Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.07.2015, Blaðsíða 68

Fréttatíminn - 03.07.2015, Blaðsíða 68
Krás opnar aftur um helgina Götumatarmarkaðurinn Krás vakti mikla lukku í Fógetagarðinum í fyrrasumar og á morgun, laugardag, hefjast leikar á ný. Krás verður opinn næstu níu laugardaga, eða út ágústmánuð. Krás verður opnað með pompi og prakt klukkan 13 á morgun og mun Samúel Jón Samúelsson Big Band gefa tóninn áður en fólk getur heilsað upp á tólf spenn- andi veitingabása. Nokkrir veitingastaðir verða með bás allar níu helgarnar en aðrir verða aðeins einu sinni. Að þessu sinni verður götumatur frá veitingastöðunum Kol, The CooCoo’s Nest, Walk the Plank, Fredriksen, Momo Ramen, Apótekinu, Móður náttúru, Public House, Kjallaranum, Austurlandahraðlestinni og Sushivagninum. Þá mun Skúli Craft Bar sjá um vínveitingarnar. Skipuleggjendur Krásar eru sem fyrr þau Gerður Jónsdóttir og Ólafur Örn Ólafsson. Danni sýnir í Grikklandi Daníel Þorsteinsson, sem þekktur er fyrir störf sín með hljómsveitum á borð við Maus, Sometime og Brim, lætur fjár- málakreppuna í Grikklandi ekki trufla sig og tekur þátt í kvikmyndahátíð þar í landi um helgina. Acid Make-Out, sem er fyrsta mynd Danna, var valin til sýningar á Mykonos tvíæringnum. Myndin fjallar um aðrar víddir, drauma og tímaskyn og er byggð á bókinni Sex, Drugs Einstein & Elves eftir Bandaríska vísindamanninn Clif- ford A. Pickover. Rafdúóið Sometime samdi tónlistina en meðal leikara í myndinni er rússneska listakonan Sasha Kellerman, Barry Paulson, ísraelska vídeólistakonan Shira Kela, Depinder Kaur og hin umdeilda Labanna Babalon. Kalli Olgeirs og fé- lagar djassa Jazzdjöflar Kalla Olgeirs troða upp á Café Rosenberg í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 22. Jazzdjöflarnir eru ný hljóm- sveit sem leikur gamla söngdansa á borð við þá sem Frank Sinatra, Louis Armstrong og Ella Fitzgerald sungu á sinni tíð. Sveitina skipa Kalli Olgeirs söngvari og píanóleikari, Snorri Sigurðsson á trompet, Toggi Jóns- son bassaleikari og Ólafur Hólm leikur á trommur. Ásamt þeim koma fram söngvar- arnir Sigga Eyrún og Jógvan Hansen.  TónlisT Herdís sTefánsdóTTir lærir kvikmyndaTónsmíðar við nyU  skemmTanalíf Hinn vinsæli skemmTisTaðUr dolly leggUr Upp laUpana Jón Gunnar Geirdal opnar nýjan stað í húsnæði Dolly Það á vissulega að fara af stað með breytingar og það verður gaman að segja frá þeim síðar. Við leyfum Þuru Stínu og þeim að kveðja staðinn og svo hefjast fram- kvæmdir,“ segir Jón Gunnar Geirdal athafnamaður. Í gær, fimmtudag, var tilkynnt að skemmtistaðnum Dolly í Hafnar- stræti verði lokað um aðra helgi. Staðurinn hefur verið rekinn í tæp þrjú ár við miklar vinsældir. Þura Stína, rekstrarstjóri staðar- ins, greindi frá lokun hans í hjart- næmri uppfærslu á Facebook. „Ég kveð með risastóru brosi á vör, smá trega en þakklæti um- fram allt og sé ykkur vonandi sem flest næstu tvær helgar,“ sagði hún. Fyrir nokkrum mánuðum var tilkynnt að Dóra Take- fusa hefði selt hlut sinn í staðnum og kaupandi væri Ásgeir Kolbeinsson, sem rekið hefur Austur. Samkvæmt upplýs- ingum Fréttat ím- ans hefur Ásgeir þó verið í eigendahópi skemmtistaðarins frá upphafi þó það hafi ekki farið hátt. Nú verður breyting á og nýr maður í brúnni er Jón Gunnar Geirdal. „Ég og nokkrir góðir drengir, til að mynda Jón Þór Gylfason sem rek- ur Center í Reykja- nesbæ, opnum ný jan stað þarna. Þetta verður al- veg ný t t konsept,“ segir Jón Gunnar. Hann segir að Ás- geir Kolbeinsson verði ekki í þeim hópi enda hafi hann nóg á sinni könnu – umdeildan rekstur Austurs og Nasa sem opnað verður að nýju í haust. -hdm Jón Gunnar Geirdal tekur við húsnæði Dolly í Hafnarstræti og opnar nýjan skemmtistað. Hætti í lögfræði til að læra kvikmyndatónsmíðar Herdís Stefánsdóttir lærir kvikmyndatónsmíðar við NYU háskólann og verður fyrsta íslenska konan til að útskrifast með meistaragráðu í faginu. Hún gaf laganám upp á bátinn til að helga sig tónlistinni og gefur út plötu með hljómsveit sinni síðar á árinu. É g elska þetta. Þetta