Skinfaxi - 01.05.2012, Side 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
„Mér líst mjög vel á mótið sem fram undan
er. Það leggst allt á eitt, undirbúningurinn
hefur gengið vel og allar aðstæður hér á
Selfossi eru til fyrirmyndar. Það er mikil
áskorun að fá að halda þetta mót og við
ætlum að gera allt sem í okkar valdi stend-
ur til að mótið gangi sem best og kepp-
endur og gestir njóti þess að vera hjá okk-
ur meðan á mótinu stendur. Það hefur enn-
fremur verið ánægjulegt hvað allir hafa
verið tilbúnir að bjóða fram krafta sína.
Það er mikil stemning í öllum og tilhlökk-
un,“ sagði Guðríður Aadnegard, formaður
Héraðssambandsins Skarphéðins, HSK, í
samtali við Skinfaxa þegar hún var innt
eftir hvernig undirbúningur gengi í aðdrag-
anda 15. Unglingalandsmóts UMFÍ.
Guðríður sagði að það hefði létt undir
í öllum undirbúningi hve aðstæður væru
góðar á Selfossi.
Sveitarfélagið einstaklega
jákvætt í okkar garð
„Það er óhætt að segja að aðstæður allar,
sem í boði eru á Selfossi, skipta sköpum
hvað undirbúning og framkvæmd áhrærir.
Sveitarfélagið Árborg kemur líka með mikl-
um myndarbrag að undirbúningi mótsins.
Árborg gekk í það strax að laga tjaldsvæð-
ið sem lítur nú orðið glæsilega út. Engin
vandamál hafa komið upp, allir eru samtaka
um að gera þetta vel og ganga hreint til
verks. Sveitarfélagið hefur verið einstak-
lega jákvætt í okkar garð,“ sagði Guðríður.
Unglingalandsmótin frábær
hugmynd
Guðríður sagði það flestum ljóst að
Unglingalandsmótin hefðu slegið í gegn
og skapað sér sess. Það hefði verið frábær
hugmynd að koma þessum mótum af stað
á sínum tíma og þau hefðu svo sannarlega
sannað gildi sitt.
„Ég var sjálf ekki hrifin af því í upphafi að
halda Unglingalandsmótið um verslunar-
mannahelgina. En þetta gefur fólki fleiri
tækifæri og meira val og mótin hafa mikið
forvarnagildi. Að halda þessi mót um versl-
unarmannahelgina reyndist hárrétt
ákvörðun og keppendur kynnast jafnöldr-
um sínum alls staðar að af landinu. Það
skapar mikil vinatengsl sem endast mörg
um aldur og ævi. Unglingalandsmótin hafa
jákvætt gildi hvernig sem á er litið. Mér
finnst UMFÍ eiga skilið rós í hnappagatið
fyrir að hafa komið þessum mótum á,“
sagði Guðríður.
Guðríður sagði það ennfremur hafa skipt
miklu máli í öllum undirbúningi fyrir mót-
ið hvað heimamenn og sveitarstjórn hefðu
tekið jákvætt í hvaðeina sem upp var borið.
„Það er alveg sama við hvern maður
talar og leitar eftir aðstoð, alls staðar er
okkur tekið með opnum örmum,“ eins og
Guðríður orðaði það.
Margir koma ár eftir ár
„Við búumst við miklum fjölda kepp-
enda og gesta á mótið og það er bara von-
andi að veðrið eigi eftir að leika við okkur.
Margir koma ár eftir ár og hafa tekið þátt í
mótunum frá 11 ára aldri. Unglingalands-
mótin eru frábær vettvangur fyrir fjölskyld-
una til að vera saman í heilbrigðu um-
hverfi. Ég hef farið á Unglingalandsmót
og ég held að ég geti sagt að það sé ein-
stök upplifun. Það er mikið lagt í þau.
Afþreying, sem þar er í boði, er fjölbreytt
og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Þetta eru mót sem hafa slegið í gegn,“
sagði Guðríður.
Verða ógleymanlegir dagar
Hún sagðist vera full tilhlökkunar og
bíður spennt eftir að taka móti keppend-
um og gestum.
„Ég er þess fullviss að við eigum eftir að
eiga góða og ógleymanlega daga saman
á Unglingalandsmótinu á Selfossi. Ungl-
ingalandsmótsnefndin vinnur geysilega
öflugt og mikið starf. Allir leggjast á árar-
nar til að gera þetta eins vel úr garði og við
framast getum,“ sagði Guðríður Aadne-
gard í spjalli við Skinfaxa.
Guðríður Aadne-
gard, formaður
HSK.
ÞÁTTTAKA Á UNGLINGALANDSMÓTI
ER EINSTÖK UPPLIFUN
15. Unglingalandsmót UMFÍ á Selfossi:
Guðríður Aadnegard, formaður Héraðssambandsins Skarphéðins
Að sögn Ómars Braga Stefánssonar, fram-
kvæmdastjóra Unglingalandsmóts UMFÍ
á Selfossi, gengur undirbúningur vel og
fólk hlakkar til mótsins. Vinna við það hef-
ur staðið lengi og allir þættir eru í góðum
farvegi eins og Ómar Bragi komst að orði.
„HSK á sér stórt bakland og héraðssam-
bandið er ekki óvant því að koma að und-
irbúningi móta og vinnur hlutina vel.
Maður finnur alls staðar fyrir góðu við-
móti og allir eru tilbúnir að bretta upp
ermar. Aðkoma sveitarfélagsins er glæsi-
leg og maður finnur krafti af þess hálfu.
Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unglingalandsmótsins á Selfossi:
Maður finnur alls staðar fyrir góðu viðmóti
Aðstaðan á Selfossi er frábær í öllum
greinum sem keppt verður í á mótinu.
Það kæmi okkur ekki óvart að keppendur
yrðu í kringum tvö þúsund. Við finnum
alls staðar fyrir miklum áhuga og erum
undirbúin fyrir mikinn fjölda keppenda.
Við erum viss um að mótið verður glæsi-
legt í alla staði. Fólk er tilbúið að koma og
leggja okkur lið í undirbúningnum. Þetta
á eftir að verða gott mót í alla staði,“ sagði
Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Unglingalandsmótsins á Selfossi,
í samtali við Skinfaxa.
Ómar Bragi Stefánsson,
framkvæmdastjóri mótsins.