Fréttatíminn - 26.06.2015, Side 6
SHAPE DELUXE HEILSURÚM
• Lagar sig fullkom lega að líkama þínum
• 26 cm þykk heilsudýna
• 2 cm latexlag bólstrað í áklæði
• 4 cm gel memoryfoam
• 4 cm shape memoryfoam
• Non-slip efni á botni dýnunnar
• Engir rykmaurar
• 5 ára ábyrgð!
• Ofnæmisprófuð
• Burstaðir stálfætur
Aðeins 176.175 kr.
Shape Deluxe dýna með
Classic botni og löppum
Stærð: 180x200 cm.
Fullt verð: 234.900 kr.
Endurnýjanleg
hráefni
Aloe Vera
Cool Comfort
gel foam
Bambus trefjar Open cell
structure
Memory
foam
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Sumar
útsala
Holtagarðar | Akureyri | www
.dorma.is
Sumar
útsala
TVENNUTILBOÐ
dúnsæng + koddi
NATURE’S REST
heilsurúm
Aðeins 59.900 kr.
Nature’s Rest heilsudýna
með Classic botni.
Stærð: 140x200 cm.
Fullt verð: 92.900 kr.
33.000
krónur
AFSLÁTTUR
O&D dúnsæng
· 50% dúnn
· 50% smáfiður
+ Dúnkoddi
Fullt verð: 24.900 kr.
Aðeins 18.900 kr.
TVENNU
TILBOÐ
Þú finnur
bæklinginn á dorma.is
Aðeins 366.900 kr.
C&J stillanleg rúm:
· Inndraganlegur botn
· 2x450 kg lyftimótorar
· Mótor þarfnast ekki viðhalds
· Tvíhert stál í burðargrind
· Hliðar- og enda stopparar
· Hljóðlátur mótor – Total silence®
Stillanlegt og þægilegt
C&J SILVER STILLANLEGT
með Shape heilsudýnum
Stillanlegur botn og
Shape heilsudýnur
Stærð: 2x90x200 cm.
Fullt verð: 466.900 kr.
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
100.000
krónur
AFSLÁTTUR
Fullkominn stuðningur
– enn meiri mýkt
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
25%
AFSLÁTTUR
MEIRA Á
dorma.is
SkýrSla Vernda á Villtu hreindýrin
Lagst gegn hreindýrabúskap hérlendis
Ekki er mælt með því að tekið verði
upp hreindýraeldi eða stórfelldur
hreindýrabúskapur hér á landi ef á
sama tíma á að standa vörð um villtan
stofn hreindýra í landinu, að því er
fram kemur í nýrri skýrslu starfs-
hóps um hreindýraeldi. Starfshóp-
urinn afhenti Sigrúnu Magnúsdóttur
umhverfis- og auðlindaráðherra ný-
verið skýrslu og niðurstöður sínar
um hugmyndir um hreindýraeldi og
hreindýraræktun sem nýja búgrein
á Íslandi. Í skýrslunni kemur meðal
annars fram að veruleg hætta sé á
aukinni tíðni og útbreiðslu sjúkdóma,
einkum í tengslum við hættuna á
samgangi eldisdýra við villt dýr og
annan bústofn. Bent er á að hrein-
dýraeldi sé þess eðlis að því fylgi
óhjákvæmilega umtalsverð breyting
á landnýtingu og það takmarki aðra
landnýtingu og aðgengi almennings
að landinu vegna nauðsynlegra girð-
inga. Þá þurfi slíkar girðingar að vera
verulega háar og ná yfir stór svæði
eigi þær að þjóna tilgangi sínum.
