Skinfaxi - 01.08.2013, Side 16
16 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„Ég var mjög ánægður með mótshaldið í
heild sinni. Allt sem við skipulögðum og
við réðum yfir tókst vel, þar bar engan
skugga á. Við veðrið ráðum við ekki, en
réðum við það eins vel og hægt var. Svona
mót höldum við ekki nema sjálfboðaliðar
komi þar við sögu og þáttur þeirra var
ómetanlegur. Það komu á sjöunda hundr-
að sjálfboðaliðar að mótinu sem voru lík-
lega að skila um sjö þúsund vinnustund-
um við mótshaldið. Starf sjálfboðaliðanna
var frábært, í einu orði sagt,“ sagði Þórir
Haraldsson, formaður landsmótsnefndar
á Selfossi, eftir mótið.
Héraðssambandið Skarphéðinn, HSK, sigraði með yfirburðum í heildarstiga-
keppni 27. Landsmóts UMFÍ sem haldið
var á Selfossi 4.–7. júlí sl. HSK fékk 3.896
stig og endurheimti bikarinn sem liðið vann
síðast á Landsmótinu á Egilsstöðum 2001.
Ungmennasamband Kjalarnesþings, UMSK,
varð í öðru sæti með 1.844 stig og Íþrótta-
bandalag Reykjavíkur, ÍBR, hafnaði í þriðja
sæti með 1.152,5 stig.
Mótshaldari var HSK en sama nefnd
stóð vaktina og sá um Unglingalandsmót-
ið á Selfossi árið áður. Það má því með
sanni segja að vant fólk hafi verið í brúnni.
Undirbúningur gekk vel og samkvæmt
áætlunum nefndarinnar. Keppnisgreinar
á mótinu voru alls 25 talsins. Góður hópur
sérgreinastjóra hélt utan um keppnina og
gerði sitt besta til að láta alla hluti ganga
upp. Keppnin gekk einnig vel þrátt fyrir
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi:
erfiðar aðstæður á nokkrum mótsstöðum
sökum veðurs. Skráðir þátttakendur voru
845 en auk þess voru skráð 32 keppnislið
þannig að heildarfjöldi keppenda var
1.070.
HSK sigraði með yfirburðum í heildarstigakeppninni
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, og Ásta Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar.
Þórir sagði að þegar upp væri staðið
væri hann mjög sáttur. „Framkvæmd móts-
ins var til sóma en við þurftum að bregð-
ast við ýmsu, má í því sambandi nefna
veðrið og það gerðum við bara vel. Ég
heyrði ekki annað en að keppendur og
fararstjórar hefðu verið ánægðir. Ánægja
og gleði skein úr hverju andliti. Það var
talað um tár sólarinnar hér fyrri hluta
mótsins og við fengumst við það með
sóma. Lukum mótinu í sól og ágætu veðri
þannig við vorum sátt. Við vonum að
keppendur og gestir hafi snúið heim
ánægðir og glaðir,“ sagði Þórir.
Mótssetningin var flutt í Vallaskóla
vegna veðurs en aðrir liðir voru samkvæmt
áætlun.
Á mótsslitunum fluttu Þórir Haraldsson,
formaður landsmótsnefndar, Helga G.
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Ásta
Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitar-
félagsins Árborgar, ávörp og þökkuðu
keppendum og starfsfólki fyrir gott mót.
Þá var einnig afhjúpaður þakkarskjöld-
ur við íþróttavöllinn á Selfossi. Það voru
Helga Guðrún og Ásta sem afhjúpuðu
skjöldinn í sameiningu. Helga Guðrún
sagði af þessu tilefni það heiður fyrir hönd
hreyfingarinnar að fá að afhenda þennan
skjöld til merkis um góða framkvæmd í
mótinu.
Þá voru afhent verðlaun fyrir heildar-
stigakeppni í starfsíþróttum og íþróttum
fatlaðra og féllu þau bæði HSK í skaut.
Þórir Haraldsson, formaður landsmótsnefndar á Selfossi:
Starf sjálfboðaliðanna var frábært
Þórir Haraldsson, formaður
landsmótsnefndar á Selfossi.