Fréttatíminn - 17.07.2015, Qupperneq 68
Símamótið 2015 Helgin 17.-19. júlí 201516
Hversu oft hefur þú tekið þátt á Símamótinu
og með hvaða liði?
Ég hef spilað 6 sinnum á Símamótinu með
ÍBV. Við vorum með mjög sterkt lið á þeim
tíma og unnum mótið í 3 skipti af þessum 6.
Manstu eftir einhverju skemmtilegu atviki frá
Símamótinu sem stendur upp úr?
Ég man eitt mótið þegar að við töpuðum úr-
slitaleik á móti Breiðabliki sem voru okkar
helstu keppinautar á þeim tíma. Eftir að
flautað var til leiksloka lágum við stelpurn-
ar í mínu liði allar í grasinu hágrátandi og
áttu foreldrar okkar í miklu basli við að róa
okkur niður. Þetta var ansi lýsandi dæmi um
keppnisskapið sem við höfðum og tel ég þetta
keppnisskap vera eitt af því sem var valdur
þess að við náðum oft góðum árangri á Síma-
mótinu.
Hvernig er að spila með sama félagsliði og
systir þín?
Frá því að ég var smástelpa var alltaf draum-
urinn að fá að spila í sama liði og stóra systir.
Að fá svo að upplifa drauminn um atvinnu-
mennsku með henni er ennþá betra. Mar-
grét býr yfir mikilli reynslu og hefur hún
kennt mér mjög margt á þessu tæpa ári sem
við höfum spilað saman hjá Kristianstad. Ég
tel að við setjum jákvæða pressu á hvor aðra
og fáum hvor aðra til þess að vilja gera ennþá
betur, við erum báðar miklar keppnismann-
eskjur og það gefur manni alltaf smá auka
orku að vilja ekki tapa á móti systur sinni á
æfingum. Vonandi getum við haldið áfram að
skapa saman góðar minningar úr fótboltanum
bæði með félags- og landsliði því það er ekki
sjálfgefið að fá að gera það sem maður elskar
að gera og hafa góðan stuðning frá systur
sinni sem veit um hvað þetta snýst.
Hafið þið spilað saman marga landsleiki?
Við höfum spilað allt of fáa landsleiki sam-
an, vonandi getum við bætt úr því í komandi
framtíð.
Hvaða ráð getur þú gefið ungum, upprennandi
knattspyrnustelpum sem eru að keppa á Síma-
mótinu?
Að vera duglegar að æfa, leggja sig alltaf 100%
fram, hafa hugarfarið í lagi og hlusta á þjálfar-
ana ykkar. Það mun skila ykkur á þann stað
sem þið ætlið ykkur. Njótið þess að spila á
Símamótinu vegna þess að þið eruð að búa til
minningar sem munu lifa að eilífu.
Forréttindi að fá að spila með systur sinni
Systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur spila báðar með Kristianstad í Svíþjóð, og auk þess spila þær saman með íslenska landsliðinu. Þær segja að með því að æfa
saman daglega setji þær jákvæða pressu á hvor aðra og fá hvatningu til að gera ennþá betur. Þær hafa báðar tekið þátt á fjölmörgum Símamótum í gegnum tíðina og
ráðleggja núverandi keppendum að njóta mótsins því þar verða til minningar sem lifa að eilífu.
Margrét Lára Viðarsdóttir
Félagslið: Kristianstad
Fjöldi landsleikja: 98
Mörk: 71
Númer treyju: 9
Staða á vellinum:
Sóknarmaður
Opið virka daga frá 10:00 - 18:00
Laugardaga frá 11:00 - 14:00
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 108 Reykjavík
Hversu oft hefur þú tekið þátt á Símamótinu
og með hvaða liði?
Ég er Vestmannaeyingur og þess vegna
spilaði ég með ÍBV. Ég hef ekki töluna á því
hversu oft ég tók þátt á Símamótinu sem leik-
maður en það var ansi oft. Frá 7. flokki upp í 3.
flokk kom ég á hverju ári á Gull og silfur mót-
ið eins og það hét einu sinni. Þannig að þetta
hafa verið kannski 7-8 mót sem ég tók þátt í.
Manstu eftir einhverju skemmtilegu atviki frá
Símamótinu sem stendur upp úr?
Ég á mjög margar skemmtilegar minningar
af Símamótinu. Við ÍBV stelpurnar vorum
mjög sigursælt lið upp alla yngri flokkana.
Við töpuðum nánast ekki leik og unnum flest
mót sem við tókum þátt í þannig að fyrir mér
eru það þær minningar sem standa upp úr.
Hvernig er að spila með sama félagsliði og
systir þín?
Það er mjög gaman. Við spiluðum aldrei sam-
an í ÍBV þar sem að ég er 5 árum eldri og fór
ung í atvinnumennsku. Hins vegar höfum
við verið lánsamar að fá að spila saman nú í
ár með Kristianstad og auðvitað landsliðinu.
Þetta eru forréttindi og ég er afar stolt af litlu
systur minni.
Hafið þið spilað saman marga landsleiki?
Nei því miður alltof fáa en þó eigum við
nokkra. Ég missti út 2014 vegna barneigna
og það var árið sem Elísa stimplaði sig inn
í landsliðið. Ef við höldum áfram að standa
okkur vel þá er framtíðin björt og við eigum
eftir að spila fleiri leiki saman í bláa búningn-
um.
Hvaða ráð getur þú gefið ungum, upprennandi
knattspyrnustelpum sem eru að keppa á Síma-
mótinu?
Fyrst og fremst að njóta þess að spila fótbolta
því þessi tími kemur ekki aftur. Leyfa sér að
láta sig dreyma um stóra hluti í framtíðinni
og setja sér markmið til að ná þeim draum-
um. Maður getur allt ef maður er tilbúinn
að leggja mikið á sig og lifa heilbrigðu lífi.
Gangi ykkur vel og við sjáumst á vellinum.
Áfram Ísland!
Elísa Viðarsdóttir
Félagslið: Kristianstad
Fjöldi landsleikja: 20
Mörk: 0
Númer treyju: 7
Staða á vellinum:
Varnarmaður
Margrét Lára og Elísa eftir 1-1 jafntefli gegn Noregi á EM 2013. Með þeim á myndinni eru bróðursynir þeirra, Viðar Elí, Daníel og Óskar Bjarnasynir.