Fréttatíminn - 03.07.2015, Side 62
PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA
KINGS OF LEON
NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST
#KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL
TónlisT Árleg TónlisTar- og maTarhÁTíð Á Kex hosTel um helgina
h in árlega tónlistar- og matarhátíð KEX Köntrí stendur nú sem hæst á Kex Hostel. Hátíðin er haldin í
kringum þjóðhátíðardag Bandaríkjanna
og venju samkvæmt er boðið upp á tónlist
sem er undir sterkum áhrifum frá banda-
rískri þjóðlagatónlist og mat að bandarísk-
um sið. Síðustu ár hefur bandarískt tón-
listarfólk heimsótt okkur af þessu tilefni
– til að mynda Lambchop og Morgan Kane
– en í ár eru tónlistaratriðin eingöngu ís-
lensk.
Í gær, fimmtudag, tróðu upp Mr. Silla og
KK og í kvöld, föstudagskvöld, er komið
að Lights on the Highway. Þetta eru fyrstu
tónleikar sveitarinnar í nokkur ár og hefj-
ast þeir klukkan 21. Á morgun klukkan
20.30 er svo komið að hápunktinum þegar
KEX Köntrí All Stars mætir til leiks.
KEX Köntrí All Stars er húshljómsveit
Kex og er skipuð þeim Ingibjörgu Elsu
Turchi, Óskari Kjartanssyni, Tómasi Jóns-
syni og Erni Eldjárn ásamt flottum söngv-
urum, þeim Arnari Inga Ólafssyni, Elínu
Ey, Lilju Björk Runólfsdóttur og Snorra
Helgasyni.
„Þetta verður örugglega mjög næs,
það hefur alltaf verið mjög góð stemning
á þessari hátíð,“ segir Snorri Helgason í
samtali við Fréttatímann.
Snorri hefur lengi hrifist af kántrítónlist
og kann vel að meta menninguna í kring-
um hana. „Það er ekkert flókið mál, þetta
er skemmtilegt stöff.“
Hvað verður svo á boðstólum þarna?
„Ég ætla nú bara að syngja nokkur
kántrílög, tvö lög með Dylan og eitt með
Patsy Cline, She’s Got You. Svo verður
þarna gott samansafn af fólki að syngja
með bandinu. Þar á meðal einn sem syng-
ur Johnny Cash. Þetta ætti að verða helvíti
gott.“
Hvað er annars að gerast hjá þér, ertu
að vinna í nýju efni?
„Já. Ég er byrjaður að taka upp fyrir
næstu plötu, tók nokkurra daga törn um
daginn þar sem við tókum upp grunna.
Svo er ég að fara í næst viku vestur í Galt-
arvita og ætla að vera fram í ágúst við að
semja og klára önnur verkefni sem ég er
með í pokahorninu.“
Er eitthvað fleira spennandi í bígerð?
„Já, ég er eiginlega þrjú verkefni í
gangi. Auk plötunnar er ég að semja ný
íslensk lög upp úr þjóðsögunum, vinna
nýja tónlist upp úr þeim. Það er búið að
vera í gangi í sirka tvö ár en nú ætla ég
að setja púður í þetta og reyna að klára.
Það er tímafrekt að lesa svona mikið og ég
ætla að nýta tímann í vitanum. Við erum
að fara stór hópur þangað, Saga kærastan
mín, Hugleikur Dagsson og Örn Eldjárn
til að mynda, og ætlum að reyna að gera
einhvers konar barnatónlist í leiðinni. Það
kemur svo bara í ljós hvernig það gengur
allt saman.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Við erum að fara
stór hópur þang-
að, Saga kærastan
mín, Hugleikur
Dagsson og Örn
Eldjárn til að
mynda, og ætlum
að reyna að gera
einhvers konar
barnatónlist í
leiðinni.
Snorri Helgason treður upp með KEX Köntrí All Stars á hátíðinni Kex Köntrí
sem nú stendur yfir. Auk hans syngja Arnar Ingi Ólafsson, Elín Ey og Lilja
Björk Runólfsdóttir með sveitinni. Ljósmynd/Hari
Tónlistar- og matarhátíðin KEX
Köntrí er árviss viðburður á Kex
Hostel í kringum þjóðhátíðardag
Bandaríkjanna. Hátíðin stendur nú
sem hæst og á laugardagskvöld
er komið að hápunkti hennar en
þá treður Kex Köntrí All Stars upp.
Snorri Helgason er einn þeirra sem
syngja með sveitinni og hann býst
við góðri stemningu. Snorri vinnur
nú að næstu sólóplötu sinni, nýrri
tónlist upp úr þjóðsögunum og
tónlist fyrir börn.
Snorri Helga syngur
Dylan og Patsy Cline
Síðumúla 21 | S: 537-5101 | Snuran.is
Opið virka daga 11-18 og laugardaga 12-16
ÚTSALA
20-50% afsláttur af
útsöluvörum
56 menning Helgin 3.-5. júlí 2015