Hópurinn telur, að því er fram kem-
ur á vef umhverfis- og auðlindaráðu-
neytisins, að ef vegnir eru saman
þeir kostir sem felast annars vegar í
að viðhalda villtum hreindýrastofni
og nýtingu hans með þeim hætti sem
gert er í dag og hins vegar að heimila
hreindýraeldi með óvissu um áhrif
þess á náttúru landsins, þar með talið
á hreindýrastofninn sjálfan og aðra
þætti lífríkisins, sé farsælast að við-
halda núverandi sjálfbærri nýtingu og
verndun villtra hreindýra á Íslandi. -jh
Níels Árni Lund átti sæti í starfshópn-
um, Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og
auðlindaráðherra og Sigurður Á. Þráins-
son, formaður starfshópsins. Mynd/Um-
hverfis- og auðlindaráðuneytið
Frá kynningarfundi Félags hjúkrunarfræðinga um nýundirritaðan kjarasamning á Landspítalanum í Fossvogi í gær, fimmtudag.
Hjúkrunarfræðingar eru margir hverjir ósáttir við samninginn og vilja meiri launahækkun. Mynd/Hari
VinnuréttarSérfræðingur lögin gilda Verði Samningar felldir
Hjúkrunarfræðingar vilja fá
að setjast aftur við samninga-
borðið verði nýundirrituðum
kjarasamningi hafnað. Sér-
fræðingur í vinnurétti segir
lögin kveða á um að þá muni
deilunni vísað í gerðardóm
sem sé líklegur til að skila
hjúkrunarfræðingum lakari
niðurstöðu en þeim standi til
boða nú. BHM-deilan stefnir í
gerðardóm
Hártoganir
um gerðardóm
S kiptar skoðanir eru á því hvað verður ef hjúkrunarfræðingar hafna nýundirrituðum kjara-
samningi en almenn óánægja ríkir
meðal stéttarinnar um hin nýju kjör
sem samið var um. Fari deilurnar
fyrir gerðardóm er líklegt að úr-
skurður hans verði lakari en nýr
kjarasamningur.
Ólafur G. Skúlason, formaður Fé-
lags íslenskra hjúkrunarfræðinga,
segist telja að hægt verði að setjast
á ný við samningaborð verði samn-
ingurinn felldur. Lára V. Júlíusdóttir,
lektor í lögfræði og sérfræðingur í
vinnurétti, segir hins vegar ljóst að
hafni hjúkrunarfræðingar samningn-
um verði þeir að halda áfram að vinna
því lög um verkfallsbann gildi áfram.
Gerðardómur verði kallaður saman
og honum gert að úrskurða um kjör.
„Það má ef til vill hártoga einhver
ákvæði í lögunum en ef þau eru á ein-
hvern hátt óskýr þá verður löggjafinn
að lagfæra það og ég geri ráð fyrir því
að það verði gert,“ segir Lára. Hún
segir þetta mjög einkennilega stöðu.
Hjúkrunarfræðingar virðist ekki eiga
kost á neinu nema því að samþykkja
þennan samning eða hætta á að gerð-
ardómur úrskurði þeim lakari kjör en
þeir hafi þegar hafnað.
Samninganefnd hjúkrunarfræð-
inga skrifaði í vikunni undir samn-
inga við ríkið sem skila 18,6% launa-
hækkun á næstu fjórum árum. Áður
hafði Alþingi sett lög sem bundu
enda á verkfall stéttarinnar.
Af verkfalli Bandalags háskóla-
manna er lítið að frétta enda þokast
ekkert í viðræðum. Lagasetning
batt einnig enda á verkfall BHM og
hafa forsvarsmenn þess stefnt rík-
inu fyrir dómstóla af þeim sökum.
Hafa deilendur frest til 1. júlí að
semja en þá mun deilan fara fyrir
gerðardóm sem úrskurða mun um
kjör. Þórunn Sveinbjarnardóttir, for-
maður BHM, er svartsýn á að takist
muni að semja fyrir þann tíma.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Skiptar skoðanir eru á því hvað gerist ef hjúkrunarfræðingar hafna í atkvæða-
greiðslu nýundirrituðum kjarasamningi. Mynd Hari
6 fréttir Helgin 26.-28. júní 2015