er án gríns það skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir Her- dís Stefánsdóttir um meistaranám sitt í kvikmyndatónsmíðum við Steinhardt-deildina í NYU. Herdís hefur lokið fyrra árinu í tveggja ára námi. Ef að líkum lætur verður hún fyrsta íslenska konan sem útskrif- ast með meistarapróf í kvikmynda- tónsmíðum. Hvernig atvikaðist það að þú fórst að læra kvikmyndatónsmíðar? „Það gerðist bara smátt og smátt. Ég var í klassískum tónsmíðum í Listaháskólanum en sóttist mik- ið eftir því að vinna með öðrum, dönsurum og leikurum. Ég hef alltaf elskað kvikmyndir og byrj- aði reyndar frekar ung að hlusta á sándtrökk frekar en popptónlist. En ég hafði aldrei hugsað mér að það væri hægt að verða kvikmynda- tónskáld,“ segir Herdís sem skráði sig í lögfræði eftir að hafa klárað MR. Hún fann sig ekki í lögfræð- inni. „Nei, lögfræðin var ekki minn te- bolli í lífinu. Ég var í lagadeildinni í tvö ár en seinna árið var ég bara að gera músík á fullu og sótti um í LHÍ og komst inn. Ég var samt búin með tvo þriðju af BA-gráðunni þegar fór út í annars konar lög.“ Herdís er 27 ára, alin upp í Vest- urbænum og bjó um skeið í Svíþjóð sem barn. Hún fór eins og áður segir í MR, þá í lögfræði áður en hún helgaði sig tónlistinni. Eftir að hafa klárað LHÍ fór hún til Berlínar. „Ég var í eitt ár að vinna fyrir Egil Sæbjörnsson og svo var ég búin að vera að taka að mér lítil verk- efni áður ég komst inn í þetta nám í NYU,“ segir hún og það lifnar yfir henni þegar hún lýsir náminu. „Þetta er frábært. Að vakna klukkan níu á mánudegi og fara að semja tónlist við senu úr Avatar er magnað. Þetta er mjög krefjandi nám og ótrúlega flottir kennarar.“ Herdís kveðst ekki vita hvað taki við að námi loknu en hún býst þó við því að reyna fyrir sér úti. „Það stefnir allt í það, ég er þegar byrjuð að fá nokkur verkefni. Ég býst við að verða annað hvort í New York eða jafnvel L.A., það hafa margir í deildinni minni farið í starfsnám þangað. Ég held alla vega að ég komi ekki heim strax, nema ein- hver vilji ráða mig í vinnu – þá skoða ég það.“ Þessa dagana er það þó hljóm- sveitin East of my Youth sem á allan hug Herdísar. Hljómsveitina stofnaði hún með Thelmu Marín Jónsdóttur leikkonu í fyrra. „Við bjuggum saman í Berlín og vorum eitthvað að glamra og leika okkur. Svo fluttum við báðar heim í janúar, ósáttar og illa búnar fyrir lífið og héldum áfram að leika okkur uppi í Listaháskóla. Þá fór þetta að breyt- ast meira í elektróníska tónlist og fyrsta lagið, Lemonstars, varð til,“ segir hún. Eftir að hljómsveitin var bókuð á Iceland Airwaves var komin pressa á að semja fleiri lög og Telma heim- sótti Herdísi til New York. „Við fengum svo Guðna Einarsson til liðs við okkur og náðum að gera frekar þétt sett á fimm dögum sem ég hafði aflögu í kringum hátíð- ina. Eftir það urðum við bara hin heilaga þrenning og höfum verið að vinna að tónlist í fjarsambandi í tíu mánuði. Ég í New York, Thelma á Akureyri og Guðni í Reykjavík.“ Frá því að Herdís kom til lands- ins í maí hafa þau þrjú unnið stíft að upptökum á plötu sem þau fjár- magna í gegnum Karolinafund. Söfnuninni lýkur einmitt í dag og síðdegis í gær höfðu safnast ríflega fjögur þúsund evrur af þeim fimm þúsund sem stefnt er að. „Okkur finnst við fyrst núna vera að byrja sem band. Í sumar förum við í tveggja vikna ferð til Berlínar til að spila á tónleikum og við verð- um svo að spila í Iðnó á menningar- nótt,“ segir Herdís. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Herdís Stefánsdóttir er 27 ára Vesturbæingur sem nemur kvikmyndatónsmíðar við hinn virta NYU-háskóla í New York. Ljósmynd/Hari Um er að ræða u.þ.b. 400 ha lands, íbúðarhús, áfast fjós, fjárhús og hlaða. Vatn á staðnum en ekki rafmagn. Falleg jörð í sveitarfélagi sem er í mikilli uppbyggingu. Upplagt tækifæri fyrir rétta aðila. Arður af veiðirétti í Litluá fylgir. Upplýsingar á vefslóð www.nyibaer.uppsetning.is eða í síma 899 4436 Nýibær í Kelduhverfi til sölu 62 dægurmál Helgin 3.-5. júlí 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.