Fréttatíminn - 03.07.2015, Page 20
Á rið 2011 var Björgvin Franz Gíslason einn vinsælasti veislustjóri og skemmti-
kraftur landsins. Hann kom víða
fram og stýrði hann Stundinni
okkar við miklar vinsældir. Björg-
vin ákvað ásamt eiginkonu sinni,
Berglindi Ólafsdóttur, að flytjast til
Bandaríkjanna og sinna heimili á
meðan Berglind fór í nám í hjóna-
bands- og fjölskylduþerapíu. Þau
segjast bæði hafa nýtt sér slíka
þerapíu og eru bæði sammála um
það að slíkt sé nauðsynlegt í öllum
hjónaböndum, og helst áður en þörf
er á slíkum meðferðum. Berglind
segir þetta jafn mikilvægt og að
fara til tannlæknis, eða með bílinn
í skoðun. Viðhald er af hinu góða.
Björgvin langar að vinna eitthvað
áfram með þetta á sinn hátt. Hann
segir mannlega þáttinn í því sem
hann hefur fengist við í gegnum
tíðina gríðarlega áhugaverðan.
„Mig langar að fjalla eitthvað
um manneskjuna og mannleg sam-
skipti, og þá helst í sjónvarpi. Ég
hef alltaf verið svo hrifinn af þeim
miðli,“ segir Björgvin. „Ég fór í
gegnum allskonar sjálfsskoðun úti
í Bandaríkjunum. Hvað er ég að fara
að gera þegar ég kem heim? Ég fór
að pæla í því hvað ég gæti gert fyrir
samfélagið? Hvernig nýtast mínir
hæfileikar og slíkt. Á ég að leika,
á ég að skemmta og allar þessar
spurningar,“ segir hann. „Svo fór
ég að hugsa hvort það væri ekki
bara vettvangur að spjalla við fólk, á
mannlegu nótunum. Ég hitti Bjarna
Benediktsson fjármálaráðherra á
Íslendingahátíð í Norður Dakóta,
fór bara að spjalla og hugsaði um
leið að þetta gæti verið vettvangur.
Spjalla bara við fólk um lífið og til-
veruna. Allt fólk er að gera eitthvað
áhugavert. Sumt kemur mis vel út
eins og gengur og ekki allir sam-
mála því, en það er með einhverja
pælingu. Þannig þátt væri ég til í að
gera. Tala við fólk um lífið og hvað
það ætlar sér,“ segir Björgvin.
Heimavinnandi húsfaðir
Upphaflega fóru Björgvin og Berg-
lind út vegna þess að hún var að fara
í nám. „Ég fór í eitt ár í fíknifræði, til
þess að skilja Björgvin betur,“ segir
hún og hlær. „Eftir það fór ég í tveggja
ára mastersnám í hjónabands- og fjöl-
skylduþerapíu og vann sem lærling-
ur á unglingageðdeild Minneapolis
Fairview Hospital meðfram námi.
Þar öðlaðist ég þjálfun í að vinna með
unglingum sem voru að fást við geð-
og fíkniraskanir af ýmsum toga. Mér
fannst það svo gaman að ég hélt áfram
að vinna með unglingum á meðferð-
arstöð í Minneapolis í eitt ár eftir út-
skrift,“ segir Berglind.
„Það var rosalega skrýtið fyrir
mig að vera bara kominn úr hringið-
unni og hafa allt í einu ekkert að gera
nema bara að vera heima. Sem er nú
ekkert bara,“ segir Björgvin. „Það
tók hann alveg ár að lenda á jörð-
inni,“ segir Berglind. „Ég hugsaði
þetta mjög rómantískt,“ segir Björg-
vin. „Hélt bara að nú kæmi tíminn
þar sem ég gæti skrifað bíómynd-
ina sem mig hefur alltaf dreymt um
og slíkt, segir hann með brosi. En
svo bara allt í einu spurði ég mig: Af
hverju er ég svona þreyttur og þung-
ur? Ég hitti lækni og hann sagði að
ég væri að verða smá þunglyndur.
Ég var að fara í einhverskonar Cold
Turkey frá því lífi sem ég hafði lifað.
Ég þurfti engin lyf eða neitt, þetta
gekk bara yfir,“ segir Björgvin. „Ég
hafði bara ekki gert mér grein fyrir
því hvað maður hafði verið í mikilli
keyrslu. Allt í einu kynntist ég dætr-
unum upp á nýtt. Ég fattaði líka að
skemmta á Íslandi, var ekkert mál.
Að vera heimavinnandi, það er hell-
ings vinna.“
Kúl að fara í þerapíu
Berglind útskrifaðist sem hjóna-
bands- og fjölskylduþerapisti fyrir
ári og hefur unnið sem slíkur síðan.
