Skinfaxi - 01.08.2013, Page 9
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9
Á Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði var afhjúpaður þakkar-
skjöldur við Sindravöll, íþróttasvæði bæjar-
ins. Það voru Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, og Hjalti Þór Vignisson,
bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar,
sem afhjúpuðu þakkarskjöldinn í samein-
ingu. Helga Guðrún Guðjónsdóttir sagði
af þessu tilefni það heiður fyrir hönd
hreyfingarinnar að fá að afhenda þennan
skjöld til merkis um góða framkvæmd við
mótið sem heppnaðist í alla staði frábær-
lega vel. Fyrir var þakkarskjöldur frá árinu
2007 þegar Unglingalandsmót var haldið
í fyrsta sinn á Hornafirði.
G
óð aðstaða til íþróttaiðkunar og
öflugur hópur sjálfboðaliða voru
lykillinn að vel heppnuðu Ungl-
ingalandsmóti sem haldið var á Höfn
2.–4. ágúst í sumar. Hornafjörður hefur
nú endanlega stimplað sig inn sem einn
af ákjósanlegustu stöðum á landinu fyrir
Unglingalandsmót UMFÍ.
Undirbúningur hafði staðið yfir í næst-
um ár á vegum landsmótsnefndar en á
síðustu vikunum stækkaði hópurinn þegar
kom að uppsetningu keppnis- og tjald-
svæða. Keppni hófst snemma á föstudag
og lauk ekki fyrr en síðdegis á sunnudag.
Sérgreinastjórar unnu frá morgni til kvölds
á landsmótshelginni til að allt gengi
snurðulaust fyrir sig. Keppt var í frjálsum
íþróttum, fimleikum, skák, starfsgreinum,
körfuknattleik, strandblaki, fótbolta og
mótocrossi. Framlag tuga sjálfboðaliða á
keppnissvæðinu alla helgina var ómetan-
legt. Á mánudagsmorgun lögðust fjöl-
margar vinnufúsar hendur á eitt og gengu
frá eftir mótið.
Af umsögnum gesta að dæma þótti það
mikill kostur að keppni fór fram á sama
svæði og þannig hafi ekki þurft að fara
um langan veg ef unglingarnir voru að
keppa í mörgum greinum. Unglingalands-
mótin eru fyrst og fremst fjölskylduhátíð.
Á kvöldvökum stigu á stokk Páll Óskar,
Jón Jónsson, Parket, Stuðlabandið og
fleiri. Auk þess var í boði ýmis afþreying
fyrir unga og aldna alla dagana.
Á miðsvæðinu voru afhjúpaðir þakkar-
skildir um Unglingalandsmótin 2007 og
2013. Mótin hafa hreyft við íþróttamálum
í héraðinu og verið hvatning til frekari upp-
byggingar og iðkunar. Íþrótta- og tóm-
stundastarf er mikilvægur hlekkur í dag-
legu lífi þeirra sem byggja staðinn. Það er
því engin ástæða til annars en að halda
áfram á sömu braut, stefna að því fljótlega
að halda Landsmót aftur og vinna að því
að bæta aðstöðuna enn frekar.
Öllum þeim sem komu að framkvæmd
mótsins eru færðar sérstakar þakkir. Íbúar
geta verið stoltir af framkvæmd Unglinga-
landsmóts UMFÍ árið 2013.
Matthildur Ásmundardóttir, formaður USÚ.
Íbúar geta verið stoltir af framkvæmdinni
Matthildur
Ásmundardóttir,
formaður USÚ.
Frá vinstri eru: Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Unglingalandsmóta UMFÍ, Gunnar Ingi Valgeirs-
son, unglingalandsmótsnefnd, Valdemar Einarsson,
unglingalandsmótsnefnd, Matthildur Ásmundar-
dóttir, formaður unglingalandsmótsnefndar,
Ásgrímur Ingólfsson, unglingalandsmótsnefnd,
og Ástrós Signýjardóttir, verkefnastjóri. Fyrir aftan
standa Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
og Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins
Hornafjarðar.
Þakkarskjöldur
afhjúpaður á Höfn