Fréttatíminn - 17.07.2015, Side 67
Símamótið 2015Helgin 17.-19. júlí 2015 15
S kórnir sem hafa einkennt takkaskólínuna hjá Adidas til þessa, Predator, F50, 11 pro
og Nitrocharge hafa nú verið teknir
af markaðnum, og í staðinn koma
aðeins tvær glænýjar týpur. Messi
skórinn verður þó áfram fáanlegur,
ásamt Copa Mundial. „Það sem er
svo stórkostlegt við nýju skóna frá
Adidas er að þeir eru bæði FG og
AG, sem merkir að þeir eru bæði
gerðir fyrir grasvelli og gervigras,
og það ættu því að vera frábærar
fréttir fyrir foreldrana að þurfa að-
eins eitt par,“ segir Silja Úlfardótt-
ir, sölumaður hjá Adidas á Íslandi.
„Flestum er brugðið við þessar
fréttir og hafa nokkrir leikmenn
sankað að sér nokkrum eldri týp-
um sem okkur þykir mjög fyndið,“
bætir Silja við.
X og Ace
Mikil eftirspurn er eftir nýju skón-
um og er beðið eftir þeim með mik-
illi eftirvæntingu. Nýju skórnir hafa
fengið heitin X og Ace. „X skórinn
kemur sem sokkaskór, hann er létt-
ari og mjórri og minnir aðeins á F50
og 11 pro skóna, en hann kemur
einnig í leðri,“ segir Silja. Ace skór-
inn mun líkjast Predators skónum
að hluta til, hann kemur í plasti
og leðri og hafa leikmenn nefnt að
hann sé einstaklega þægilegur. Að
sögn Silju er Messi skórinn svo sér
á báti. „Hann er sniðinn eftir þörf-
um Messi sem er besti knattspyrnu-
maður heims.“
Skór sem uppfylla einkenni
hins fullkomna leikmanns
Aðspurð um hver sé kveikjan að
þessum miklu breytingum segir
Silja að hana megi rekja til Guar-
diola, þjálfara Þýskalandsmeist-
ara Bayern Munchen. „Hann var í
viðtali þar sem hann var spurður
hvernig leikmenn hann þyrfti í sitt
lið. Hann svaraði að hann þyrfti
skipulagðan leikmann, fyrirliða
sem er með allt á hreinu og fylgdi
leikskipulagi, einhvern sem gæti
verið við stjórnvölinn, auk leik-
manns sem gerði hlutina á sinn veg
og leikmanns sem tæki hlutina í
sínar eigin hendur, skorar mörk og
væri óútreiknanlegur, eins konar
kaos týpu.“ Adidas tók Guardiola á
orðinu og úr urðu skórnir Chaos og
Control, en þeir fengu svo lokaheit-
ið X og Ace. „Hvort þessi saga sé
100% sönn er annað mál, en hún er
vissulega góð,“ segir Silja. „En svo
er Messi sér á báti. Hann fær auð-
vitað sinn eigin skó, enda er enginn
eins og hann,“ bætir hún við.
Gullskórinn fyrirmynd Ace
skósins
Adidas mun sjá um gerð gullskós-
ins svokallaða, sem verður afhent-
ur markahæstu leikmönnum eftir
lokaumferð Pepsideildar karla
Miklar breytingar á
takkaskóm hjá Adidas
Skórisinn Adidas boðar miklar
breytingar á takkaskóm merkis-
ins. Fjórar tegundir hafa verið
teknar út og nýjar kynntar í
staðinn. Aðdáendur Messi þurfa
þó ekki að örvænta því Messi
skórinn verður áfram fáan-
legur. Nýju takkaskórnir eru
allir gerðir bæði fyrir gervigras
og grasvelli, sem er mikið
fagnaðarefni.
og kvenna. „Skórinn verður með
breyttu sniði í ár og við hlökkum
til að kóróna fótboltasumarið með
honum,“ segir Silja.
Unnið í samstafrfið við
Sportmenn
Böðvar Böðvarsson og Kristján Flóki Finnbogason, leikmenn FH, spila báðir í
takkaskóm frá Adidas. Böðvar er í Messi skónum og Kristján Flóki er í nýju Ace
skónum. Mynd/Anton Brink.