Fréttatíminn - 03.07.2015, Qupperneq 22
kunnugt er sonur leikaranna Gísla
Rúnars Jónssonar og Eddu Björg-
vinsdóttur.
Master í allskonar
Eftir tvö ár í Bandaríkjunum var
Björgvin orðinn eirðarlaus og ákvað
að skella sér í nám. Hann tók mast-
ersgráðu og segist vera master í
allskonar. „Ég þurfti að finna mér
eitthvað að gera, og skoðaði kvik-
myndanám og hitt og þetta. Svo
fann ég fyrir algera slysni nám í
University of Minnesota sem kall-
ast Master of Liberal Studies. Á ís-
lensku kallast þetta nám þverfaglegt
sem þýðir það að maður velur það
sem maður vill gera,“ segir hann.
„Ég hef verið með þráhyggju gagn-
vart Hollywood í mörg ár og ákvað
því að gera verkefni um Íslendinga
í Hollywood. Hvernig þeir komust
þangað? Hvernig þeim hefur gengið
o.s.frv. En svo snarbreyttist verk-
efnið í að skoða samband Íslendinga
við álfa, drauga og spákonur í gegn-
um þrjár kvikmyndir, glæpasögu
og eitt leikrit. Við segjumst öll vera
kristin, en í rauninni er meira mark
tekið á álfum á Íslandi en trú,“ seg-
ir Björgvin. „Við eigum langa sögu
með álfum og náttúrunni og það
er gaman að skoða það. Ég þurfti
semsagt að flytja til Bandaríkjanna
til að kynnast Íslandi betur og er
nú kominn með master í allskonar,“
segir Björgvin.
„Það var mjög gott að fara í nám
hjá einhverjum sem vissi ekkert
hver maður var. Einhverjum sem
keyrði mann áfram og lét mann
heyra það ef maður var að gera ein-
hverja vitleysu. Maður fékk alla þá
gagnrýni sem maður átti skilið og
var brotinn niður og byggður upp,“
segir hann. „Svo hitti ég doktors-
nema sem sagði mér að þetta ætti
alls ekki að vera ánægjulegt ferli,
svo ég tók þessu öllu með glöðu
geði.“
Af hverju Minneapolis?
„Upphaflega vildum við bara hafa
gott veður og skoðuðum svolítið
eftir því,“ segir Berglind. „En svo
á Björgvin frænda þarna sem gerði
þetta aðeins auðveldara.“
„Maður heyrir stundum einhliða
umræðu um Minneapolis, sérstak-
lega frá Íslendingum sem halda
að þetta sé bara Mall of America,“
segir Björgvin. „Íslendingar eru al-
ræmdir í Mall of America en málið
er að þessi borg og þessi staður hef-
ur ótrúlega mikið upp á að bjóða.
Það er gríðarlega mikið um hreyf-
ingu og allskonar „aktívitet“. Áður
en við vissum vorum við komin í
jóga, út að hlaupa og á skíði,“ seg-
ir Björgvin. „Samfélagið er mjög
smitandi, þegar kemur að útivist og
hreyfingu,“ segir Berglind. „Mjög
gott að vera með börn þarna og það
er mjög fallegt þarna.
Við þurftum að læra ýmislegt upp
á nýtt varðandi rekstur heimilis-
ins og slíkt. Björgvin gat ekki bara
hoppað út og farið að skemmta,“
segir hún. „Það var líka ein ástæðan
fyrir því að hann fór í nám, því þá var
sjóðurinn búinn og við gátum fengið
meiri námslán,“ segir hún. „LÍN og
Sjúkratrygingar Íslands voru okkur
mjög hjálpleg og þetta var bara mjög
góður tími,“ segir Björgvin.
Stóð þá ekki til að vera bara
áfram?
„Við héldum því alveg opnu,“ seg-
ir Berglind.
„En þetta er flókið mál og langt.“
„Berglind var að vinna með ung-
linga með geðræn vandamál og
hefði eflaust fengið að halda þeirri
vinnu áfram,“ segir Björgvin. „Það
er merkilegt að þrátt fyrir ofgnótt
af þerapistum í Bandaríkjunum, þá
eru fáir sem vilja vinna með börnum
og ungu fólki. Berglind er aftur á
móti góð í því,“ segir hann.
„Þetta voru unglingar úr vafa-
sömum hverfum og ég grínaðist
nú bara með það að það skipti mig
engu máli þar sem ég var úr get-
tóinu á Íslandi,“ segir Berglind sem
alin er upp í Breiðholtinu.
Nóg af hugmyndum
Nú þegar heim er komið þarf Björg-
vin að taka sér eitthvað fyrir hendur
en er þó áhyggjulaus í sinni leit að því
sem hann vill gera. „Ég er svo þakk-
látur því fólki sem ég hef unnið með
í gegnum tíðina að það voru nokkrir
sem hringdu bara strax þegar ég
kom til landsins og buðu mér eitt-
hvað að gera,“ segir Björgvin. „Ég er
til dæmis að fara að vinna aðeins með
Siggu og Maríu í Söngvaborginni
eins og ég hef lengi gert og svo bara
veit ég ekki. Mig langar mikið að
tala við fólk. Fólk sem er umdeilt og
á grensunni og gera eitthvað mann-
legt, og þá helst í sjónvarpi því þar á
ég heima,“ segir hann.
„Ég er með fullt af hugmyndum
og einhverjar fara í framkvæmd. Ég
hef ekki leikið í mörg ár og fann mig
ekki sterkt í leikhúsunum eftir nám.
Kannski þurfti ég bara langa pásu
frá leikhúsunum, enda búinn að alast
þar upp meira og minna síðan ég var
barn,“ segir hann. „Ég veit það ekki.
Ég finn mér eitthvað að gera. Ég vil
samt skoða hvar ég gagnast best og
hvar hæfileikarnir nýtast best,“ segir
Björgvin Franz Gíslason.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ég fattaði líka að
skemmta á Íslandi,
var ekkert mál. Að
vera heimavinnandi,
það er hellings vinna.
Björgvin Franz Gíslason og Berglind Ólafsdóttir eru glöð að vera komin aftur
heim eftir 4 ár í Bandaríkjunum. Hér er „selfie“ tekin af fjölskyldunni, hjónin með
dæturnar Eddu Lovísu og Dóru Marín. Ljósmynd/Hari
20 viðtal Helgin 3.-5. júlí 2015
Prófaðu þetta
heyrnartæki í 7 daga
Bókaðu tíma í fría heyrnar mælingu
Sími 568 6880
www.heyrnartaekni.is
Heyrnarskerðing er þreytandi!
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Ofurnett - ósýnileg í eyra eða falin á bak við eyra
Alta2 heyrnartækin frá Oticon búa yfir
einstakri tækni sem kallast BrainHearing™.
Þessi tækni hjálpar heilanum að vinna
betur úr hljóði þannig að þú upplifir það
eins eðlilega og hægt er. Með Alta2
heyrnartækjunum verður auðveldara fyrir
þig að heyra og skilja, hvort heldur sem
um lágvært samtal er að ræða eða
samræður í krefjandi aðstæðum.