Skinfaxi - 01.08.2013, Qupperneq 36
36 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Mikil sigurgleði ríkti í Grafarvogi eftir að
Ungmennafélagið Fjölnir tryggði sér sæti
í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á næsta
tímabili. Fjölnir mætti Leikni í Breiðholtinu í
lokaumferðinni og vann glæstan sigur, 1:3.
Leiknir náði forystunni í fyrri hálfleik og
ekki blés byrlega fyrir Fjölnismönnum
þegar Þórir Guðjónsson fékk að líta rauða
spjaldið snemma í síðari hálfleik. Fjölnis-
menn létu ekki slá sig út af laginu og efld-
ust til muna. Sóknir þeirra urðu æ þyngri
og liðið skoraði þrjú mörk á lokakafla
leiksins. Þetta er einn stærsti sigur Fjölnis-
manna í sögunni og liðið leikur á næsta
ári á meðal þeirra bestu. Að leik loknum
afhenti Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ,
Fjölni bikarinn fyrir sigurinn í deildinni en
KNATTSPYRNA
Fjölnir í efstu deild í knattspyrnu
Víkingur úr Reykjavík fylgir Fjölni upp í
Pepsi-deildina.
„Það er ótrúlegur karakter í þessu liði og
stuðningurinn, sem liðið fékk í þessum leik,
var ómetanlegur. Það má segja að allur
Grafarvogurinn hafi vaknað undir lokin en
þá sýndum við styrk okkar og kláruðum
leikinn með ótrúlegum hætti. Við ákváð-
um að fara í þennan leik með þolinmæð-
ina að vopni og héldum henni út í gegn.
Leiknismenn vildu sigur á heimavelli en
við vorum bara beittari og höfðum meira
að vinna og áttum frábæran lokakafla sem
verður lengi í minnum hafður. Við fögn-
um þessu í kvöld og það eru skemmtilegir
tímar fram undan. Eftir uppskeruhátíðina
eftir viku tökum við hlé og tökum síðan
þráðinn upp að nýju í nóvember og hefj-
um undirbúning fyrir næsta tímabil,“ sagði
Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, eftir leikinn.
Aðspurður hvort hann væri með lið í hönd-
unum sem ætti heima í efstu deild sagði
Ágúst það alveg klárlega. Hann sagði að
liðið hefði sýnt að það væri til alls líklegt.
Grunnurinn væri sterkur og í hópnum
væru frábærir ungir leikmenn sem hefðu
mikinn metnað.
„Grafarvogsbúar geta verið stoltir af sínu
liði. Miðið við frammistöðu liðsins og stuðn-
ingsmanna í dag þá lítur næsta ár ótrú-
lega vel út. Ég er farinn að hlakka til strax,“
sagði Ágúst Gylfason sem verður áfram
með liðið á næsta tímabili enda búinn að
skila sínu og vel það.
Ungmennafélagið
Stjarnan úr Garðabæ
varð Íslandsmeistari
í knattspyrnu kvenna
2013. Yfirburðir Stjörn-
unnar voru miklir í
sumar og er liðið vel að
þessum titli komið.
Þetta er í annað sinn sem Stjarnan verður
meistari í kvennaflokki, en síðast félagið
vann Íslandsmeistaratitilinn fyrst 2011.
Til að undirstrika yfirburði liðsins í sumar
skoraði liðið 69 mörk í deildinni en fékk
aðeins á sig 6 mörk. Liðið vann alla leikina
átján og hlaut 54 stig. Næsta lið á eftir
Stjörnunni var Valur með 39 stig.
Stjarnan Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna