Skinfaxi - 01.05.2012, Síða 8
8 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Þórir Haraldsson, formaður unglingalands-
mótsnefndar á Selfossi, segir allan undir-
búning fyrir mótið hafa gengið vel. „Við
njótum þess að öll aðstaða er í raun tilbúin.
Öll keppnisaðstaða er klár en nú er verið
að leggja síðustu hönd á fegrun, þökulagn-
ingu og malbikun. Þá er nýlokið við að
ganga frá mótokrossbrautinni í endan-
legri stærð. Þegar á allt er litið hefur undir-
búningur gengið að óskum og það er
óskaplega mikill léttir þegar öll keppnis-
aðstaða er tilbúin. Við höfum notið þess
hve áhugi á mótinu innan félaganna er
mikill og velvilji sveitarfélagsins, bæjar-
stjórnarmanna, starfsmanna og almenn-
ings hefur létt undir með okkur við allan
undirbúning. Í raun hefur stór hópur fólks
lagt okkur lið og fyrir það erum við afskap-
lega þakklát,“ sagði Þórir Haraldsson, for-
maður unglingalandsmótsnefndar, í spjalli
við Skinfaxa fyrir mótið.
Þórir sagði allan undirbúning hafa geng-
ið samkvæmt áætlun. „Við verðum tilbúin
að taka á móti keppendum og gestum á
réttum tíma. Skráningarkerfið var opnað
1. júlí sl. og gengið frá samningum við
styrktaraðila fyrir nokkru.“ Hann sagði allar
keppnisreglur vera komnar á hreint og
búið að senda þær út þannig að fólk viti
alveg að hverju það gengur. Tjaldsvæðið
lítur vel út. Það var slegið í júní en verður
slegið aftur fyrir verslunarmannahelgina.
Þórir sagði að eftir seinni slátt verði svæðið
tilbúið til að taka á móti fjölda fólks.
Tökum vel á móti fólki
„Við fáum mjög góð viðbrögð alls staðar
þar sem við komum og allir eru mjög áhuga-
samir að koma á mótið. Við erum því bjart-
sýn á góða þátttöku og tökum vel á móti
fólki sem vill til okkar koma,“ sagði Þórir.
Valkostur fyrir unglinga og
fjölskyldur
– Þú hefur verið á nokkrum Unglinga-
landsmótum. Hvernig finnst þér hafa
gengið?
„Þessi mót hafa farið verulega fram úr
því sem menn bjuggust við þegar fyrsta
mótið var haldið á Dalvík 1992. Mótin gjör-
breyttust þegar ákveðið var að halda þau
árlega, um verslunarmannahelgina. Með
því var farið að bjóða upp á annars konar
afþreyingu og hátíðahöld fyrir fjölskyldu-
fólk en tíðkast hafði áður. Þetta mót hefur
sannað gildi sitt sem valkostur fyrir ungl-
inga og fjölskyldur með það að markmiði
að eiga góða og ánægjulega helgi saman.
Allt hefur þetta því farið langt fram úr þeim
væntingum sem gerðar voru í upphafi. Sé
horft til íþróttanna er ljóst að mikið er lagt
upp úr mótinu. Krakkarnir leggja áherslu
á að koma, bæði til að keppa og sér til
skemmtunar. Sama fólkið kemur ár eftir
ár. Það hefur kynnst þessu vel og veit hve
frábært það er að koma á þessi mót í af-
slappandi og góðu umhverfi,“ sagði Þórir
Haraldsson.
Þórir sagði það einstakan valkost að fara
á Unglingalandsmót. Fólk stæði frammi
fyrir því að þurfa að ákveða sig og velja úr
öllu því sem í boði væri þessa viðburða-
ríku helgi en Unglingalandsmótin væru
búin að sanna gildi sitt og komin til að
vera.
Frábærar aðstæður
„Ég hlakka mikið til mótsins. Við, sem
sjáum um framkvæmd og undirbúning,
erum mjög ánægð með þær undirtektir
sem við höfum fengið. Það verður gaman
að taka á móti fólki og bjóða upp á þær
frábæru aðstæður sem hér eru. Það eru
úrvalsaðstæður hvert sem litið er og mað-
ur getur varla séð að þar vanti neitt upp
á af neinu tagi, hvort sem um er að ræða
keppnisaðstöðu eða tjaldsvæði. Við erum
því vel í stakk búin til að bjóða fólki upp á
góða og ánægjulega daga á Selfossi í
kringum Unglingalandsmótið. Þótt aðal-
áherslan sé á þátttöku í mótinu og þá
atburði sem varða það hefur einnig verið
lögð ríkuleg áhersla á vandaða skemmti-
dagskrá fyrir keppendur og alla fjölskyld-
una. Við getum ekki annað en verið bjart-
sýn og sjáum fram á skemmtilega helgi.
Við væntum þess að fólk komi til okkar
með bros á vör og fari heim skælbrosandi
eftir skemmtilega og ógleymanlega helgi
á Unglingalandsmótinu á Selfossi,“ sagði
Þórir Haraldsson.
15. Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi:
Þórir Haralds-
son, formaður
framkvæmda-
nefndar lands-
móta á Selfossi.
VIÐ GETUM EKKI ANNAÐ EN VERIÐ BJARTSÝN
OG SJÁUM FRAM Á SKEMMTILEGA HELGI
Þórir Haraldsson, formaður unglingalandsmótsnefndar á Selfossi