Skinfaxi - 01.05.2012, Page 47
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 47
Úr hreyfingunni
Gunnar Gunnarsson var
kjörinn formaður Ung-
menna- og íþróttasam-
bands Austurlands á
þingi sambandsins í Brúarási
15. apríl sl. Elín Rán Björnsdóttir, sem verið
hefur formaður UÍA sl. fjögur ár, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Breyting varð á
stjórninni en Sigrún Snæbjörnsdóttir frá
Norðfirði kemur inn fyrir Elínu Rán.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, heiðraði gesti Sambandsþings UÍA
með nærveru sinni og sæmdi þrjá ein-
staklinga starfsmerki UMFÍ og einn gull-
merki UMFÍ. Björn Ármann Ólafsson var
sæmdur gullmerki UMFÍ en Björn, sem
var formaður UÍA á árunum 1998–2001,
var gjaldkeri UMFÍ 2003–2011. Auk þess
hefur hann löngum verið virkur innan
frjálsíþróttaráðs UÍA og frjálsíþróttadeild-
ar Hattar. Björn var formaður unglinga-
landsmótsnefndar 2011 og kom auk þess
að undirbúningi Landsmótsins 2001.
Björn Hafþór Guðmundsson, Gunnar
Jónsson og Jóhann Tryggvason voru
sæmdir starfsmerki UMFÍ. Helena Kristín
Gunnarsdóttir, blakkona úr Þrótti, var út-
nefnd íþróttamaður UÍA 2011 á þinginu.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, ávarpaði þinggesti og kom meðal
annars að því í ræðu sinni hversu glæsi-
lega hefði til tekist við framkvæmd Ungl-
ingalandsmóts síðastliðið sumar. Kröftugt
sjálfboðaliðastarf hefði borið þar ríkulegan
ávöxt og skilað veglegum félags- og mann-
auði til samfélagsins hér eystra auk þess
að skilja eftir ljúfar og skemmtilegar minn-
ingar í hugum ótal fjölskyldna víðs vegar
að af landinu sem nutu glaðværðar og
gestrisni Austfirðinga um verslunarmanna-
helgina.
Þekki starfið ágætlega
Hvernig leggst starfið í nýkjörinn for-
mann UÍA?
„Það leggst mjög vel í mig. Ég hef setið
í stjórn UÍA frá árinu 2005 og allan tímann
verið titlaður varaformaður/ritari þannig
ég þekki starfið ágætlega.“
Sambandið hélt glæsilegt Unglingalands-
mót í fyrra. Hver hafa verið stærstu verkefnin
að því loknu?
„Stærsta áskorunin er að halda dampi.
Eftir að við héldum Landsmótið 2001 voru
margir lykilmenn orðnir þreyttir, hurfu
snögglega á braut, og þeir sem komu á
eftir áttu erfitt með að fylla í skarðið. Við
erum með okkar föstu verkefni eins og
mótahald í sundi og frjálsum og Sumar-
hátíðina, hagsmunagæslu fyrir félögin á
svæðinu og fleira en við horfum líka alltaf
eftir nýjum verkefnum.“
Sambandsþing Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands:
Gunnar Gunnarsson kjörinn formaður UÍA
Að ofan: Frá afhend-
ingu viðurkenninga
á sambandsþingi
UÍA.
Til vinstri: Helena
Kristín Gunnars-
dóttir, íþróttamaður
UÍA 2011.
Til hægri: Gunnar
Gunnarsson, nýkjör-
inn formaður UÍA.
Ferðakostnaður félaga á landsbyggðinni
fer alltaf hækkandi. Hvað segir þú um þessa
þróun?
„Mér finnst hún skelfileg og við vitum
eiginlega ekki okkar rjúkandi ráð. Þak var
sett á ferðasjóð íþróttahreyfingarinnar eftir
hrun og horfið frá þeim hækkunum á opin-
berum framlögum í hann sem heitið hafði
verið. Ferðakostnaðurinn hefur ekki frosið
á sama skapi. Ferðakostnaðurinn, sem
leggst á félögin úti á landi, hefur í för með
sér að þau eru eiginlega ekki samkeppnis-
fær og rýrir verulega möguleika einstakl-
inga til að bæta sig í keppni.“
Starfs- og gull-
merkjahafar UMFÍ.
Frá vinstri: Elín Rán
Björnsdóttir, fráfar-
andi formaður UÍA,
Björn Hafþór Guð-
mundsson, Jóhann
Tryggvason, Björn
Ármann Ólafsson,
Gunnar Jónsson og
Helga Guðrún Guð-
jónsdóttir, formaður
UMFÍ.