Dagrenning - 01.08.1951, Qupperneq 7

Dagrenning - 01.08.1951, Qupperneq 7
var ritað og þar til olíudeilan hófst, en hún er upphaf hinna beinu afskipta Rússa af Persíu, sem enda — eins og áður er sagt — á þann veg, að innan 24 mánaða verður Persía öll rússneskt leppríki. Þessari þróun getur hvorki hinn „sérlegi sendiherra", Averill Harriman, afstýrt né neinn annar. Hitt er ekki óiikiegt, að hann sé verk- færi í hendi æðri máttarvalda til þess að fram- kvæma mikilvæga ákvörðun. * I tilefni af kröfu persnesku stjómarinnar um að Bretar hyrfu með öllu frá Persiu og hinni svokölluðu „þjóðnýtingu" olíulindanna þar, skrifar brezki blaðamaðurinn John Gordon grein í Sunday Express 3. júlí s. I., sem heitir „Rétt- um úr okkur". Hann segir þar m. a.: „Vér höfum nú hlotið þá niðurlægingu, sem endast mun oss hcilan mannsaldur. Lítum á þau met sem Morrison og félagar hans hafa sett i því efni, síðan þeir tóku við stjóraartaum- unura: Metin eru þessi: „Farúk heimtar oss burt úr Egiptalandi. Chiie heimtar oss rekna burt af Suðurskauts- svæðinu. Franco heimtar að vér hverfum frá Gibraltar og loks hefir nú vesalingurinn Syng- man Rhee farið svívirðingar og móðgunarorð- ur um herdeildir vorar I Kóreu án þess að stjóra vor hafi svo mikið sem gert tilraun til mót- mæla. Það má segja, að nú sé svo komið, að það j fyrirfinnist varla lengur í heiminum nokkur þjóð, vinveitt eða óvinveitt, sem ekki telur það sjálfsagt mál að vera öðru hvoru að sparka i okkur. Það er þess vegna engin furða þó jafn mikilli merkisþjóð og Persum þyki ástæða til að taka þátt í þeim Ieik. En ef vér eigum ekki að fara í hundana fyrir fullt og allt er nú kominn tími til að breyta um stefnu og svara þessum auðvirðilegu móðg- unum á viðeigandi hátt. Vér skulum segja Persum með viðeigandi orðum og viðeigandi áherzlu og þannig, að það verði ekki misskilið, að ekki geti komið til mála I að þeir snerti með minnsta fingri olíustöðvar vorar í Abadan. Ef einhverjar ástæður gera það nauðsynlegt að breyta þeim samningum, sem vér nú höfum ber að athuga það að réttri samningsleið og án þess nokkurri kúgun sé beitt, en gera þeim jafnframt fullkomlega ljóst að það, sem vér ætlumst fyrir, sé að verja þá samninga, sem vér höfum og þær eignir, sem vér eigum þar, með öllum þeim vopnum, sem vér getum ráðið yfir, ef á þarf að halda.“ Þegar nú andrúmsloftið var orðið svona í Bretlandi fór jafnaðarmannastjórain að láta á sér bæra. Eftir ótal gagnslausar orðsendingar fram og aftur sendi hún loks herskip á vett- vang og hafði tiltækt fallhlífalið á næstu grösum. Ihaldsflokkurinn brezki lýsti yfir, að hann teldi sjálfsagt og tímabært að beita hervaldi til að halda olíuréttindunum í Persíu. Nú fór að koma vomur á persnesku stjórnina. Hún sá, að skipting landsins milii Rússa og Breta var yfirvofandi, ef lengra yrði haldið. En Rússar vilja heldur fá alla Persíu eftir eitt ár en helm- ing hennar nú. Þess vegna fara þeir sér hægt á yfirborðinu, en blása þeim mun meira að glæð- unum meðal almennings. Þeirra takmark er: Burt með Breta og Bandarikjamenn úr löndun- um fyrir botni Miðjarðarhafs, því þá eru þau kommúnismanum auðtekin bráð. III. Vafalaust eru þeir margir, sem finnst jafn- aðarmannastjórain brezka ámælisverð fyrir af- stöðu sína bæði I þessu efni og öðrum. Bretar finna það vel, að þeir eru ekki lengur það stór- veldi, sem þeir áður voru, þegar þeir gátu bæði í krafti auðæfa sinna og herbúnaðar boðið byrginn hvcrjum sem var. Þeir finna nú, að tengsl þeirra við Indland eru raunverulega rof- in, það er aðeins nafnið tómt sem eftir er. Þeir finna einnig að sömu leiðina eru nú að fara völd og virðing þeirra meðal Arabarikjanna, sem þeir hafa komið á fót og hjálpað til sjálfstæðis. Að vonum svíður Bretum þetta sárt. Þeir finna glöggt hve háðir þeir eru orðnir Banda- rikjamönnum og metnaður þeirra krefst þess, að þeir haldi sig að öllu tii jafns við fyrsta flokks stórveldi vorra tíma. En það er eins og hvorki Bretar né Banda- rikjamenn skilji þá þróun í alþjóða stjórnmál- um sem fram er að fara. Og ástæðan fyrir því. DAGRENNING 5

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.