Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.2013, Page 8

Skinfaxi - 01.08.2013, Page 8
8 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Um 1.300 keppendur víðs vegar að af landinu tóku þátt í Unglingalandsmót- inu á Höfn í sumar. Aðstæður voru frábær- ar en gríðarleg uppbygging íþróttamann- virkja hefur verið á Höfn á síðustu árum. Áætlað er að um 8.000 gestir hafi sótt mót- ið. Gleðin og ánægjan skein úr hverju andliti, nokkur unglingalandsmótsmet voru sett og margir bættu persónulegan árangur sinn. Þátttakendur voru á aldrin- um 11–18 ára og margir að keppa á sínu fyrsta stórmóti en í þessum hópi leynast örugglega einstaklingar sem eiga eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sagðist vera afar sátt með mótið og framkvæmdaaðilar, sjálfboðaliðar og íbúar Hornafjarðar ættu hrós fyrir skilið fyrir frábæra vinnu og vel skipulagt mót. „Þátttakan í mótinu var mjög góð og gaman að sjá hvað allir nutu þess að vera á Hornafirði á mótinu um helgina. Það ríkti frábær andi, samheldnin var einstök og allir skemmtu sér vel. Ég er farin að hlakka til næsta móts sem verður á Sauðárkróki að ári,“ sagði Helga Guðrún. Fyrirmyndarbikarinn Á mótsslitum var tilkynnt hverjir hefðu hreppt Fyrirmyndarbikarinn. Bikarinn féll að þessu sinni í skaut Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands, UÍA. Gunnar Gunnarsson, formaður UÍA, veitti bikarn- um viðtöku. Fyrirmyndarbikarinn var gef- inn af Íþróttanefnd ríkisins og er viðurkenn- ing til þess sambandsaðila UMFÍ sem sýnt hefur eftirfarandi atriði: • Góða umgengni á keppnisstöðum, tjaldsvæði og á almennum svæðum mótsdagana. • Háttvísi og prúða framgöngu, m.a. í keppni og við inngöngu á setningu mótsins. Alla mótsdagana var nefnd að störfum sem fylgist með keppendum og öðrum gestum sambandsaðila UMFÍ og mat frammistöðu þeirra út frá ofangreindum þáttum. Formaður UMFÍ, formaður ungl- ingalandsmótsnefndar og formaður þess sambandsaðila UMFÍ sem heldur mótið hverju sinni ákveða valið á fyrirmyndarliði Unglingalandsmótsins. Sigurðarbikarinn Á mótsslitum var Sigurðarbikarinn einnig afhentur. Það var Matthildur Ásmundardóttir, formaður USÚ, og Valde- mar Einarsson, framkvæmdastjóri Sindra, sem veittu bikarnum viðtöku. Bikarinn er veittur til minningar um Sigurð Geirdal, fyrrverandi framkvæmdastjóra UMFÍ. Bik- arinn afhendist að loknu Unglingalands- móti UMFÍ ár hvert sem viðurkenning á því mikla starfi sem felst í undirbúningi unglingalandsmóta. Gefendur bikarsins eru Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður UMFÍ, og Jónas Ingimundarson, fyrsti formaður Ungmennafélagsins Þórs í Þorlákshöfn. Bikarinn var afhentur í fyrsta sinn HSK vegna Unglingalandsmóts UMFÍ í Þorlákshöfn 2008. UMSS fékk bikarinn afhentan 2009, UMSB 2010, UÍA 2011 og HSK 2012. 16. Unglingalandsmót UMFÍ á Höfn í Hornafirði: Sérlega vel heppnað mót UÍA hlaut Fyrir- myndarbikarinn á Unglingalands- mótinu á Höfn.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.