Fréttatíminn - 26.06.2015, Síða 8
Sjóferðalög Nýr kafli í þróuN SkemmtiferðaSigliNga
Hringferðir skemmtiferðaskipa umhverfis Ísland
þ rjú skemmtiferðaskip sigla nú hringinn í kringum Ísland, skipin Ocean Diamond, Sea
Explorer og Sea Spirit, en stefnt er
að því að þau sigli nokkrum sinnum í
kringum landið í sumar. Von er fleiri
skemmtiferðaskipum í sömu erinda-
gjörðum, meðal annars hinu þekkta
skipi National Geographic Explorer.
„Við erum að sjá nýjar áherslur í
komu skemmtiferðaskipa sem sigla
nú í auknum mæli hringinn í kring-
um Ísland yfir sumartímann. Skipin
hafa viðkomu á allmörgum stöðum
á landinu auk Reykjavíkur og tekur
hver ferð yfirleitt 10 daga. Það má
segja að þetta sé nýjasti kaflinn í
þróun skemmtiferðasiglinga hingað
til lands. Þetta hefur í för með sér
að minni byggðarlög á landsbyggð-
inni fá mun fleiri ferðamenn í heim-
sókn en ella,“ segir Björn Einarsson,
framkvæmdastjóri TVG-Zimsen, en
fyrirtækið sér um að þjónusta skipin
meðan á dvöl þeirra stendur.
Skipin stoppa daglega í nýrri
höfn. Þau hafa viðkomu í Reykjavík,
Grundarfirði, Stykkishólmi, Flatey,
Ísafirði, Vigur, Grímsey, Siglufirði,
Akureyri, Seyðisfirði, Eskifirði, Nes-
kaupstað, Djúpavogi, Höfn og Vest-
mannaeyjum. Skipin sigla þó ekki
á allar hafnir í hverri ferð en skipta
nokkuð jafnt á milli staða. Þegar
skipin koma aftur til Reykjavíkur
skipta þau um farþega.
„Það er á margan hátt mjög þægi-
legt fyrir farþegana að búa á siglandi
hóteli því þeir eru þá í sama herbergi
allan tímann,“ segir Björn. „Ferða-
menn sem sigla með skipunum fara
í náttúruskoðun sem og heimsækja
bæina þar skipin hafa viðkomu og
það sem þeir hafa upp á að bjóða,
meðal annars söfn, verslun og veit-
ingastaði.“ -jh
National Geographic Explorer.
Veður Sumarið lokSiNS komið fyrir alVöru
Spáin lygilega góð
Veðurspáin fyrir helgina er hin besta. Austanátt, sólskin og hlýtt loft verma landsmenn vestan- og
norðvestanlands þar sem hiti gæti náð 20 gráðum. Suðaustantil og á Austurlandi verður skýjað á
köflum en hlýtt. „Blíðskaparveður um allt land þó ekki verði sól allsstaðar,“ segir Elín Björk Jónas-
dóttir veðurfræðingur. Opnað verður fyrir umferð í Kverkfjöll og Dreka í dag, föstudag.
É g held að mesta dásemdar-veður helgarinnar verði á Vestfjörðum,“ segir Elín Björk
Jónasdóttir veðurfræðingur. „En það
á eftir að viðra vel um allt norðvest-
anvert og vestanvert landið þar sem
búast má við 20° hita. Það gæti líka
orðið mikið blíðskaparveður í Skaga-
firði sem er heppilegt fyrir þá sem
ætla á nýju tónlistarhátíðina á Reykj-
aströndinni, þeir detta í lukkupottinn.
Spáin fyrir helgina er lygilega góð og
það er austanáttinni að þakka.“
Suðupottur í Húsafelli
„Það er alltaf hætta á þoku í hægri
austanátt, því þá nær ekki að hlýna í
sólarleysi, en um helgina virðist ætla
að fara saman sól, hlýtt loft yfir land-
inu og austangola og þannig hefst
þetta. Breiðafjörðurinn og Snæfells-
nesið eru góðir áfangastaðir þessa
helgina og Húsafell verður örugg-
lega suðupottur eins og svo oft í
svona veðri. En það lítur út fyrir blíð-
skaparveður um allt land, þó ekki
verði sól allsstaðar. Þeir sem eru
búnir að ákveða að fara austur á land
þurfa ekki að örvænta þó það verði
ekki glampandi sól því það verður
ofsalega gott og milt veður. Þetta er
algjörlega frábært gönguveður, því
það er hlýtt hægviðri og þurrt að
mestu fram á sunnudag, sem þýðir
minni líkur á að fólk sólbrenni.“
Opnað í Kverkfjöll og Dreka
Hitastig verður töluvert hærra en
síðustu daga á hálendinu sem gæti
hjálpað til við að leysa snjóa og flýta
fyrir opnun fjallveganna sem flestir
eru enn lokaðir. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Vegagerðinni er enn allt
á kafi í snjó í Lakagígum og ekkert
útlit fyrir að þangað verði hægt að
komast á næstunni en þó verður
opnað upp að Fagrafossi og Eldgjá
í dag, föstudag. „Við munum líka
opna veginn í Kverkfjöll og Dreka á
föstudag en það verður líklega lokað
í Sigöldu og Landmannalaugar þar
til eftir helgi,“ sagði Kristinn Jóns-
son hjá Vegagerðinni.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Rauðisandur á góðum degi. Um helgina verður langbesta veðrið vestanlands þar sem búast má við hægri austangolu, sól og 20° hita.
Perspi
Guard
Bakteríusápa
og svitastoppari
Dreifing: Ýmus ehf
Fæst í apótekum
Til meðhöndlunar
á vandamálum
vegna ofsvitnunar
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Í þessari frábæru ferð kynnumst við töfrandi menningu og
mannlífi suðrænna landa. Við dveljum í bænum Valence,
Tossa de Mar við Costa Brava ströndina og heimsborginni
Lyon. Farið verður í ótal skoðunarferðir m.a. til Barcelona,
í Montserrat klaustrið í Katalónsku hæðunum og Figueres,
fæðingarborgar Salvadors Dalí.
Verð: 218.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir
12. - 22. september
Suður-Frakkland & Spánn
Sumar 24
NM
68
96
8
Siminn.is/spotify*Gildir fyrir Spotify Premium áskrift hjá Símanum
8 fréttir Helgin 26.-28. júní 2015