Fréttatíminn - 26.06.2015, Page 28
Það að fólk
taki eftir
Intersport-
sokkunum
gerir fullt
fyrir mig.
Með blæti fyrir tíunda áratugnum
Magnús Leifsson hefur leikstýrt mörgum af flottustu tónlistar-
myndböndum á Íslandi síðustu ár. Í því nýjasta fylgjumst við
með röppurum á hestbaki í Breiðholti og rúntandi í blæjubíl í
Mosfellsbæ með Skt. Bernharðshunda í farþegasætinu. Magnús
er heltekinn af fortíðarþrá og reynir að lauma inn vísunum í
eigin áhugamál í myndböndum sínum. Hann slysaðist til að fá
áhuga á kvikmyndagerð þegar hann skrifaði sjónvarpsþætti
með Steinda Jr.
É g er ekkert sérstaklega hrifinn af haha-húmor en í mínum myndböndum er oft
lúmskt djók undir niðri. Ég reyni
að hafa þetta smá fyndið en á sama
tíma einlægt,“ segir Magnús Leifs-
son leikstjóri.
Magnús hefur leikstýrt mörgum
af flottustu tónlistarmyndböndum
á Íslandi síðustu misseri – nú síðast
frábæru myndbandi með hljómsveit-
inni Úlfur Úlfur, Brennum allt. Með-
al annarra eftirminnilegra mynd-
banda hans má nefna Glow með
Retro Stefson, Brighter Days með
FM Belfast og Tarantúlur með Úlf-
ur Úlfur sem er skemmtileg heimild
um það hvernig Bíladagar á Akur-
eyri eru – og fólkið sem þá sækja.
Á hestbaki í Neðra-Breiðholti
Í nýjasta myndbandinu, með Úlf-
ur Úlfur, sjáum við annars vegar
rapparann Arnar Frey á hestbaki
í Neðra-Breiðholti en hins vegar
Kött Grá Pje í blæjubíl að rúnta
um Mosó, með Skt. Bernharð-
shunda í aftursætinu. Er einhver
djúp merking þarna sem þarf að
skýra?
„Nei, það eru engin skilaboð
þarna á bak við,“ segir Magnús
og hlær. „Þetta var bara sjónrænt
og skemmtilegt. Og fyndið. Ég
spurði Arnar á sínum tíma hversu
góður hann væri að sitja hest á
skalanum 1-10. Þegar hann sagði 9
fannst mér að við yrðum einhvern
veginn að nýta okkur það.“
Það er einhver fortíðarþrá í mér
Þegar maður skoðar myndböndin
þín kemur í ljós eitthvað sem gæti
kallast rauður þráður, fyndin skot
og „díteilar“ sem lyfta þeim upp. Til
að mynda nærmynd af Intersport-
sokkum, Cheerios-bolur og gamlir
körfuboltabolir.
„Já, ég er með mikið næntís-blæti
og finnst gaman að lauma inn fyndn-
um og hálf lúðalegum „díteilum“.
Það að fólk taki eftir Intersport-
sokkunum gerir fullt fyrir mig.“
Hver ástæðan fyrir þessu blæti,
stoppaðirðu bara þarna eða er þetta
einhvers konar nostalgía?
„Ég held að það leiti allir einhvern
tímann aftur í barndóminn, að því
sem þeir fíluðu sem krakkar. Þetta
er einhver fortíðarþrá í mér, ég er
alls ekki fastur þarna. Það er bara
eitthvað við NBA á tíunda áratugn-
um og grafíkina sem fylgdi.“
Þú virðist líka hrifinn af Breið-
holtinu. Það er sögusviðið í Brenn-
um allt og í Glow má sjá kunnugleg
kennileiti á borð við söluturninn
King Kong og Danshöllina.
