Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2012, Page 30

Skinfaxi - 01.05.2012, Page 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Ungmennasamband Austur-Húnvetninga, USAH, varð 100 ára 30. mars sl. og var tíma- mótanna minnst með hátíð í Íþróttamið- stöðinni á Blönduósi. USAH á merka sögu og hefur starfað að ýmsum framfaramál- um. Nú eru íþróttirnar í aðalhlutverki, ekki síst æfingar fyrir börn og unglinga. Á hátíðinni voru á dagskrá mynda- sýning úr starfi USAH í 100 ár, verðlauna- afhending í myndasamkeppni og ljóða- samkeppni, frjálsíþróttamót, golfkynning, Skotfélagið Markviss var með sýningu á munum og kynning fór fram á starfsemi sunddeildar Hvatar og skíðadeildar Fram og fleira. Þá voru Húnavökurit frá upphafi til sýnis, fjöltefli var, júdókynning og margt fleira skemmtilegt. Fjölmenni sótti hátíðarhöldin og gladdist með sam- bandinu á þessum merku tímamótum. Á laugardeginum 31. mars var síðan hátíðarkvöldverður en þangað var um 140 manns boðið. Þar voru fjölmargir ein- staklingar heiðraðir og gjafir, gefnar sam- bandinu, afhentar. Hjalti Jónsson tenór og Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari sáu um skemmtiatriði ásamt veislustjóra kvöldsins, Magnúsi R. Sigurðssyni. Helga USAH 100 ára Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, voru gestir í afmælishófinu. Auð- unn Steinn Sigurðsson og Guðrún Sigur- jónsdóttir voru við þetta tækifæri sæmd starfsmerki UMFÍ. Öflugt starf Starfsemi Ungmennasambands Austur- Húnvetninga fer mest fram í aðildarfélög- unum en þau koma fram saman undir merkjum USAH á Landsmótum og Ungl- ingalandsmótum. USAH var stofnað 30. mars 1912. Aðildarfélög USAH í dag eru: Umf. Hvöt Blönduósi Golfklúbbur Skagastrandar Golfklúbburinn Ós Hestamannafélagið Neisti Skotfélagið Markviss Umf. Bólstaðarhlíðarhrepps Umf. Fram Skagaströnd Umf. Geislar Umf. Vorboðinn Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, ásamt Auðuni Steini Sigurðssyni og Guðrúnu Sigurjónsdóttur sem voru sæmd starfsmerki UMFÍ. Svipmyndir frá hátíðinni sem haldin var í tilefni af 100 ára afmæli USAH.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.