Fréttatíminn - 26.06.2015, Page 58
Jack Magnet samanstendur af bráð-
músíkölskum vinahópi Jakobs Frímanns
Magnússonar.
TónlisT Jack MagneT QuinTeT á egilssTöðuM
Árleg tónlistarveisla á Austurlandi
Hin árlega djasshátíð Austfirðinga,
Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi,
verður haldin á morgun, laugardag-
inn 27. júní í Valaskjálf. Hátíðin hef-
ur verið árviss viðburður síðan 1988
þegar Jón Múli Árnason setti fyrstu
hátíðina. Í gegnum árin hefur hátíð-
in skartað frábærum listamönnum á
borð við Larry Carlton, James Car-
ter, Svend Assusend og Beady Belle.
Jack Magnet Quintet flytur nýstár-
lega blöndu af djassi, fönki, raftónlist
og íslenskri sveiflu en hljómsveitin
samanstendur af skrautlegum og
bráðmúsíkölskum vinahópi Jak-
obs Frímanns Magnússonar. Björn
Thoroddsen spilar en hann hefur á
undanförnum árum komið fram og
stjórnað gítarfestivölum út um allan
heim og Beebee and the Bluebirds
er ein athyglisverðasta blúshljóm-
sveit landsins í dag með tónlistar-
konuna Brynhildi Oddsdóttur í far-
arbroddi. Þá er Garðar Eðvalds og
stórsveit skipuð frábærum tónlistar-
mönnum en forsprakki sveitarinnar,
Garðar Eðvalds, er austfirskur tón-
listarmaður. Lokst sækja Ranghalar
innblástur í ýmsar áttir t.d. í djass,
fönk og progg.
TíMaMóT HáTíðardagskrá á arnarHóli og gróðurseTningaráTak
Forsetakjörsafmælis
Vigdísar minnst
Þ rjátíu og fimm ár verða liðin frá sögulegu kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti
forseta Íslands 29. júní næstkom-
andi. Til að minnast tímamótanna
munu Stofnun Vigdísar Finn-
bogadóttur og Háskóli Íslands í
samvinnu við Alþingi, Reykjavík-
urborg, Samtök íslenskra sveitar-
félaga, framkvæmdanefnd um 100
ára afmæli kosningaréttar kvenna,
Þórshöfn í Færeyjum og fjölmörg
félagasamtök standa fyrir hátíðar-
dagskrá á Arnarhóli á sunnudag-
inn, 28. júní.
Viðamikið gróðursetningarátak
fer fram í öllum sveitarfélögum
landsins á morgun, laugardag.
Gróðursett verða þrjú birkitré í
anda Vigdísar, eitt fyrir stúlkur, eitt
fyrir drengi og eitt fyrir ófæddar
kynslóðir. Skógræktarfélag Íslands
og Samtök íslenskra sveitarfélaga
standa fyrir þessum hluta dag-
skrárinnar og fjármagna átakið.
Fjölbreytt dagskrá verður flutt
af stóru sviði við rætur Arnarhóls
frá klukkan 19.30 til 21. Dagskráin
verður blanda tónlistar og talaðs
máls og verður hún send út í beinni
útsendingu sjónvarps RÚV. List-
rænn stjórnandi dagskrárinnar er
Kolbrún Halldórsdóttir og stjórn=
andi útsendingarinnar verður Egill
Eðvarðsson.
Dagskráin er skipulögð með það
í huga, að því er fram kemur í til-
kynningu, að hún sé áhugaverð og
upplýsandi fyrir þann hluta þjóð-
arinnar sem var ekki fæddur árið
1980 þegar Vigdís var kjörin for-
seti. -jh
Gróðursetningarátak fer fram í öllum sveitarfélögum landsins á morgun,
laugardag. Gróðursett verða þrjú birkitré í anda Vigdísar, eitt fyrir stúlkur, eitt
fyrir drengi og eitt fyrir ófæddar kynslóðir. Mynd/RAX
Vigdís
Finn-
boga-
dóttir
var kosin
forseti
Íslands
fyrir 35
árum.
Mynd/Árni
Sæberg
Þjóðminjasafn Íslands leitast nú við að safna heimild-
um um aðstæður kynjanna hér á landi á síðari hluta
20. aldar fram til dagsins í dag en tilefnið er 100 ára
kosningaafmæli kvenna á þessu ári. Einnig er enn
unnið að söfnun á minningum um ömmur, að því er
fram kemur á heimasíðu safnsins.
Spurningaskrár eru aðgengilegar á heimasíðunni
en leitað er eftir að fólk segi frá minningum sínum og
gefi löng og ítarleg svör.
Sýningin Hvað er svona merkilegt við það? Störf
kvenna í 100 ár er sýningarframlag Þjóðminjasafns-
ins á kosningarafmælinu en sýningin stendur yfir í
Bogasalnum út árið 2015.
Heimildasöfnun
um ömmur og
aðstæður kynja
Stúlka með brúðu í kerru. Mynd Þjóðminjasafnið
58 menning Helgin 26.-28. júní 2015
Fuss teppi
HK Living stóll
Finnsdottir krukka
Brúðargjafirnar
fást hjá okkur
Bjóðum brúðhjónum upp á að gera brúðargjafalista.
Brúðhjónin fá 10% inneign í versluninni af
heildarúttekt listans og fallega gjöf frá okkur.
Síðumúla 21
S: 537-5101
snuran.is
Sími: 5 700 900 - prooptik.is
Air Optix Aqua linsurnar með
40% afslætti frá 19.-30. júní.
Fullt verð 9.900 kr.
TILBOÐSVERÐ: 5.940 kr.
Barnagleraugu frá
0 kr.