Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2012, Side 28

Skinfaxi - 01.05.2012, Side 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Ungmennaráð UMFÍ og stjórn hélt skemmti- helgi á Varmalandi í Borgarfirði 16.–18. mars sl. Skemmtihelgar Ungmennaráðs eru fyrir ungt fólk á aldrinum 16–30 ára sem langar til að skemmta sér saman án vímuefna. Helgin heppnaðist einstaklega UNGT FÓLK: Skemmtihelgi hjá Ungmennaráði UMFÍ í Borgarnesi vel. Farið var í alls konar leiki, spilað, farið í sund, eldað og borðað saman. Alls voru þátttakendur 19 talsins og náði hópurinn rosalega vel saman. Mörg áhugaverð verkefni hafa verið og eru í gangi hjá ungmennaráðinu. Má þar nefna ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði en ráðið kom að undirbúningi hennar. Stefnan er svo að fara inn í grunnskólana og kynna ungmennaráðið. Síðan á að kynna forvarnastarf svo að verkefnin eru næg. Þátttakendur á skemmtihelgi á Varmalandi í Borgarfirði. Ellefu umsóknir bárust til stjórnar Ung- mennafélags Íslands um að halda Lands- mót UMFÍ 50+ 2013 og 2014 en umsókn- arfrestur rann út 31. maí sl. Þau héraðssambönd sem sóttu um að halda mótið 2013 voru Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands, Ungmenna- samband Eyjafjarðar, Ungmennasamband Borgarfjarðar og Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu. Um mótið 2014 sóttu Héraðssambandið Skarphéðinn, Héraðssam- band Strandamanna, Ungmenna- og íþrótta- samband Austurlands, Ungmennasamband Eyjafjarðar, Ungmennasamband Borgar- fjarðar, Héraðssamband Þingeyinga og Ung- mennasamband Vestur-Skaftafellssýslu. Umsækjendum var gefinn kostur á að fylgja umsóknum sínum eftir við stjórn Ung- mennafélags Íslands á fundi sem haldinn var 20. júlí sl. Í framhaldinu var tekin ákvörðun um hver tekur að sér fram- kvæmd Landsmóta UMFÍ 50+ árin 2013 og 2014. Ákvörðun stjórnar um keppnisstaði lá ekki fyrir þegar þetta tölublað Skinfaxa fór í prentun. Hægt er að fylgjast með málinu á heimasíðu UMFÍ, www.umfi.is. 11 umsóknir bárust um að halda Landsmót UMFÍ 50+ 2013 og 2014

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.