Og
muna svo að aukaæfingin skapar meistar-
ann.
Hvað hefur þú æft fótbolta lengi?
Í 10 ár.
Hversu oft hefur þú tekið þátt í Síma-
mótinu?
Fimm sinnum.
Áttu einhverja skemmtilega sögu
frá Símamótinu?
Ég var alltaf með lukkubangsa í
Fjölnistreyjunni sem var eigin-
lega bara jafn stór og ég.
Hvernig var að taka þátt í úrslita-
keppni EM U17 kvenna í sumar?
Það var gaman að geta borið sig
saman við suma bestu og efnileg-
ustu leikmenn heims. En mest kom
mér á óvart hversu skemmtilegar og
hressar Evrópumeistararnir Spánverjar
voru innan sem utan vallar, þessi góða
stemning hefur ábyggilega hjálpað þeim
að vinna titilinn.
Áttu þér fyrirmynd í knattspyrnuheiminum?
Carli Lloyd og Marta
Ertu hjátrúarfull fyrir leiki?
Nei, ekki fyrir leik en ég spila alltaf með
fléttu.
Hvaða ráð hefur þú fyrir ungar og upp-
rennandi fótboltastelpur sem keppa á
Símamótinu í ár?
Vertu dugleg að fara sjálf út í fótbolta og
leggðu þig alltaf 100% fram í allar æfing-
ar. Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.
Andrea Mist Pálsdóttir
Aldur: 16 ára
Lið: Þór/Ka
Númer treyju: Spila í treyju númer 26 með Þór/
Ka og 8 með U17.
Staða á vellinum: Spila sem miðju- og
sóknarmaður.
Jasmín Erla Ingadóttir
Aldur: 16 ára
Lið: Fylkir
Fyrri lið: Fjölnir
Númer á treyju: Er númer 18 í Fylki en var
númer 10 í Fjölni og landsliðinu.
Staða á vellinum: Miðja
Booztbar
inn
verður á
Símamót
inu
2015
Verið
velkomin
Ólafur Lúther Einarsson, formað-
ur Félags áhugafólks um kven-
nknattspyrnu, er umsjónarmaður
Facebook-síðunnar Kvennafotbolti.
Síðuna stofnaði hann þegar hann
fann fyrir ranglætistilf inningu
þegar hann fór á leik í kvenna-
knattspyrnu með dætrum sínum.
Daginn áður höfðu þau farið á leik
með karlaliði sama félagsliðs og
upplifað magnaða stemningu. Á
kvennaleiknum voru hins vegar
sárafáir. „Ég leit á stelpurnar mín-
ar og ákvað ég að ég gæti ekki látið
þetta viðgangast. Þess vegna varð
þessi félagsskapur til, sem reyn-
ir að minna á sig af og til og veita
nokkrum tilteknum aðilum aðhald,
alltaf málefnalega þó,“ lýsir Ólafur
á síðunni. Það er nóg um að vera á
síðunni í sumar. Þar er meðal ann-
ars greint frá leikjum dagsins og
úrslitum þeirra og auk þess er að
finna fjöldan allan af tenglum um
áhugaverðar greinar og myndbönd
tengd kvennaknattspyrnu. Rúm-
lega 1500 manns líkar nú við síð-
una og eftir jafn stóran viðburð og
Símamótið má búast við að þeim
muni fjölga um helgina.
Fylgstu með kvennaboltanum á Facebook