Fréttatíminn - 26.06.2015, Side 10
Caddy City er enn einfaldari og hagkvæmari útfærsla af Volkswagen Caddy, sniðin að
þörfum þeirra sem vilja traustan vinnufélaga til að létta sér lífið við dagleg störf. City
er viðbót í sendibílalínu Volkswagen Caddy.
Volkswagen Caddy hefur árum saman verið mest seldi atvinnubíllinn á Íslandi. Með
tilkomu City er enn auðveldara að bætast í hóp hæstánægðra Volkswagen eigenda.
Caddy City kostar aðeins frá
2.630.000 kr.
(2.120.968 kr. án vsk)
Caddy með nýju sniði
Atvinnubílar
Söluaðilar: HEKLA Reykjavík · Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Vinsælasti atvinnubíll á Íslandi síðastliðin ár!
www.volkswagen.is
Fjölga þarf
úrræðum
ríkissátta-
semjara
Fyrrum ríkissáttasemjari
og sérfræðingur
í vinnumarkaðs-
málum eru sammála
um að endurskoða
þurfi vinnumarkaðs-
löggjöfina. Fjölga
þurfi úrræðum sem
sáttasemjari geti gripið
til náist ekki sátt milli
deilenda. Lögin voru
sett fyrir 80 árum og
átti að endurskoða
gagngert stuttu síðar.
Það hefur ekki verið
gert og skortir okkur
nú úrræði sem önnur
Norðurlöndin geta gripið
til í álíka aðstæðum.
G ylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent í viðskiptafræði, hefur í tuttugu ár talað fyrir breyt-
ingum á vinnulöggjöfinni og nýjum
starfsaðferðum við gerð kjarasamn-
inga. Lögin um stéttarfélög og vinnu-
markaðsdeilur hafa lítið breyst í þau
80 ár sem liðin eru frá því þau voru sett
þrátt fyrir að þau hafi verið hugsuð
til skamms tíma, líkt og fram kemur
í greinargerð með lögunum: „Engum
mun þó ljósara en nefndinni, að ekki
má við því búast að hér sé um neina
framtíðarlausn að ræða. Annars staðar
hefur fyrsta löggjöf af þessu tagi yfir-
leitt þarfnast endurskoðunar, lagfær-
ingar og viðbóta eftir skamman tíma.“
„Það þarf að samræma vinnulög-
gjöfina milli hins opinbera og almenna
vinnumarkaðar,“ segir Gylfi í samtali
við Fréttatímann. „Um þessa hópa gilda
tvenn lög [nr 80/1938 lög um stéttar-
félög og vinnudeilur annars vegar og
lög nr. nr. 94/1986, um kjarasamninga
opinberra starfsmanna]. Inn í lög um
stéttarfélög kemur frestunarheimild
árið 1996 þar sem samninganefnd eða
til þess bærum
fyrirsvarsmönnum samningsaðila er
heimilt að aflýsa vinnustöðvun,“ bendir
Gylfi á.
„Þetta er mikilvægt ákvæði eins
og dæmin hafa sannað og sýnt upp á
síðkastið þegar verkföllum á almenn-
um vinnumarkaði hefur verið frestað.
Frestunarheimild sem þessari er ekki
fyrir að fara í lögum um kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna og er það
bagalegt, því að þegar opinberir starfs-
menn hefja verkfall má segja að þeir
séu í raun læstir í verkfalli og verða að
„klára“ deiluna. Þegar þessu ákvæði
var bætt inn í hina almennu vinnulög-
gjöf árið 1996 segir í greinargerð með
þessum breytingum að svona frest-
unarheimild sé ekki fyrir að fara hjá
opinberum starfsmönnum og sé það
bagalegt,“ segir Gylfi.
Magnús Pétursson var ríkis-
sáttasemjari frá 2008 þar til
nú í vor. Hann segir skorta úr-
ræði sem sáttasemjari getur
gripið til, svo sem að geta
frestað verkfalli tímabundið
án þess að löggjafinn komi
strax í málið.
Gylfi Dalmann Aðalsteins-
son, dósent í viðskiptafræði,
hefur talað fyrir breytingum á
vinnulöggjöfinni í tvo áratugi.
Sérfræðingar í vinnumark-
aðsmálum eru sammála
um að skortur sé á úrræði
fyrir sáttasemjara þegar
deilt er um kjarasamninga.
10 fréttaskýring Helgin 26.-28. júní 2015