Fréttatíminn - 03.07.2015, Blaðsíða 2
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
Albir
Frá kr. 65.900
m/morgunmat
Netverð á mann frá kr. 65.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í herbergi.
Netverð á mann frá kr. 79.900 m.v. 2 fullorðna í herbergi.
Sun Palace Albir
5. júlí
í 7 nætur
Samfélag Happaþrennur má ekki Selja börnum undir 18 ára
Umboðsmaður
barna gagnrýnir
Happaþrennur
Umboðsmaður barna hefur gert athugasemdir við sölu á Happaþrennum með myndum úr tölvu
leiknum Plants vs Zombies 2 þar sem um sé að ræða markaðssetningu sem höfðar til barna.
Rekstrarstjóri Happaþrennudeildar HHÍ segist hafa fengið þær upplýsingar frá framleiðanda
leiksins að hann væri aðallega spilaður af fullorðnum en eftir ábendingu hafi verið tekin sú
ákvörðun að panta ekki annað upplag af Happaþrennum með myndum úr leiknum.
f yrir mér er þetta eins og að setja teiknimyndir á sígarettupakka,“ segir Ásbjörg Una Björnsdóttir um
Happaþrennur með myndum úr tölvuleikn-
um Plants vs. Zombies 2. Leikurinn er afar
vinsæll hjá börnum á Íslandi – til að mynda
syni Ásbjargar – og því finnst henni skjóta
skökku við að selja Happaþrennur með
myndum úr leiknum. Leikurinn er marg-
verðlaunaður, á vefsíðu framleiðanda leiks-
ins segir að hann sé „afar ávanabindandi“
og sé ætlaður fyrir 10 ára og eldri. Hann er
hægt að spila í snjallsímum, spjaldtölvum
og Xbox-leikjatölvum, en í leiknum reyna
ýmsar garðplöntur að koma í veg fyrir inn-
rás uppvakninga.
Umboðsmaður barna hefur haft samband
við Happdrætti Háskóla Íslands, sem selur
Happaþrennurnar og bent á að þessi mark-
aðssetning samræmist illa leiðbeinandi
reglum um neytendavernd barna en í
þeim er sérstaklega fjallað um
bæði happdrætti og söfn-
unar- og happaleiki, og
segir þar meðal annars:
„Forðast skal í almennri
markaðssókn að notast við söfn-
unar- eða happaleiki sem beinast
sérstaklega að börnum eða annað
sem höfðar til söfnunartilhneig-
ingar barna.“
Steinunn Inga Björnsdóttir, rekstrarstjóri
Happaþrennudeildar HHÍ, segir að eftir
ábendingu um að Happaþrennur með mynd-
um úr leiknum Plants vs. Zombies 2 kunni
að höfða til barna hafi verið tekin ákvörðun
um að panta ekki annað upplag af þeim.
„Framleiðandi leiksins kynnti fyrir okkur
tölur sem sýndu að 82% þeirra sem spiluðu
leikinn væru fullorðnir,“ segir hún en skaf-
miðar með myndum úr Plants vs. Zombies
eru seldir víða um heim. „Við töldum að ef
þetta væri vinsæll leikur hjá fullorðnum þá
væri skemmtileg tilbreyting að bjóða upp á
Happaþrennur með myndum úr leiknum,“
segir hún.
Steinunn Inga leggur áherslu á að söluað-
ilar Happaþrennunnar séu upplýstir um að
ekki megi selja þær yngri en 18 ára. Ásbjörg
Una bendir hins vegar á að Happaþrenna sé
víða seld í sjálfsölum og því hljóti eftirlit að
vera af skornum skammti. Stein-
unn Inga segir sjálfsala HHÍ setta
upp við ýmsar verslanir og það sé
hlutverk starfsfólks að hafa eftir-
lit með því hverjir nota sjálfsal-
ana. „Undir engum kringumstæð-
um á að greiða út vinninga til barna
undir 18 ára,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Undir
engum
kringum-
stæðum á
að greiða út
vinninga til
barna undir
18 ára.
Happdrætti Háskóla Íslands fékk þær upplýsingar frá framleiðanda leiksins Plants vs Zombies að aðallega fullorðið fólk spilaði
leikinn en hann nýtur þó einnig mikilla vinsælda hjá börnum. Happaþrennur með myndum úr leiknum má víða kaupa í sjálf
sölum. Mynd/Hari
ríkiSreikningur Skattar Hækkuðu um 59 milljarða milli ára
Skattbyrði einstaklinga og
fyrirtækja þyngdist milli
áranna 2013 og 2014.
