Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.06.2015, Page 40

Fréttatíminn - 26.06.2015, Page 40
40 heilsutíminn Helgin 26.-28. júní 2015 FÆST Í HEILSUBÚÐUM OG FLESTUM MATVÖRUVERSLUNUM Nitric Oxide ÞAÐ KEMUR EKKI Á ÓVART BEETELITE NOTENDUR ERU Í EFSTU SÆTUNUM Meiri orka, þrek, úthald 1 skot 30 mín. fyrir æfingar, keppnir blandað í 100 - 150 ml af vatni. Endist 6 tíma í líkamanum. Bætt blóðflæði og súrefnis upptaka 30 mín. eftir inntöku. Eitt skot = 1 líter af rauðrófusafa eða 6 rauðrófur. 100% lífrænt Fæst í Heilsuhúsinu og Heilsuver, Tri ehf. og Heimkaup.is 4 sinnum Olympíu triathlon meistari Hunter Kemper V IT EX .IS Hvenær er þörf á sér- stakri hjólatryggingu? Hjólamenningin hér á landi er í miklum blóma. Hjólum og hjólreiðafólki fer fjölgandi og vinsældir hjólreiðakeppna aukast ár frá ári. Að mörgu þarf að huga áður en haldið er út í hjólasumarið og eru tryggingamál ofarlega á listanum. Fréttatíminn fékk Jóneyju Hrönn Gylfadóttur, sérfræðing hjá Sjóvá, til að fara yfir hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að hjólatryggingum. F jölskyldutrygging bætir ýmis tjón sem verða á reiðhjólum en bætur eru mismunandi eftir því hvers konar tryggingu þú ert með,“ segir Jóney. Algengasta tjón sem hjólreiðafólk verður fyrir er þegar það lendir í því að reiðhjólum þeirra er stolið ýmist utandyra eða í innbrotum, að sögn Jóneyjar. „Til að fá bættan þjófnað þarf hjólið að hafa verið læst utandyra við fastan hlut eða sjáanleg merki um innbrot. Við mælum því með að hjól séu ávallt læst í reiðhjólageymslum og öðrum svæðum þar sem margir ganga um. Reiðhjólageymslur eru oft opnar og því yrðu ekki sjáanleg merki um inn- brot ef hjóli væri stolið.“ Verðmæti hjólsins skiptir máli Jóney segir að mikilvægt sé að hafa verðmæti hjólsins í huga þegar það er tryggt. „Dýrum reiðhjólum hefur fjölgað gríðarlega í takt við aukinn áhuga á hjólreiðum. Ef þú átt hjól sem er verðmætara en 500.000 krónur mælum við með að keypt sé sérstök trygging fyr- ir reiðhjól.“ Líkt og er með hefð- bundna heim il is- eða fjölskyldu trygg ingu er eig in áhætta 25% en með því að tryggja hjólið sér er það bætt óháð verðmati. Sérstök slysatrygging fyrir hjólakeppnir Þeir sem ætla að keppa á hjóli þurfa að huga sérstaklega að trygg- ingum. „Í frítímaslysatryggingu sem fylgir ákveðnum fjölskyldu- trygginum eru bætt slys í íþrótt- um sem stundaðar eru til heilsu- bótar og skemmtunar,“ segir Jóney. Sú trygging bætir hins vegar ekki slys sem verða í keppni eða við æf- ingar til undirbúnings fyrir keppni. „Til að þú sért tryggður í keppnisí- þróttum ráðleggjum við því fólki að hafa almenna slysatryggingu.“ Það er því fyrir öllu að tryggja bæði hjólið og hjólreiðakappann, áður en haldið er út í hjólasumarið. Þegar kemur að því að tryggja hjól er æskilegt að tryggja dýr hjól sérstaklega. Ef stefnt er á hjólreiðakeppni er nauðsynlegt að hafa slysatryggingu. Mynd/Shutterstock.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.