Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2012, Page 33

Skinfaxi - 01.05.2012, Page 33
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 33 Ungmennasamband Borgarfjarðar fagn- aði 100 ára afmæli 26. apríl sl. Haldin var vegleg veisla og var margt gesta eða um 200 manns. Ásdís Helga Bjarnadóttir, fyrr- verandi formaður UMSB, sá um veislustjórn og flutti Þórir Jónsson, annar fyrrverandi formaður, hátíðarræðu. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, flutti ræðu og afhenti Sigurði Guð- mundssyni, formanni UMSB, afmælisgjöf frá hreyfingunni. Komu margir góðir gest- ir í pontu og fluttu sambandinu kveðju sína en einnig voru sambandinu gefnar margar fallegar gjafir; þ. á m. glæsileg myndavél, skeiðklukkur, skákbikarar, blóm og peningagjafir til tækjakaupa. Einnig voru við þetta tækifæri veittar ýmsar viður- kenningar. UMFÍ sæmdi þau Agnesi Guð- mundsdóttur, Umf. Stafholtstungna, og Eyjólf Hjálmsson, Umf. Íslendingi, starfs- merki fyrir vel unnin störf í þágu ung- mennafélagshreyfingarinnar. Þá veitti UMSB Evu Karen Þórðardóttur sérstaka viðurkenningu fyrir ómetanlegt starf í þágu dansíþróttarinnar í Borgarfirði. UMSB 100 ára Sigurður Guðmundsson, sambandsstjóri UMSB, tekur við skákbikurum sem Ófeigur Gestsson, fyrrverandi sambandsstjóri, gaf sambandinu. Sigurður Guðmundsson, sambandsstjóri UMSB, tekur við afmælisskildi frá Helgu Guðrúnu Guð- jónsdóttur, formanni UMFÍ. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sæmdi Eyjólf Hjálmsson og Agnesi Guðmunds- dóttur starfsmerki UMFÍ. Mynd að neðan: Hljómsveitin Uppsveitin, sem er skipuð ungu fólki úr uppsveitum Borgarfjarðar, söng Maístjörnuna og tók salurinn undir.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.