Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.2013, Side 43

Skinfaxi - 01.08.2013, Side 43
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 43 Kirkjubæjarklaustur – Verið hjartanlega velkomin Eftirtaldir aðilar styðja starfsemi Ungmennafélags Íslands: Húsavík Jarðverk ehf., Birkimel, Þingeyjarsveit Laugar Framhaldsskólinn á Laugum, Laugum Reykjadal Þingeyjarsveit, Kjarna Mývatn Jarðböðin við Mývatn, Jarðbaðshólum Vopnafjörður Hólmi NS-56 ehf., Hafnarbyggð 23 Vopnafjarðarhreppur, Hamrahlíð 15 Egilsstaðir Bílamálun Egilsstöðum ehf., Fagradalsbraut 21–23 Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf., Miðvangi 2–4 Farfuglaheimilið Húsey, Seyðisfjörður Seyðisfjarðarkaupstaður, Hafnargötu 44 Reyðarfjörður Launafl ehf., Hrauni 3 Stjórnendafélag Austurlands, Austurvegi 20 Neskaupstaður Rafgeisli Tómas R. Zoëga ehf., Hafnarbraut 10 Höfn í Hornafirði Skinney - Þinganes hf., Krossey Selfoss Fossvélar ehf., Hellismýri 7 Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Flóahreppur, Þingborg Gufuhlíð ehf., Gufuhlíð Kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps, Galtastöðum Hveragerði Eldhestar ehf., Völlum Hveragerðiskirkja Þorlákshöfn Fiskmark ehf., Hafnarskeiði 21 Grunnskólinn í Þorlákshöfn, Egilsbraut 35 Járnkarlinn ehf., Unubakka 25 Laugarvatn Menntaskólinn að Laugarvatni Hella Fannberg, viðskiptafræðingar ehf., Þrúðvangi 18 Hvolsvöllur Bu.is ehf., Stórólfsvelli Héraðsbókasafn Rangæinga, Vallarbraut 16 Krappi ehf., Ormsvöllum 5 Jón Guðmundsson, Berjanesi, Vestur-Landeyjum Vík, Mýrdælingur ehf., Suðurvíkurvegi 5 Kirkjubæjarklaustur Ferðaþjónustan Efri-Vík ehf., Efri-Vík Kvenfélag Skaftártungu, Ljótarstöðum Vestmannaeyjar Ísfélag Vestmannaeyja hf., Strandvegi 28 Íþróttamiðstöð, sundlaug, upplýsinga- miðstöð og sýningar. 48. sambandsþing UMFÍ í Stykkishólmi á dögunum var sögulegt þing. Í fyrsta sinn um nokkurra ára skeið ríkti samstaða og einhugur um þingstörfin og fráfarandi stjórn var þakkað fyrir þann árangur sem náðst hefur á nýliðnu kjörtímabili. Meira var horft fram á veginn en oft undanfarin ár og fortíðin ekki þrætuepli í fyrsta sinn um langt skeið. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að starfa í stjórn félagsins þetta árangurs- ríka en um margt erfiða kjörtímabil sem gjaldkeri og um tíma sem meðlimur í fram- kvæmdastjórn auk ýmissa annarra starfa og verkefna fyrir félagið. Ég er ekki í vafa um að störf þessarar stjórnar að því að gera upp erfið mál síð- asta áratugar, bæta rekstur og hefja niður- greiðslu skulda eru grunnurinn að því hvernig til tókst með þingið. Vel undir- búin uppgjör og áætlanir fráfarandi stjórn- ar og starfsmanna félagsins, ásamt öðrum málum, lögðum fyrir þingið, gerðu þing- störfin um leið árangursrík og skemmti- leg. Því fylgja tregablandnar tilfinningar að yfirgefa stjórn félagsins eftir þessi tvö ár en um leið gleði og traust yfir því vega- nesti sem nýkjörin stjórn fær til þess að leiða félagið áfram á þeirri braut sem því hefur verið stýrt á. Braut skuldalækkana, bætts reksturs, skýrrar stefnu og þannig betri og meiri þjónustu út í grasrótina sem hefur þörf, sem aldrei fyrr, fyrir stuðn- ing og þjónustu félagsins og stjórnar þess. Efnahagur félagsins og einkum skuld- setning þess hefur verið mikið þrætuepli bæði innan stjórnar og á þingum og sýn- ist sitt hverjum þótt einhugur sé nú um að skuldir þurfi að lækka verulega. Hinn veraldlegi efnahagur er þó, þegar öllu er á botninn hvolft, ekki sá sem mestu skiptir. Félagslegur efnahagur er mikilvægari. Þar er gríðarmikill félagsauður í hreyfingunni eignamegin en skuldamegin er hins vegar skuld félagsins við grasrótina, bætt og betri samvinna og þjónusta. Það er verkefni nýrrar forystu að hefja greiðslu á þessari skuld. Þingið hefur talað, verkefnin eru skýr og umboðið skýrt til nýrrar stjórnar. Ég óska endurkjörnum formanni og nýkjörinni stjórn velfarnaðar á því kjörtímabili, sem fram undan er og ber þá von í brjósti að áframhaldandi góður árangur muni nást í stjórnun félagsins, en með minni átökum og blóðtökum en verið hafa í félaginu undanfarin ár. Jón Pálsson, fráfarandi gjaldkeri UMFÍ UMFÍ – á réttum kúrs að afstöðnu góðu sambandsþingi Jón Pálsson, fráfar- andi gjaldkeri UMFÍ.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.