„Já, það er nú eiginlega tilviljun að
við höfum endað þar í stórum skot-
um. Blokkirnar eru náttúrlega graf-
ískar og flottar en King Kong-planið
hentaði bara vel fyrir spólatriði.“
Skrifaði handrit að Steind-
anum okkar
Magnús er 32 ára og uppalinn í
miðbæ Reykjavíkur þar sem hann
býr nú ásamt kærustu sinni, Mel-
korku Sigríði Magnúsdóttur dans-
ara. Hann lærði grafíska hönnun í
Listaháskóla Íslands og útskrifaðist
þaðan árið 2007.
„Eftir útskrift þá slysaðist ég
til að fara að skrifa handrit með
Steinda Jr. og Bent sem varð Stein-
dinn okkar. Ég eiginlega slysaðist
til að fá áhuga á kvikmyndagerð. Ég
skrifaði með þeim tvær seríur og
líka Hreinan Skjöld. Það var minn
kvikmyndaskóli.“
Magnús vinnur hjá Döðlum hug-
myndahúsi þar sem hann fæst við
eitt og annað; leikstjórn, hugmynda-
vinnu og grafík. „Það er hellingur
að gera hjá Döðlum. Þetta er ekki
beint hefðbundin auglýsingastofa
því við gerum allskonar öðruvísi
hluti. Það eru mjög fjölbreytt og
spennandi verkefni hjá okkur.“
Enginn gróðabransi að gera
myndbönd
Myndbandagerðina stundar Magn-
ús því í frítíma sínum, enda sjálfsagt
vonlaust mál að ætla að lifa af vinnu
í þeim bransa þrátt fyrir auknar
vinsældir með tilkomu Youtube.
„Á sínum tíma voru menn í fullri
vinnu í Skífunni að drita út mynd-
böndum fyrir Írafár og Sálina en
músíkbransinn hefur breyst. Nú
eru græjurnar aðgengilegar öllum
og það getur hver sem er byrjað að
gera myndbönd.“
Magnúsi hefur þó gengið bet-
ur en mörgum og í tvígang hafa
myndbönd hans verið valin best á
Íslensku tónlistarverðlaununum.
„Það er gaman hvað það er vel tek-
ið í þetta,“ segir hann, hógværðin
uppmáluð.
Hann viðurkennir fúslega að það
sé ekki gróðabransi að gera tón-
listarmyndbönd á Íslandi. „Nei, alls
ekki. Þetta er meira og minna keyrt
á ástríðu.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Magnús Leifsson
leikstjóri hefur
vakið athygli
fyrir tónlistar-
myndbönd sín.
Hann laumar inn
eigin húmor og
fortíðarblæti í
myndböndin.
Ljósmynd/Hari
Tarantúlur
Úlfur Úlfur ásamt Eddu Borg
Valið Myndband ársins á Íslensku tón-
listarverðlaununum 2014.
Magnús fær útrás fyrir næntís-blætið
með Cheerios-bol og gömlum NBA-
bolum.
Áhorf á Youtube: 195.000.
Flottustu myndbönd Magnúsar
Brennum allt
Úlfur Úlfur ásamt Kött Grá Pje
Komið með yfir 30 þúsund áhorf á
Youtube á tveimur vikum.
Magnús fær útrás fyrir næntís-blætið
með nærmynd af Intersport-sokkum.
Áhorf á Youtube: 32.000.
Glow
Retro Stefson
Valið Myndband ársins á Íslensku tón-
listarverðlaununum 2012.
Magnús laumar inn skotum af þekktum
kennileitum á borð við Danshöllina í
Breiðholti og Kebabhúsið.
Áhorf á Youtube: 500.000.
Brighter Days
FM Belfast
Tilnefnt sem Myndband ársins á Ís-
lensku tónlistarverðlaunum 2014.
Magnús fær útrás NBA-blæti sitt með
gömlum Nets-bol.
Áhorf á Youtube: 140.000.
28 viðtal Helgin 26.-28. júní 2015
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
LÁGHITA
MIÐSTÖÐVAROFNAR
Gæði fara aldrei úr tísku