Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.07.2015, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 03.07.2015, Blaðsíða 8
Jóhannesarlundur vígður Jóhannesarlundur við Búrfellsvirkjun var vígður á miðvikudaginn en reiturinn er til heiðurs Jóhannesi Nordal, fyrrum seðlabankastjóra og fyrsta stjórnarfor- manni Landsvirkjunar. Fyrirtækið minnist 50 ára afmælis síns um þessar mundir með ýmsum hætti. Jóhannes gegndi starfi stjórnarformanns í 30 ár og lét af störfum 30. júní 1995. Til að sýna Jóhannesi þak- klæti sitt ákvað starfsfólk Landsvirkjunar að afmarka reit til gróðursetningar við Búrfellsvirkjun og nefna hann Jóhannesar- lund. Lundurinn var vígður á samkomu núverandi og fyrrverandi starfsmanna fyrirtækisins. Á myndinni eru Jóhannes Nordal og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, við gróðursetningu fyrsta trésins í Jóhannesarlundi en 50 tré voru gróðursett í lundinum, eitt fyrir hvert starfsár Landsvirkjunar. Afgangur af vöruskiptum fyrstu 5 mánuðina Afgangur af vöruskiptum við útlönd fyrstu fimm mánuði ársins nemur 2,3 milljörðum króna en vöruskiptajöfnuðurinn var óhagstæður í maí, að því er Hagstofan greinir frá. Í maí voru fluttar út vörur fyrir 54,3 milljarða króna og inn fyrir 57,2 milljarða króna. Vöruskiptin í maí voru því óhagstæð um 2,9 milljarða króna. Í maí 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 5,0 milljarða króna. Fyrstu fimm mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir rúma 276,2 milljarða króna en inn fyrir tæpa 274,0 milljarða króna. Afgangur var því af vöruskiptum við útlönd sem nam 2,3 mill- jörðum króna, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 2,2 milljarða. Fyrstu fimm mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 48,7 milljörðum eða 21,4% hærra en á sama tíma árið áður. Aflaverðmæti jókst um liðlega helming í mars Verðmæti afla upp úr sjó nam rúmum 19,1 milljarði í mars, 51,5% meira en í mars 2014. Vegur þar þyngst aflaverðmæti loðnu sem nam rúmum 4,9 milljörðum samanborið við 1,1 milljarð í mars 2014. Aflaverðmæti botnfisks nam rúmum 13,1 milljarði í mars sem er 22,7% aukning frá fyrra ári. Þorskurinn er sem fyrr verð- mætastur botnfisktegunda en aflaverð- mæti hans var rúmir 8,7 milljarðar í mars og jókst um tæp 30% samanborið við mars 2014, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Yfir 250 íbúðir á RÚV-lóð Tillaga Arkþing um skipulag lóðar RÚV við Efstaleiti bar sigur úr býtum í hugmynda- samkeppni á vegum Reykjavíkurborgar og RÚV, samkvæmt einróma niðurstöðu dóm- nefndar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri tilkynntu um niðurstöðu samkeppninnar við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrr í vikunni. Vinningstillagan gerir ráð fyrir yfir 250 íbúðum á lóðinni til viðbótar við umtalsvert rými fyrir skrifstofu- og þjónustubyggingar. Samkeppnin var haldin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands.  Heilbrigðismál TvöfalT lengri biðlisTi en fyrir fimm árum Tvöfalt fleiri bíða nú eftir hjúkrunarrými en fyrir fimm árum. Þeir sjúklingar sem liggja inn á spítala fá ekki viðeigandi þjónustu. Endurhæfing og örvun er mun markvissari og allur aðbúnaður betri á hjúkrunarheimilum. ast í akútumhverfi því sem er á spít- ölum og alls ekki æskilegt,“ segir Birgir. „Það er hins vegar ekki eina lausnin að byggja fleiri hjúkrunar- rými enda erum við ágætlega sett hvað varðar fjölda þeirra hér á landi ef við miðum við löndin í kringum okkur,“ segir Birgir. Hann bendir á að nær sé að byggja upp heilsu- gæslu og heimahjúkrun og veita fólki þannig þá þjónustu sem það þarf á að halda á eigin heimilum. Hann bendir jafnframt á að ástandið sé verst á höfuðborgar- svæðinu en alls ekki eins slæmt víða á landsbyggðinni. „Við höfum lagt áherslu á það í okkar ráðleggingum um stefnumótun á heilbrigðissviði að heimahjúkrun og heilsugæslan verði efld enda teljum við slíkt væn- legra til árangurs en að fjölga legu- rýmum á hjúkrunarrýmum sem þessum fjölda nemur þótt nauðsyn- legt sé eflaust að fjölga þeim frá því sem nú er,“ segir Birgir. Hver sjúklingur sem bíður í 50 daga að meðaltali á Landspítala eft- ir plássi á hjúkrunarheimili teppir sjúkrarúm sem nýst gætu fyrir fimm sjúklinga, því meðallegutími sjúklinga er innan við 10 dagar á lyf- lækningasviði. Þá hefur verið bent á að sjúkling- ar á bið eftir hjúkrunarrýmum eða heimaþjónustu fái ekki sömu þjón- ustu á spítalanum og þeir myndu fá að viðeigandi deildum, svo sem hjúkrunarheimilum, þar sem endur- hæfing og örvun er mun markviss- ari og allur aðbúnaður betri fyrir fólk sem þarf að dveljast langdvöl- um á sjúkrastofnun. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is fréttir 7 Helgin 3.-5. júlí 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.