Skinfaxi - 01.08.2013, Síða 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Um verslunarmannahelgina sótti ég heim Höfn í Hornafirði, ásamt tveimur
sonum mínum, þriggja og ellefu ára. Ungl-
ingalandsmótið togaði okkur til sín. Ég hef
verið upptekinn af starfi sjálfboðaliða í
íþróttum og víðar. Eftir þessa helgi er það
starf þeirra sem stendur upp úr. Ég leyfi
mér að segja að sjálfboðaliðarnir á Höfn
voru sigurvegarar helgarinnar!
Frammistaða sjálfboðaliðanna var mögn-
uð. Sama hvert var litið stóðu þeir vaktina.
Á frjálsíþróttavellinum var frábærlega
mannað. Knattspyrnuhúsi var breytt í
Freyr Ólafsson ásamt sonum sínum á
Unglingalandsmótiu á Höfn í sumar.
Sigur sjálfboðaliðanna
körfuknattleikshöll. Klósettþrif, andlits-
málun, tjaldvarsla, brautarvarsla í hoppi-
köstulum, dómgæsla í körfubolta, knatt-
spyrnu, svo að eitthvað sé nefnt. Alls staðar
voru það greiðviknir og glaðlegir sjálfboða-
liðar sem stóðu vaktina. Augljóslega af
mikilli ánægju. Gáfu af sér. Sveitarfélag
með rétt um tvö þúsund íbúa tók þannig
á móti okkur feðgum að vindstrengurinn
stífi gleymist, greiðviknin ekki.
Til hamingju Hornafjörður. Til hamingju
UMFÍ. Takk fyrir okkur!
Freyr Ólafsson
Sími 470 8100 / Fax 4708101 / sth@sth.is / www.sth.is