Dagrenning - 01.08.1951, Blaðsíða 13

Dagrenning - 01.08.1951, Blaðsíða 13
einræðisskipulagið. Iiins vegar er oss ljóst, að undir þjóðræðisskipulagi er varðveitt bet- ur en undir öðrum skipulagsformum sú þrí- skipting ríkisvaldsins, sem liggur til grund- vallar fyrir þjóðskipulagi allra menningar- ríkja vorra tíma, en sem víða er nú að hverfa fyrir vaxandi einræði. Vér teljum því, að stefna beri að því hér hjá oss, að skilja framkvæmdarvaldið frá lög- gjafarvaldinu og fela þjóðkjörnum forseta allt framkvæmdarvaldið í hendur, og að hann sé annaðhvort stjórnarformaður sjálf- ur eða skipi ráðuneyti, sem fer með fram- kvæmdarvaldið, óháð þinginu. * í samræmi við þessa skoðun, höfum vér sett fram hin 5 höfuðatriði, sem vér telj- um að skipti meginmáli að taka afstöðu til, áður en lengra er haldið í endurskoðun stjómskipunarlaganna. Þessi atriði hafa áður verið rædd nokk- uð, en rétt er að rifja þau upp í aðalatriðum aftur. Fyrsta atriðið er þetta Þjóðkjörinn forseti skipi án afskipta Al- þingis, ráðuneyti, sem fer með stjórn ríkis- ins á ábyrgð forseta ákveðið tímabil. Þetta er höfuðatriði stjómarskiármálsins, og þess- vegna það, sem raunverulega skiptir öllu máli. Ýmsir ætla þó, að hjá oss íslending- um mundi það form reynast betur, að láta þingið kjósa ríkisstjómina, eins og í Sviss, en afnema rétt þess til að breyta henni allt kjörtímabilið, afnema þingrofsvaldið og krefjast þess, að ráðherrar séu utan flokka meðan þeir eru í ríkisstjóm og gegni ekki neinum flokkslegum trúnaðarstörfum. Per- sónulega held ég, að þetta fyrirkomulag mundi gefast verr hér, en hrein aðgreining löggjafar og framkvæmdarvalds. Annað atriðið er, að AJþingi eitt hafi allt löggjafarvald. Forsetar þess hafi milli þinga rétt til að setja bráðabirgðalög að beiðni ríkisstjórnarinnar, en þingrofsvald forsetans hverfi. Þegar framkvæmdarvald og löggjafarvald hefir verið aðskilið er eðlilegt að horfið sé frá þingrofi og þing sitji allt kjörtímabilið. Þing- rof þekkist ekki hjá ýmsum þjóðum, svo sem Svisslendingum, Norðmönnum, Bandaríkja- mönnum og fleiri þjóðum, og gefst sú skipan síst ver en þar sem þingrof er leyft. Þriðja atriðið er, að skipan æðsta dómstóls þjóðarinnar sé ákveðin í stjómarskránni, þannig að hvorki framkvæmdarvaldið né lög- gjafarvaldið geti breytt skipan hans, nema sú breyting sé jafnframt stjórnarskrárbreyting. Þetta er að vorurn dómi bæði þýðingarmik- ið og sjálfsagt ákvæði. Fjórða atriðið er það, að landinu verði skipt í fjórðunga eða fylki, sem njóta nokkurrar sjálfstjómar. Umdæmi þessi verði ákveðin í stjórnarskrá ríkisins, en málefnum þeirra að öðru leyti skipað með lögum. Það er mjög áberandi nú hversu sjálfstæði hinna einstöku byggðarlaga fer síminnkandi. Svo má heita að flest meiri háttar verkefni sýslunefnda séu nú frá þeim horfin, og hrepps- og bæjarfélög eru svo ósjálfstæð og umkomulaus, að þau eru ófær til allra fram- kværnda nema með ríkisaðstoð. Ríkisábyrgð- ir og ríkisstyrkir eru nú skilyrði fyrir því að nokkurt sveitarfélag geti ráðist í nokkra framkvæmd. Til hafnargerða þarf ríkisstyrk og ríkisábyrgð, til vatnsveitna og rafveitna þarf ríkisstyrk og ríkisábyrgð, til skólabygg- inga þarf ríkisstyrk og stundum líka ríkis- ábvrgð, til vegagerða og brúargerða þarf ríkis- styrk og loks ber nú ríkið ábyrgð á marghátt- uðum viðskiptum sveitarfélaganna, og nú með síðustu breytingu á almannatrygginga- lögunum er ekki ólíklegt að verulegur hluti framfærslu óskilgetinna barna færist yfri á ríkissjóðinn hvað þá annað. Þannig má segja, að sjálfstæði sveitarfélaganna sé að gufa upp. DAGRENNING 21

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.