Skinfaxi - 01.05.2014, Side 15
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15
T
ómstundir eru einn af þeim þáttum í
umhverfinu sem hafa áhrif á hamingju
okkar. Í tómstundastarfi er sífellt verið
að læra nýja hluti, fólk upplifir margar
jákvæðar tilfinningar og sjálfsmyndin
styrkist. Þátttaka í tómstundastarfi hjálpar
einstaklingum til að koma jafnvægi á lífið og
hefur jákvæð áhrif á andlega og félagslega
heilsu þeirra. Tómstundaiðkun stuðlar auk
þess að myndun tengslanets og örvar félags-
legan þroska. Iðkendur læra að taka tillit til
annarra, kynnast innbyrðis, byggja upp vin-
áttu og mynda traust sín á milli.
Þegar skoðuð er ævi ,,meðalmanneskju“
kemur í ljós að hún eyðir 4,33 árum af ævi
sinni í formlega menntun, 7,33 árum í vinnu,
24 árum í svefn og 27 árum í tómstundir.
Þessi mikli tími sem fólk hefur fyrir tómstund-
ir sýnir fram á hve mikilvægt það er að frítími
þess sé skipulagður og að þörfin fyrir skipu-
lagt tómstundastarf í umsjá fagaðila sé mikil.
Það ætti ekki að skipta neinu máli hvar fólk
býr eða á hvaða aldri það er því að tómstundir
skipta jafnmiklu máli fyrir alla, unga sem aldna.
Undanfarin ár hafa fjölmargar rannsóknir
leitt í ljós mikilvægi skipulagðs æskulýðs-,
félags- og tómstundastarfs meðal unglinga
og barna. Auk þess hafa rannsóknir sýnt að
almenn hreyfing og íþróttaiðkun eykur líkur á
góðri líðan, bæði líkamlegri og andlegri, og
dregur úr líkum á áhættuhegðun. Þau börn
og unglingar sem eru þátttakendur í skipu-
lögðu starfi eru því líklegri en önnur ung-
menni til að líða betur andlega og neyta
hollrar fæðu. Einnig eru þau ólíklegri til að
reykja og neyta áfengis og annarra vímuefna.
Þá skiptir tómstundastarf miklu máli fyrir eldri
borgara og hafa rannsóknir sýnt að þátttaka
þeirra í tómstundastarfi eykur reisn þeirra og
eflir sjálfstæði. Auk þess hefur tómstunda-
starf mikil áhrif á eldri borgara vegna þess að
margt breytist þegar þeir hætta að vinna og
hafa meiri tíma fyrir sjálfa sig. Þátttaka í tóm-
stundastarfi er góð leið fyrir eldri borgara til
að taka áfram virkan þátt í samfélaginu sem
það býr í og er virkni þess ekki aðeins mikil-
væg fyrir þá sjálfa heldur einnig fyrir sam-
félagið í heild sinni.
Nýtum frítíma okkar
á uppbyggilegan hátt
Flestir gera sér grein fyrir því hvað felst í
hugtakinu tómstundir og tengja þær við eitt-
hvað ánægjulegt eða eitthvað sem veitir
þeim vellíðan. Í nútímaþjóðfélaginu, þar sem
hraðinn er mikill, virðist fólk ekki átta sig á
þeim mikla tíma sem það hefur fyrir tóm-
stundir. Þær eru mikilvægar fyrir alla einstakl-
inga, óháð aldri þeirra og búsetu, og miklu
máli skiptir að fólk finni sér á unga aldri tóm-
stundaiðju sem hæfir áhugasviði þess.
Sigríður Etna Marinósdóttir,
tómstunda- og félagsmálafræðingur
Sigríður Etna Marinósdóttir
Færni til framtíðar er handbók um örvun
hreyfifærni barna úti í nánasta umhverfi.
Bókin á erindi við alla sem hafa áhuga á því
að efla hreyfingu og hreyfifærni barna og
nýta til þess náttúruna okkar.
Bókin fæst í verslunum Eymundsson
og hjá höfundi í síma 898-2279 eða
á netfanginu sabinast@simnet.is