S katttekjur ríkissjóðs jukust um 59 milljarða milli ára, að því kemur í ríkisreikningi
fyrir árið 2014 sem Fjársýsla ríks-
ins hefur gefið út. Útgjöld ríkis-
sjóðs jukust um 17 milljarða króna
en þar vegur þyngst 8 milljarða
króna hækkun launakostnaðar. Í
heild batnaði afkoma ríkissjóðs
um 47 milljarða króna og er þetta í
fyrsta sinn frá falli fjármálakerfis-
ins sem ríkissjóður skilar afgangi,
að því er fram kemur í samantekt
Viðskiptaráðs.
Af ríkisreikningi er ljóst, segir
Viðskiptaráð, að skattbyrði ein-
staklinga og fyrirtækja hefur
þyngst. Þar kemur fram að skatt-
tekjur ríkissjóðs sem hlutfall af
landsframleiðslu hafi vaxið úr
27,1% í 30,2% á milli ára og all-
ir helstu skattstofnar hækkað.
Hlutfallslega var aukningin mest
í t il felli f jármagnstekjuskatts
einstaklinga, 39% aukning, og
fyrirtækjaskatts, 37% aukning.
Þá vekur athygli, segir ráðið, að
tryggingagjöld hafi hækkað um
5% á milli ára þrátt fyrir að at-
vinnuleysi hafi minnkað úr 5,4%
niður í 5,0% á sama tímabili, sam-
kvæmt upplýsingum Hagstofu Ís-
lands.
Þá virðist aðhaldi í ríkisfjár-
málum vera lokið í bili, segir
Viðskiptaráð enn fremur. Launa-
kostnaður ríkisins jókst um 6% á
milli ára og önnur rekstrargjöld
um 4%. -jh
Þyngri skattbyrði fyrirtækja og einstaklinga
Fyrsti fundur
gerðardóms í dag
Gerðardóm ur hefur verið skipaður í kjara
deilu Banda lags há skóla manna (BHM) og ís
lenska rík is ins. Fyrsti fundur BHM og ríkisins
með dómnum er klukkan 10 í dag, föstudag.
Garðar Garðarsson hæstaréttarlögmaður er
formaður gerðardómsins.
Guðlast ekki lengur
glæpur
Alþingi samþykkti í gær, fimmtudag, að
af nema ákvæði um guðlast úr hegn ing ar lög
um. Þing menn Pírata lögðu fram frumvarp
þess efnis. Vilhjálmur Bjarnason greiddi einn
þingmanna atkvæði gegn frumvarpinu og
þau Ásmundur Friðriksson, Þorsteinn Sæ
mundsson og Vigdís Hauksdóttir sátu hjá.
Sif Cosmetics verður
BIOEFFECT
Sif Cosmetics ehf, sem framleiðir BIOEF
FECT húðvörurnar, hefur breytt um nafn
og mun eftirleiðis heita BIOEFFECT ehf.
Húðvörur fyrirtækisins njóta mikilla
vinsælda víða um heim og er BIOEFFECT
orðið eitt stærsta íslenska vörumerkið á
neytendamarkaði erlendis. BIOEEFFECT
ehf. er dótturfyrirtæki ORF Líftækni.
Kristinn D. Grétarsson, forstjóri fyrir
tækisins, segir nafnabreytinguna vera
eðlilegt framhald á velgengi BIOEFFECT
varanna á erlendum mörkuðum og það sé
eðlileg þróun að fara í þessar breytingar
hér á okkar heimamarkaði.
Óhögguð skuldbinding um að verja Ísland
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fundaði í Pentagon með aðstoðar
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert S. Work, á miðvikudaginn. Ræddu
ráðherrarnir þróun varnar og öryggismála í NorðurEvrópu, meðal annars með
tilliti til umsvifa rússneska heraflans og aðgerða Rússa í Úkraínu og víðar, að því
er fram kemur á síðu utanríkisráðuneytisins. Work sagði skuldbindingu Banda
ríkjanna um að verja Ísland algerlega óhaggaða og lýsti vilja til þess að skoða
möguleika til frekara samstarfs ríkjanna á sviði öryggis og varnarmála. Hann
sagði Ísland lykilbandamann og að staðsetning landsins væri áfram hernaðar
legamikilvæg.
2 fréttir Helgin 3.5. júlí 2015