Fréttatíminn - 26.06.2015, Qupperneq 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Austlæg átt, 3-10 m/s, hvAssAst syðst. BjArt-
viðri Nv-til eN skýjAð sA-til, hlýtt í veðri.
höfuðBorgArsvæðið: Austlæg átt
og bjArtviðri, hlýtt í veðri.
fremur hæg Austlæg átt, BjArtviðri vestAN-
til eN skúrir eðA rigNiNg sA- og A-lANds.
höfuðBorgArsvæðið: Austlæg átt og
bjArtviðri, hiti breytist lítið.
suðAustAN 5-13, hvAssAst sA-til,
rigNiNg eN léttskýjAð Nv-lANds.
höfuðBorgArsvæðið: Austlæg átt,
bjArtviðri og fremur hlýtt.
Blíðskaparveður
um helgina
um helgina sækir hlýtt loft að landinu
og útlit er fyrir hið fallegasta veður
norðvestan- og vestanlands. suðaust-
antil og á Austurlandi verður skýjað og
á laugardag og sunnudag er útlit fyrir
vætu á þeim slóðum,
einkum undir vatnajökli.
hiti er í hærri kantinum
vestanlands, og gæti
náð yfir 20 gráður
staðbundið.
13
17 15
15
13
14
16 13
13
12
15
15 12
11
11
elín Björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
dómsmál meginreglan í íslensku réttarkerFi eru opin réttarhöld
Vilja opin réttarhöld
í málum vændiskaupenda
sigríður ingibjörg ingadóttir alþingismaður ætlar að leggja
fram fyrirspurn til innanríkisráðherra um hvort lagabreytingu
þurfi til að tryggja opin réttarhöld í málum vændiskaupenda.
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar stóð fyrir alþjóðlegu mál-
þingi í vikunni um áhrif löggjafar um bann við kaupum á vændi.
Þar voru kynntar niðurstöður norskrar rannsóknar þar sem
kom fram að vændi og eftirspurn eftir því minnkaði í Noregi
eftir lagasetninguna.
s igríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinn-ar, vinnur nú að fyrirspurn til
innanríkisráðherra sem hún hyggst
leggja fram á Alþingi í næstu viku
um málsmeðferð vændiskaupa-
mála. „Ég vil fá svör við því hvort
lagabreytingu þurfi til að tryggja
opin réttarhöld í þessum málum og
hvort til standi að auka rannsókn-
arheimildir miðað við refsiramma
brotanna,“ segir hún.
Kvennahreyfing Samfylkingar-
innar hélt á þriðjudaginn alþjóð-
legt málþing um áhrif löggjafar
af banni við kaupum á vændi á Ís-
landi, í Noregi og í Svíþjóð. Þar voru
til að mynda kynntar niðurstöður
norskrar rannsóknar á hinni svo-
kölluðu sænsku leið, að gera kaup á
vændi refsiverð, og kom þar berlega
í ljós að vændi – sem og eftirspurn
eftir því – minnkaði í Noregi eftir
að vændiskaup voru bönnuð með
lögum. Engar íslenskar rannsóknir
liggja fyrir um áhrif löggjafarinnar.
Heiða Björk Hilmisdóttir, formað-
ur Kvennahreyfingar Samfylking-
arinnar, segir málþingið hafa ver-
ið afar árangursríkt en þingkonur
frá Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi
voru meðal frummælenda. „Niður-
staða málþingsins var sú að innleiða
þyrfti sænsku leiðina í öllum Evr-
ópulöndum. Þjóðverjar standa nú
ráðþrota gagnvart þessum vanda
en í Írlandi tóku nýlega gildi lög
um bann við vændiskaupum og í
Frakklandi hefur verið samþykkt
að fara þessa leið en hún hefur ekki
enn komið til framkvæmda,“ segir
hún. Heiða Björk bendir á að á mál-
þinginu hafi fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Finnlands sagt að grunur
leiki á að um 250 stúlkur frá Austur-
Evrópu fari vikulega um flugvelli
þar í landi á leið í vændi.
