Fréttatíminn - 03.07.2015, Blaðsíða 12
Tax Free
á búrum
og bælum
www.dyrabaer.is S: 511 2022
Smáralind Kópavogi Kringlan Reykjavík Krossmói Reykjanesbæ
1.-5.
júlí
Kjaramál VeiKindaréttur opinberra starfsmanna
Tekist á um
veikindarétt
Viðskiptaráð vill skerða veikindarétt opinberra starfsmanna og bendir á að þeir taki fleiri
veikindadaga en starfsfólk í einkageiranum. Í könnun VIRK er þetta staðfest en samkvæmt
upplýsingum frá starfsendurhæfingarsjóðnum er þetta þekkt í löndunum í kringum okkur
og skapast fyrst og fremst af því að réttindin eru til staðar.
o pinberir starfsmenn njóta betri lífeyrisréttinda, rík-ara starfsöryggis, ríflegri
veikinda- og orlofsréttinda, betri
tækifæra til endur- og símenntun-
ar og aukinna starfsaldurstengdra
réttinda samanborið við starfsfólk
á almennum vinnumarkaði, að því
er fram kemur í nýlegri grein á vef
Viðskiptaráðs. Þetta er í andstöðu
við vilja almennings, að því er seg-
ir í greininni, en í nýlegri skoðana-
könnun sem Viðskiptaráð lét gera
töldu 80-89% svarenda að réttindi
launþega ættu að vera sambærileg
hjá hinu opinbera og annars staðar.
Í þróunarverkefni starfsendur-
hæfingarsjóðsins VIRK, Virkur
vinnustaður, kom fram að áætluð
fjarvera starfsfólks vegna veikinda
er tvöfalt meira á opinberum vinnu-
stöðum en á almennum markaði.
Samkvæmt rannsókn VIRK er það
ekki einsdæmi á Íslandi að opin-
berir starfsmenn taki fleiri veik-
indadaga en starfsfólk í opinbera
geiranum heldur sé þetta þekkt í
mörgum öðrum löndum.
Fjöldi fjarverudaga á hvern starfs-
mann í úrtakinu var að meðaltali 20
dagar hjá hinu opinbera samanbor-
ið við 10 daga í einkageiranum árið
2014. VIRK leggur þó áherslu á að
þessar tölur séu engan veginn lýs-
andi fyrir alla opinbera vinnustaði
og bendir á að í könnun þessari hafi
fáir vinnustaðir verið til skoðunar
sem margir hverjir voru fámennir
þannig að hlutfallið hækkar mjög
þó svo að aðeins einn starfsmaður
sé fjarverandi vegna veikinda. Hins
vegar bendi alþjóðlegar rannsókn-
ir til þess að langtímaveikindi séu
meiri á opinberum vinnumarkaði
en í einkageiranum en ástæðan sé
einna helst aukinn veikindaréttur
hjá opinberum starfsmönnum. Þá
er bent á að skammtímaveikindi séu
sambærileg milli opinberra geirans
og einkageirans.
Í grein Viðskiptaráðs kemur
fram að forsvarsmenn ráðsins telja
að kjaraviðræður við BHM skapi
tækifæri til að jafna leikvöllinn þeg-
ar kemur að réttindum launafólks
á almennum og opinberum vinnu-
markaði. „Með afnámi umframrétt-
inda opinberra starfsmanna væri
unnt auka svigrúm til hækkunar
grunnlauna opinberra starfsmann
líkt og forsvarsmenn bandalagsins
hafa barist fyrir,“ segir jafnframt í
greininni.
Í fjölmiðlum að undanförnu hefur
komið fram að samninganefnd rík-
isins hafi komið fram með þá hug-
mynd í kjaraviðræðum við hjúkrun-
arfræðinga að minnka veikindarétt
þeirra en hækka laun á móti. Mikil
óánægja var meðal hjúkrunar-
fræðinga með þessa hugmynd sem
jafnframt varð ekki hluti af nýsam-
þykktum kjarasamningi.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Hjúkrunarfræðingar vildu ekki skipta
út veikindarétti fyrir hærri laun í
kjarasamningum sínum sem voru
endurnýjaðir á dögunum.
Hugað að framtíðar-
uppbyggingu við
Kársneshöfn
Kársnes í Kópavogi hefur verið val-
ið til þátttöku í norrænu nýsköpun-
arsamkeppninni Nordic Built City
Challenge. Sex verkefni frá öllum
Norðurlöndum voru valin til þátt-
töku í samkeppninni sem snýst um
vistvæna, snjalla og lífvænlega bæi
og borgir, að því er fram kemur í til-
kynningu Kópavogsbæjar.
„Norrænar borgir og bæir standa
frammi fyrir sambærilegum áskor-
unum þegar kemur að þróun vist-
vænna, snjallra og byggilegra bæja
og borga. Hvernig getum við stuðl-
að að fjölþjóðlegri samvinnu sem
tekst á við slíkar áskoranir? Það er
viðfangsefnið í norrænu nýsköpun-
arsamkeppninni Nordic Built Cities
Challenge. Eigendur verkefna frá
öllum Norðurlöndum sendu 37 til-
lögur að viðfangsefnum tengdum
þróun þéttbýlissvæða til Nordic
Built Cities Challenge. Sex þeirra
voru valdar og munu þær leggja
grunninn að framhaldi samkeppn-
innar. Auk Kársness voru meðal
annars valin til þátttöku Sege Park
í Malmö, Tryggve Lies Plass í Osló
og Hans Tavsens Park og Korsgade
í Kaupmannahöfn,“ segir í tilkynn-
ingunni.
„Það er heiður að vera valinn til
þátttöku í þessari samkeppni og
sýnir vel þann metnað og frum-
kvæði sem ríkir hjá Kópavogsbæ.
Við erum alltaf að leita leiða til þess
að gera góðan bæ enn betri,“ segir
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.
„Með þátttöku í Nordic Built Ci-
ties gefst Kópavogsbæ kostur á að
sækja í fjölbreytta þekkingu og hug-
myndapott fyrir framtíðaruppbygg-
ingu við Kársneshöfnina. Við viljum
að þarna verði til hverfi sem svarar
þörfum nútímans og tvinnar sam-
an borgarlíf og gæði náttúrunnar,“
segir Sverrir Óskarsson, formaður
skipulagsnefndar. -jh
Kársnes í Kópavogi er meðal sex
borgarhverfa á Norðurlöndum sem
hefur verið valið til þátttöku í norrænni
nýsköpunarsamkeppni.
10 fréttir Helgin 3.-5. júlí 2015