Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.07.2015, Qupperneq 61

Fréttatíminn - 03.07.2015, Qupperneq 61
PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA KINGS OF LEON NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST #KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL  TónlisT Árleg TónlisTar- og maTarhÁTíð Á Kex hosTel um helgina h in árlega tónlistar- og matarhátíð KEX Köntrí stendur nú sem hæst á Kex Hostel. Hátíðin er haldin í kringum þjóðhátíðardag Bandaríkjanna og venju samkvæmt er boðið upp á tónlist sem er undir sterkum áhrifum frá banda- rískri þjóðlagatónlist og mat að bandarísk- um sið. Síðustu ár hefur bandarískt tón- listarfólk heimsótt okkur af þessu tilefni – til að mynda Lambchop og Morgan Kane – en í ár eru tónlistaratriðin eingöngu ís- lensk. Í gær, fimmtudag, tróðu upp Mr. Silla og KK og í kvöld, föstudagskvöld, er komið að Lights on the Highway. Þetta eru fyrstu tónleikar sveitarinnar í nokkur ár og hefj- ast þeir klukkan 21. Á morgun klukkan 20.30 er svo komið að hápunktinum þegar KEX Köntrí All Stars mætir til leiks. KEX Köntrí All Stars er húshljómsveit Kex og er skipuð þeim Ingibjörgu Elsu Turchi, Óskari Kjartanssyni, Tómasi Jóns- syni og Erni Eldjárn ásamt flottum söngv- urum, þeim Arnari Inga Ólafssyni, Elínu Ey, Lilju Björk Runólfsdóttur og Snorra Helgasyni. „Þetta verður örugglega mjög næs, það hefur alltaf verið mjög góð stemning á þessari hátíð,“ segir Snorri Helgason í samtali við Fréttatímann. Snorri hefur lengi hrifist af kántrítónlist og kann vel að meta menninguna í kring- um hana. „Það er ekkert flókið mál, þetta er skemmtilegt stöff.“ Hvað verður svo á boðstólum þarna? „Ég ætla nú bara að syngja nokkur kántrílög, tvö lög með Dylan og eitt með Patsy Cline, She’s Got You. Svo verður þarna gott samansafn af fólki að syngja með bandinu. Þar á meðal einn sem syng- ur Johnny Cash. Þetta ætti að verða helvíti gott.“ Hvað er annars að gerast hjá þér, ertu að vinna í nýju efni? „Já. Ég er byrjaður að taka upp fyrir næstu plötu, tók nokkurra daga törn um daginn þar sem við tókum upp grunna. Svo er ég að fara í næst viku vestur í Galt- arvita og ætla að vera fram í ágúst við að semja og klára önnur verkefni sem ég er með í pokahorninu.“ Er eitthvað fleira spennandi í bígerð? „Já, ég er eiginlega þrjú verkefni í gangi. Auk plötunnar er ég að semja ný íslensk lög upp úr þjóðsögunum, vinna nýja tónlist upp úr þeim. Það er búið að vera í gangi í sirka tvö ár en nú ætla ég að setja púður í þetta og reyna að klára. Það er tímafrekt að lesa svona mikið og ég ætla að nýta tímann í vitanum. Við erum að fara stór hópur þangað, Saga kærastan mín, Hugleikur Dagsson og Örn Eldjárn til að mynda, og ætlum að reyna að gera einhvers konar barnatónlist í leiðinni. Það kemur svo bara í ljós hvernig það gengur allt saman.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Við erum að fara stór hópur þang- að, Saga kærastan mín, Hugleikur Dagsson og Örn Eldjárn til að mynda, og ætlum að reyna að gera einhvers konar barnatónlist í leiðinni. Snorri Helgason treður upp með KEX Köntrí All Stars á hátíðinni Kex Köntrí sem nú stendur yfir. Auk hans syngja Arnar Ingi Ólafsson, Elín Ey og Lilja Björk Runólfsdóttir með sveitinni. Ljósmynd/Hari Tónlistar- og matarhátíðin KEX Köntrí er árviss viðburður á Kex Hostel í kringum þjóðhátíðardag Bandaríkjanna. Hátíðin stendur nú sem hæst og á laugardagskvöld er komið að hápunkti hennar en þá treður Kex Köntrí All Stars upp. Snorri Helgason er einn þeirra sem syngja með sveitinni og hann býst við góðri stemningu. Snorri vinnur nú að næstu sólóplötu sinni, nýrri tónlist upp úr þjóðsögunum og tónlist fyrir börn. Snorri Helga syngur Dylan og Patsy Cline Inniheldur ICARIDINE og DEET/CITRIODIOL Moustidose flugnafæla Alvöru flugnafæla fyrir erfið svæði sem veitir vernd í allt að 8 klst. Fæst í apótekum Dreifing: Ýmus ehf Sími: 5 700 900 - prooptik.is ÚTSALA HJÁ PROOPTIK 20-50% AFSLÁTTUR AF GLERAUGNAUMGJÖRÐUM FULL VERSLUN AF: 56 menning Helgin 3.-5. júlí 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.