Sigríður Ingibjörg tók þessi mál
til umræðu á Alþingi á miðvikudag-
inn og benti á að aukinn áhugi lög-
reglu á vændismálum og mansali
skili sér svo eftir sé tekið. „Árið
2013 komu 167 mál um ólögleg kaup
á vændi til kasta lögreglu miðað
við 12-13 mál árið á undan og árið
á eftir. Rannsóknarheimildir lög-
reglu virðast ónógar og réttarhöld
vegna brota á þessum lögum eru
lokuð. Þrátt fyrir að ríkissaksókn-
ari, lögregla og kvenkyns dómarar
vilji að réttarhöldin séu opin þurfa
þau að lúta í lægra haldi fyrir meiri
hluta niðurstöðu karlkyns dómara
í Hæstarétti,“ sagði hún á Alþingi.
Sigríður og Heiða eru sam-
mála um að opna þurfi réttarhöld
í vændiskaupamálum þannig að
fælingarmáttur löggjafarinnar sé
sem mestur og segjast þær
báðar ætla að beita sér
fyrir því í framhaldi af
fyrirspurn Sigríðar til
innanríkisráðherra.
Sigríður segir að hún
telji raunar að ekki
þurfi lagabreytingu
til að réttarhöldin
séu opin en gott sé
að fá staðfestingu
á því hvort það sé
raunin. „Það er
meginregla í ís-
lensku réttar-
kerfi að réttar-
höld séu opin
og þeim ekki
lokað nema
af sérstöku
ástæðum,
til að mynda
til að vernda
brotaþola,“ segir
hún en í fyrir-
spurninni sem
hún vinnur að
spyr Sigr íð -
ur Ingibjörg
einnig um
hvað stjór-
nvöld hafi
gert til að
kortleggja umfang
vandans og til -
komu hans.
erla hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
sigríður ingibjörg
ingadóttir vinnur
að fyrirspurn
til innanríkis-
ráðherra, Ólafar
Nordal, um
hvort laga-
breytingu þurfi
til að hafa
réttarhöld opin
í vændiskaupa-
málum. Mynd/Hari
hringinn í kringum landið á gömlum traktorum
hálfrar aldar draumur tveggja vina varð
að veruleika þegar hringferð þeirra
hófst í gær, fimmtudag, á traktorum
hringinn í kringum landið. Þeir kalla
sig vini ferguson og fara hringinn á
tveimur massey ferguson traktorum.
Annar þeirra er traktorinn sem þeir
unnu á í sveitinni fyrir fimmtíu árum.
Karl friðriksson, framkvæmdastjóri hjá
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, og Grétar
Gústavsson, meistari í bifvélavirkjun og
áhugamaður um búvélar og fornbíla,
voru saman í sveit á bænum valdarási
frá fimm ára aldri fram á unglingsár og
unnu ýmis sveitastörf. „Það kom aldrei
til greina annað en að fara á traktornum
okkar, þeim sem við lékum okkur í og
unnum á í sveitinni. massey ferguson,
tegund 35X, árgerð 1963, enda hefur
þessi draumur blundað í okkur í 50 ár
og við erum sammála um að maður eigi
að láta góða drauma rætast,“ segir Karl.
„okkur var auðvitað sýnd mikil ábyrgð
og leyfðist að ferðast um á vélunum milli
bæja og svo notuðum við traktorana
okkur til skemmtunar þegar tími gafst
til,” segir Grétar.
stöðvað verður á öllum olísstöðvum á
leiðinni þar sem fólk fær að skoða vélar
og ökumenn. áætlað er að hringferðinni
ljúki við olísstöðina á Norðlingaholti
8. júlí.
Félagarnir leggja góðu málefni lið með
ferðalaginu og safna áheitum í gegnum
símanúmerið 904 1900, fyrir 500
krónur, en ágóðinn rennur til vináttu
– forvarnarverkefnis barnaheilla gegn
einelti í leikskólum. -jh
4 fréttir Helgin 26.-28. júní 2015