Fyrst í eitt ár úti í Minneapolis og
nú hér heima hjá Shalom, sem er
heildræn meðferðarstöð, þar sem
hún tekur fólk í meðferð.
„Við erum þarna nokkrir þerap-
istar þar sem fáum fólk til okkar
og beinum því á þær brautir sem
henta því. Þetta er ekki beint ráð-
gjöf. Þerapía er bara önnur tegund
af samtalsmeðferð,“ segir Berg-
lind. „Þerapían fer meira í það að
leiðbeina fólki í það að hjálpa sér
sjálft. Hver er meistari í sínu lífi
og þerapían hjálpar viðkomandi að
tengja við það sem það vill sjálft,“
segir hún. „Þerapían virkar best á
hjónabönd áður en allt fer í rúst,
þ.e.a.s. ef það er að stefna í þá
átt. Þetta er í rauninni viðhald á
sambandinu. Rétt eins og að fara
í ræktina, til tannlæknis eða með
bílinn í skoðun,“ segir Berglind.
„Það þarf að vinna í hjónabandinu
líka og mig langar að hjálpa fólki
að gera það. Það er mjög mikið
sem gerist þegar hjón fara að tala
við þriðja aðilann, það er ákveðin
vernd í þriðja aðilanum.“
„Við bjuggum alveg rosalega náið
þarna úti og ég komst að allskonar
hlutum þegar við fórum í hjóna-
bandsþerapíu,“ segir Björgvin. „Ég
var alltaf á því að ég hefði yfirleitt
rétt fyrir mér,“ segir hann. „En það
var oft algert rugl. Í Bandaríkjunum
er þetta mjög algengt og þeir eru
mun opnari fyrir þessu. Það eru
mörg krabbamein í Ameríku, eins
og byssueignin, heilbrigðiskerfið og
rasismi. En að þessu leyti eru þeir
mjög framarlega,“ segir Björgvin.
„Sumum þykir þetta of mikið, en
það er bara kúl að geta farið í þera-
píu og sagt það upphátt um leið. Við
höfum verið saman í 15 ár og gift í
6, og það var bara einhvernveginn
hollt og gott að fara saman í svona
meðferð. Mér fannst ég alltaf hafa
rétt fyrir mér og fór bara í vörn, en
svo komst maður að því hvað það
var gott að gera þetta. Við stilltum
samskiptamynstrið,“ segir hann.
„Maður þarf bara að geta skoðað
hlutina frá öðru sjónarhorni en
manns eigin.“
„Þetta var líka svo mikil breyting
hjá okkur,“ segir Berglind. „Hér
heima var hann að vinna mjög mik-
ið og ég meira heima, og svo öfugt
þegar við vorum úti. Þá vildi hann
fara að gera hlutina öðruvísi og þá
þurftum við að stilla okkur upp á
nýtt og læra að gera þá meira sam-
an,“ segir hún. „Það var líka ekki
búið að vera nógu gott jafnvægi
og eins ofvirkur og ég er þá var ég
alltaf vinnandi,“ bætir Björgvin við.
„Það tók bara tíma úti að kynnast
eldri dóttur minni upp á nýtt. Við
gengum bara í gegnum þetta saman
og í dag erum við eins og ein heild,“
segir hann. „Þetta var það besta
sem við gerðum.“
„Við komum frá eins ólíkum
heimilum og hugsast getur svo það
var kannski ekkert skrýtið að við
þurftum að skoða okkur upp á nýtt,“
segir Berglind. „Það koma auðvitað
flestir frá ólíkara heimili en ég,“ seg-
ir Björgvin og hlær, en hann er sem
Endurnærð eftir fjölskylduþerapíu
og búsetu í Bandaríkjunum
Leikarinn og skemmtikrafturinn Björgvin Franz Gíslason söðlaði
um ásamt fjölskyldu sinni fyrir fjórum árum og fluttist búferlum til
Minneapolis í Bandaríkjunum. Eiginkona Björgvins, Berglind Ólafs-
dóttir, fór í nám ytra og Björgvin ákvað að vera heimavinnandi
faðir. Hann segist hafa kynnst börnum sínum upp á nýtt og jafnvel
sjálfum sér í leiðinni. Fjölskyldan er komin heim, samheldnari en
áður og segir Berglind að hún hafi þurft að koma Björgvin í aðra
heimsálfu til þess að fá hann til þess að setjast niður.
Framhald á næstu opnu
Björgvin Franz og Berglind með dætrum sínum, Eddu Lovísu og Dóru Marín. Dætrunum kynntist Björgvin upp á nýtt meðan á Bandaríkjadvölinni stóð. Mynd/Hari
18 viðtal Helgin 3.-5. júlí 2015