Fréttatíminn


Fréttatíminn - 26.06.2015, Page 50

Fréttatíminn - 26.06.2015, Page 50
50 matur & vín Helgin 26.-28. júní 2015 Coste Carezzi Parziale Appassimento Gerð: Rauðvín Þrúga: Cabernet Sauvignon – Merlot Uppruni: Veneto, Ítalía Styrkleiki: 14% Verð í Vínbúð- unum: kr. 6.399 3L Smá sæta, milt en kryddað. Mixtus Chardonnay Chenin Gerð: Hvítvín Þrúga: Blanda af Chardonnay og Chenin Uppruni: Argentína Styrkleiki: 12% Verð í Vínbúð- unum: kr. 5.298 3L Pínu súrt með greip- bragði. Fínt á góðum sumardegi. Drostdy- Hof Chenin Blanc Gerð: Hvítvín Þrúga: Chenin Blanc Uppruni: Suður- Afríka Styrkleiki: 12% Verð í Vínbúð- unum: kr. 5.199 3L Þurrt með ljósum ávexti og eplum. Sýruríkt. Vina Maipo Cabernet Sauvignon Gerð: Rauðvín Þrúga: Cabernet Sauvignon Uppruni: Chile Styrkleiki: 11,5% Verð í Vínbúð- unum: kr. 4.998 3L Milt og hentar flestum. Gott verð. Pata Negra Tempranillo Barrel Aged Gerð: Rauðvín Þrúga: Tempranillo Uppruni: Spánn Styrkleiki: 13% Verð í Vínbúð- unum: kr. 5.699 3L Dökkur og mikill ávöxtur. Fínt með grillkjötinu. Two Oceans Sauvignon Blanc Gerð: Hvítvín Þrúga: Sauvignon Blanc Uppruni: Suður- Afríka Styrkleiki: 12,5% Verð í Vínbúð- unum: kr. 5.399 3L Sítrus og smá suðrænn seiðingur. Fersk sýra. Gott með skelfiski. Xxxxxx Xxxxx: Xxxxx Vín vikunnar Höskuldur Daði Magnússon Teitur Jónasson ritstjorn@frettatiminn.is klippið Sendu okkur 5 toppa af Merrild umbúðum og þú gætir unnið hina sígildu kaffikönnu frá Stelton. 10 heppnir vinningshafar verða dregnir út í hverri viku frá 30. júní til 1. september 2015, alls 100 talsins. Þátttökuumslög í öllum verslunum. Á Facebook-síðu okkar, Facebook/Merrild á Íslandi, verða birt úrslit auk frekari upplýsinga um leikinn. Geta kassavín verið klassavín? K assavín eru vinsæl á Íslandi. Eflaust er upp undir 40% af öllu léttvíni sem selst í þess konar umbúðum. Samt er orð- spor kassavínsins ekki jafn gott og flöskuvína. Kannski skiljanlegt því hægt er að fá mun dýrari og betri vín í flöskum en kössum en kassavín og sama vín á flösku er sama vínið og bragðast nákvæmlega eins. Svo er hægt að gera kostakaup í kassa- vínum. Bæði eru þau oft ódýrari en sama vín í flöskum og svo geymast þau tíu sinnum lengur eftir opnun en flöskuvínin. Annar kostur við kassa- vínin er að þau eru miklu umhverfis- vænni en flöskuvínin. Kassavín eru vín sem á að njóta strax, helst innan árs frá framleiðsludegi. Þau henta ekki til geymslu óopnuð en haldast þó fersk í opnuðum kassanum í 6-8 vikur og lengur séu þau geymd í kæliskáp. Þau eru því einkar þægileg sé ætlunin að fá sér bara eitt glas með matnum, annað slagið. Þegar vínið er að klárast borgar sig að opna kassann og kreista síðustu dropana úr pokanum. Það eru nefnilega alltaf eitt til tvö glös eftir þegar hægist á bununni úr kassanum. Svo er um að gera að endurnýta pok- ann undan víninu. Hann er hægt að þrífa og nýta sem vatnsgeymslu eða jafnvel til að vökva blómin. Fjögur frábær tækifæri fyrir kassavín 1. Geyma í kæliskápnum til að fá sér eitt og eitt glas með matnum annað slagið. Geymist þannig vikum saman og helst ferskt. 2. Taka með í útileguna eða ferðalagið. Raðast vel í bílnum, þú þarft bara einn kassa en 4 flöskur fyrir sama magn. Er umhverfisvænt og endur- nýtanlegt sem vatnspoki. 3. Sparnaður fyrir stórafmælið, útskriftarveisluna eða bara hvaða partí sem er. Ef þú vilt ekki að gestirnir sjái kassann þá er um að gera að fylla á glösin inni í eldhúsi eða setja í karöflur. 4. Í grillveisluna þar sem allir eru afslappaðir úti við að skemmta sér.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.