Skinfaxi - 01.05.2012, Page 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Vorfundur Ungmennafélags Íslands var
haldinn á Selfossi laugardaginn 5. maí sl.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, setti fundinn en yfir 40 fulltrúar ung-
menna- og héraðssambanda sóttu fund-
inn sem stóð allan daginn.
Þórir Haraldsson, formaður unglinga-
landsmótsnefndar sem undirbýr Unglinga-
landsmótið á Selfossi í sumar, kynnti mótið
og fór með fulltrúa í kynnisferð um svæð-
ið þar sem mótið verður haldið. Aðstæður
allar á Selfossi eru fyrsta flokks og glæsi-
leg íþróttamannvirki hafa verið reist á síð-
ustu árum. Þá flutti dr. Sigrún Gunnars-
dóttir frá Þekkingarsetri áhugavert erindi
undir yfirskriftinni „Þjónandi forysta”. Jón
Páll Hreinsson, formaður HSV, kynnti sam-
starf HSV og Ísafjarðarbæjar. Eftir hádegið
voru fyrirlestrar, fyrirspurnir og kynning á
Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið var í
Mosfellsbæ nú í sumar. Að lokum var farið
í stefnumótunarvinnu UMFÍ undir hand-
leiðslu Sævars Kristinssonar.
Vorfundur UMFÍ var haldinn á Selfossi
Fulltrúar sambandsaðila UMFÍ fóru í
kynningarferð um íþróttavallarsvæðið
á Selfossi og skoðuðu aðstöðuna fyrir
Unglingalandsmótið í sumar.
Efri mynd til hægri:
F.v.: Aðalbjörg Valdi-
marsdóttir, formað-
ur USAH, Sigurjón
Leifsson, formaður
UMSS, og Einar Har-
aldsson, formaður
Keflavíkur.
Neðri mynd til hægri:
F.v.: Guðný Helga-
dóttir, formaður UÍF,
Þorsteinn Marinós-
son, framkvæmda-
stjóri UMSE, og Óskar
Þór Vilhjálmsson,
formaður UMSE.
Mynd til vinstri:
Bjarni Már Svavars-
son, formaður
Grindavíkur, og
Anna Bjarnadóttir,
formaður Umf.
Skipaskaga.