Fréttatíminn - 03.07.2015, Síða 40
36 heimili & hönnun Helgin 3.-5. júlí 2015
SANYL ÞAKRENNUR
• RYÐGA EKKI
• PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN
• STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR
• AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU
• ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR
Bar
Hvern langar
ekki í sinn eigin
útibar? Með einu
vörubretti og
nokkrum gang-
stéttarhellum
má búa til
fyrsta flokks
bar. Einföld og
skemmtileg
lausn sem mun
eflaust slá í gegn.
Lifandi lúpína í vasa
Lúpínan er nú í blóma og setur
hluta landsins í f jólubláan bún-
ing, landsmönnum ýmist til ama
eða unaðar. Lúpínan sem vex hér
á landi nefnist Alaskalúpína og
var fyrst flutt til Íslands um alda-
mótin 1900 sem garðplanta og um
fimmtíu árum síðar
var farið að nota
hana í land-
græðslu. Hún
hefur
víða
gert sitt
gagn en
sit t sýn-
ist hverjum
um útbreiðslu
hennar nú, en
lúpínan hefur
náð að dreifa sér
hratt um landið. Lifandi
blóm í vasa lífga svo sannarlega
upp á heimilið og er lúpínan fínasta
heimilisprýði, bæði sér í vasa og í
bland við önnur blóm. Blómvendir
geta kostað sitt svo það er tilvalið
að skella sér út í náttúruna og tína
nokkrar lúpínur og setja í vasa.
Gott er þó að hafa í huga að lúp-
ínan getur verið lúsug þó sú
lús smitist ekki yfir
á fólk. Lúpín-
an stendur
reyndar
ekki sér-
staklega
lengi,
yfirleitt í
2-3 daga,
en þá er
bara um
að gera að
fara út aftur og
tína meira og endur-
nýja í vasann.
Vörubretti
fá nýtt líf
Nú þegar sum-
arið er loksins
gengið í garð er
um að gera að
lífga aðeins upp á
svalirnar eða ver-
öndina. Það þarf
alls ekki að kosta
mikið og geta
vörubretti eða
pallettur til dæmis
skapað huggulega
stemningu. Hér
má sjá þrjár mis-
munandi skemmti-
legar útfærslur:
Sumarblóm
Örlítið af hvítri málningu, nögl-
um og festingum og vörubrettið
er orðið að fínasta blómavegg.
Það er þó alls ekki nauðsynlegt
að festa það við vegginn, það er
vel hægt að láta brettið standa
upp við hann. Svo er bara að
raða blómunum eftir smekk.
Það er einnig auðvelt að skipta
þeim út og raða upp á nýtt að
vild. Vörubretti eru einnig til-
valin til kryddjurtaræktunar.
Garðhúsgögn
Þetta er skemmtileg
lausn fyrir stærri svæði.
Ágætt er þó að fá
einhvern handlaginn
með sér í verk af þessu
tagi. Þetta er því tilvalið
verkefni fyrir alla dútl-
ara. Einnig er hægt að
hrúga nóg af koddum
og teppum í „sófann“
í stað þess að rækta
hann og þá er komin hin
fínasta setustofa undir
berum himni.